Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Morðið á Rachel Morin – Lögreglan birtir myndskeið af morðingjanum

Morðið á Rachel Morin – Lögreglan birtir myndskeið af morðingjanum
Tobin og Rachel Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lög­reglan í Maryland er með DNA-sönn­un­ar­gögn og mynd­skeið af morð­ingja fimm barna móð­ur­innar Rachel Morin, 37 ára, sem myrt var á þekktri göngu­leið í Bell Air fyrir stuttu. Lög­reglan hefur þó enn ekki borið kennsl á mann­inn. Rachel fannst nakin og illa barin eftir að hún hafði farið út að hlaupa á göngu­stígnum, nálægt heim­ili hennar.

Sjá einnig: Vend­ingar í morð­máli Rachel Morin – Hópur vitna stígur fram

Yfirvöld segja að DNA-sýni sem rann­sakað var af lög­regl­unni í Maryland-fylki í Banda­ríkj­unum, passi við DNA sem fannst á vett­vangi inn­brots og árás á unga stúlku í Los Angeles í mars. William Davis, yfir­maður hjá lög­regl­unni í Hartford-sýslu, sagði frétta­mönnum frá mál­inu í gær.

„Því miður hefur ekki verið borin kennsl á þann grun­aða, en hann skildi eftir DNA,“ sagði Davis á blaða­manna­fund­inum. „Við teljum, byggt á DNA gögn­unum, að maður sem náð­ist á mynd­bands­upp­töku sem við fengum frá lög­regl­unni í Los Angeles, sé sá sem myrti Rachel Morin.“ Mynd­bandið má sjá hér.

Lög­reglan birti mynd­skeið af hinum grun­aða, þar sem hann er ber að ofan á leið út úr húsi sem hann er grun­aður um að hafa brot­ist inn í. Honum er lýst sem rómönskum manni, um 175 senti­metri á hæð og um 75 kíló á þyngd.

Davis sagði að á þessu stigi máls­ins, telji lög­reglan að sá grun­aði hafi verið einn að verki og hafi ekki þekkt Morin. Morðið virð­ist hafa verið „til­vilj­ana­kennt ofbeld­is­verk,“ að sögn Davis. Bætti hann við að lög­reglan hefði „engar vís­bend­ingar“ um það hver sá grun­aði gæti verið.

Morin hvarf þann 5. ágúst eftir að hafa farið út að skokka á vin­sælli göngu­leið nærri heim­ili hennar í Bel Air. Lög­reglan fann líkið af hinni fimm barna móður, nálægt stígnum næsta dag og sá strax að um morð var að ræða.

Ma og Pa göngu­stíg­ur­inn

Maður sem sagði að stjúp­dóttir sín hefði fundið líkið, sagði fjöl­miðlum að Morin hafi verið nakin og það hafi litið út eins og hún hefði verið barin ítrekar í höf­uðið með þungum hlut og síðan dregin nakin í ræsi. Lög­reglan hefur ekki stað­fest þá frá­sögn.

Einungis fjórum dögum fyrir morðið hafið Morin og 27 ára gamli kær­asti hennar, Richard Tobin, gert sam­band þeirra opin­bert á Facebook.

Stuttu eftir að Morin týnd­ist fór Tobin í vörn en hann skrif­aði við sam­bands­færslu þeirra á Facebook að hann væri sak­laus. „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt, leyfið fjöl­skyld­unni og mér að syrgja. Já ég á mér for­tíð en ég hef líka verið edrú í 15 mán­uði og hef breyst sem mann­eskja. Ég bið ykkur,“ skrif­aði hann. Tobin var þar að tala um langa sögu sína sem góð­kunn­ingi lög­regl­unnar en hann var meðal ann­ars tvisvar sinnum hand­tek­inn fyrir ann­ars stigs lík­ams­árás, fyrir að brjóta nálg­un­ar­bann, fyrir skemmdir á eignum og fyrir vörslu eit­ur­lyfja. Lög­reglan stað­festi að Tobin hafi fyrst til­kynnt um hvarf Morin en að hann væri ekki grun­aður um morðið.

„Ég vona að þeir finni skítseyðið,“ skrif­aði Tobin á Facebook þegar lög­reglan sagði frá nýj­ustu vend­ingum í máli Rachel. „Rétt­læt­ing fyrir Rachel. Hvíldu í friði. Elska þig Rach.“

Þrátt fyrir sam­bandið, sögðu heim­ild­ar­menn sem tengj­ast sól­baðs­stofu sem Morin heim­sótti oft, miðl­inum The New York Post að hún hefði oft talað um að hún væri á fjöldi stefnu­móta­síða, rétt fyrir and­látið.

Morin rak sína eigin þrifa­þjón­ustu og vinir hennar og ætt­ingjar minn­ast hennar sem harð­dug­legrar móður, kærrar vin­konu og öfga­mann­eskju í lík­ams­rækt.

„Hún elskaði börnin sín, hún var hörku­dug­leg,“ sagði Matthew McMahon, faðir elsta barns Morin, við The Post. „Hún var harð­dug­leg ein­stæð móðir sem hafði gríð­ar­legan áhuga á lík­ams­rækt.“

Morin átti börnin fimm, sem eru frá 8 ára aldri til 18 ára, með þremur mis­mun­andi mönnum. „Hún var mjög hlý og umfram allt elskaði hún börnin sín,“ sagði hin 69 ára Margaret Woltz en hún var einn af kúnnum Morin. „Hún ól þau upp mjög vel. Hún hafði sveigj­an­legan vinnu­tíma sem gerði henni kleift að sjá til þess að vel væri séð um börnin öllum stundum.“

Fréttin er unnin upp úr frétt The New York Post.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco