Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Aldraður og einfættur faðir Davíðs kemst hvergi að: „Hundskammist ykkar og hefjast handa“

Aldraður og einfættur faðir Davíðs kemst hvergi að: „Hundskammist ykkar og hefjast handa“
Alþing­is­húsið – ekki nota

Davíð Bergmann ritar öfl­ugan pist­ill þar sem hann segir yfir­völdum að taka sig saman í and­lit­inu.

Aldraður faðir Davíðs Bergmann kemst hvergi inn á hjúk­un­ar­heim­ili þrátt fyrir að vera orð­inn 90 ára gam­all. Yfir þessu er Davíð Bergmann skilj­an­lega reiður og skrif­aði hann kröft­ugan pistil þar sem hann segir yfir­völdum til synd­anna.

„Hvar skildi pabbi gamli vera í röð­inni á biðlist­anum að kom­ast inn á hjúkr­un­ar­heim­ili orð­inn 90 ára gam­all, ætli honum end­ist ævin að KOMAST AF ÞEIM LISTA?“ skrifar Davíð um málið.

„Hvað fær pabbi gamli að loknu dags­verki, búinn að skila sínu til sam­fé­lags­ins og vel það. Maður sem hefur aldrei stolið krónu, ekki þurft að vera með kenni­töl­una sína á flótta undan einu né neinu. Alla tíð unnið með tveimur jafn sterkum og aldrei verið í því að naga blý­anta eða flytja speki eða reyna að hafa vit fyrir öðrum. Hann hefur þurft að lemja lífi í sæng­ina út á ball­ar­hafi til að geta lagst til hvílu því hún var frosin, þá nýkom­inn af dekki eftir að hafa verið að berja klak­ann utan af dall­inum svo hann myndi ekki sökkva. Þetta var í kringum 1960, hvort sem hann var til sjós á síðu­tog­urum ver­tíð eftir ver­tíð eða í landi þá vann hann vinnu sem krafð­ist lík­am­legs erf­iðis og útsjón­ar­semi,“ hélt Davíð áfram í pistl­inum sem birt­ist á Vísi.

„Verð­skuldar ekki svona maður að eiga áhyggju­laust ævi­kvöld, tala nú ekki um þegar hann er í lífsloka með­ferð. Lækna­vís­indin geta ekki gert meira fyrir hann í dag en að lina þján­ingar hans með lyfjum. Orðinn 90 ára með þrjár hjarta­lokur virkar af fjórum, æxli djúpt í lunga, krepptur af gigt og fæt­inum styttri vegna við­ur­kenndra lækna­mistaka. Hann finnur enn til drauga­verkja í „fæt­inum“ þó svo að fót­ur­inn hafi verið tek­inn af árið 2012,“ og ljóst sé að pen­ing­ur­inn sé til enda hafi Samherji og Vinnslu­stöðin í Vest­mann­eyjum fengið rúman millj­arð í styrk frá rík­inu í ýmis konar verk­efni.

„Megið þið hafa ævar­andi skömm fyrir það þing­menn og sveit­ar­stjórn­ar­menn að hafa ekki tekið þetta mál­efni af festu og alvöru því hér ríkir neyð­ar­á­stand í mál­efnum aldr­aðra. Þið vitið það að sam­setn­ing þjóðar er þannig að lífaldur hækkar á ári hverju. Með allar þær þarfa­grein­ingar sem þið hafið látið vinna og með alla þessa öldr­unar sér­fræð­inga á ykkar snærum, þá á ekki koma á óvart að hér vanti sár­lega legu­pláss fyrir gamla fólkið okkar. Það er engin afsökun að hafa ekki látið hendur standa fram úr ermum og setja þennan mála­flokk í algjöran for­gang.

Þess vegna þarf að byrja að byggja strax þessi 700 hjúkr­un­ar­rými sem kemur til með að vanta eftir örfá ár á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hund­skammist ykkar og hefj­ast handa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ