Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Tvær fyrirsætur myrtar með tveggja daga millibili: „Ég vil einhver svör því dóttir mín er farin“

Tvær fyrir­sætur fundust myrtar með tveggja daga millibili í Los Angeles-borg. Ekki er talið að morðin tengist.

Maleesa Mooney, 31 árs módel og fasteigna­sali, fannst látin í íbúð sinni í miðbæ Los Angeles þann 12. september. Ekki hefur dánar­orsök verið gefin upp en þó er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti, samkvæmt talsmanni lögreglunnar í Los Angeles, Tony Im.

Blessuð sé minn­ing hennar.

Lögreglu­menn fundu lík Mooney um klukkan 16:00 þann 12. september, eftir að þeir höfðu verið beðnir um velferðar­athugun á henni. Bailey Babb, frændi hennar sagði í fjöl­miðlum að fjölskyldu­meðlimir hennar hafi orðið áhyggju­fullir eftir að hún hætti öllum samskiptum.

„Þegar vika leið, vissum við að eitthvað var að,“ sagði Babb. „Skila­boðin til hennar voru ekki að ná í gegn og við vissum að eitthvað var að því við eigum öll í einstöku sambandi við Maleesu.“

Systir Mooney, Jourdin Pauline, sem er poppstjarna frá Gvæjana, syrgði dauða hennar í færslu á Instagram þar sem hún skrifaði: „Aldrei í milljón ár hélt ég að ég þyrfti að skrifa þessa færslu og leita eftir réttlæti fyrir einka­systur mína. Hjarta mitt er kramið. Ég trúi ekki að þú verðir ekki með okkur lengur. Þú varst svo elskuleg og góð við alla. Þú sást til þess að ef þú fékkst að borða, fengu allir aðrir það líka. Þú opnaðir faðm þinn fyrir fólk sem átti ekki skilið vináttu þína. Þú ert það besta sem komið hefur inn í líf flestra. Þú snertir við fólki!!!“

Lík Mooney fannst tveimur dögum eftir að fyrirsætan Nichole Coats fannst látin íbúð sinni í miðbæ Los Angeles. Lögreglan telur þó að málin tvö tengist ekki.

Nicole Coats, 32 ára, fannst látin í íbúð sinni þann 10. september en það var faðir hennar og frænka sem fundu hana. Þau höfðu orðið áhyggju­full eftir að ekkert heyrðist frá Nicole í fjöldi daga.

Blessuð sé minn­ing Nichole

Stuttu eftir andlátið, tjáðu einstaklingar nánir Nichole, sem einnig var kölluð Nikki, sig um harm­leikinn.

„Þetta er glóru­laust og ég vil einhver svör því dóttir mín er farin,“ sagði móðir hennar, Sharon Coats, í viðtali við KTLA. „Og þetta er ekki sann­gjarnt. Ég vil að allir komist að því hver gerði henni þetta. Hún ætti ekki að vera farin.“

Frænka Nikki, May Stevens, sagði frá hinni hryllilegu aðkomu þann 10. september. Sagðist hún ekki hafa „geta þekkt“ frænku sína.

„Mér fannst bara allt hreyfast í hægagangi (e. slow motion),“ sagði frænka hennar Sheniya Mason. „Og ég er enn í áfalli, í afneitun um að hún sé ekki lengur hér. Þetta leit bara ekki eðlilega út að okkur fannst. Það hvernig hún var staðsett í rúminu. Hún var jafnvel óþekkjanleg, eins og hún hafi orðið fyrir barsmíðum. Þeir þurftu að bera kennsl á hana með því að skoða húðflúrin hennar.“

Fjöl­skylda Nikki er staðráðin í að komast að sann­leikanum.

„Þetta er raun­veruleikinn okkar núna, að lifa án hennar,“ hélt frænka hennar áfram. „Ég veit að við munum ekki fatta þetta strax, ekki fyrr en hátíð­arnar byrja … hún mun ekki ganga inn um dyrnar … Ég hef ekki enn áttað mig á þessu. Ég veit bara að ég elska hana og mun allta elska hana. Ég vil bara að andi hennar og arfleið hennar lifi áfram.“

Aðeins eru um fimm kíló­metrar á milli íbúða þeirra Nichole og Maleesa en lögreglan telur málin tvö ekki tengjast. Yfirvöld segjast rannsaka andlát Maleesu sem morð en andlát Nichole sem „grunsamlegt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.
Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku