Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Var sex vikur í dái: „Ég var fastur í horni baðherbergisins og eldurinn elti mig inn“

Var sex vikur í dái: „Ég var fastur í horni baðherbergisins og eldurinn elti mig inn“
Jelly Boy the Clown Mynd: Facebook

Trúð­ur­inn Jelly Boy the Clown býr á Íslandi ásamt eig­in­konu sinni, Aðal­heiði Broomfield Flosa­dóttur og syni þeirra en árið 2011 var hann hætt kom­inn þegar eldur kvikn­aði í íbúð sem hann dvaldi í.

Þann 10. nóv­em­ber heldur Coney Iceland sirkus­hóp­ur­inn sýn­ingu í Iðnó sem kall­ast Crazy Kinky Coney Iceland en um er að ræða þriggja þátta partý sem er bannað börnum. Í fyrsta part­inum verður matur á borð­stólnum og sirkus­flytj­endur ganga um svæðið og eiga í sam­skiptum við áhorf­endur. Í parti tvö verður sirkus hlið­ar­sýn­ing með kink-þema og svo verður plötu­snúða-danspartý þar sem sirku­slista­menn tvinn­ast inn í veisl­una. Einn af þeim sem stendur að sýn­ing­unni er Eric Broomfield sem notar trúða­nafnið Jelly Boy the Clown. Mannlíf sett­ist niður með honum og ræddi við hann um ást­ina, áföllin og hvernig það er að vera trúður á Íslandi.

Eric í ess­inu sínu.

Upphafið

Eric Broomfield er sirkustrúður frá Banda­ríkj­unum sem flutti til Íslands árið 2020 en hann er giftur íslenskri konu en hún er einnig sirkus-starfs­maður.

„Ég fædd­ist í New York-fylki í smábæ sem heitir Suffern í Rockland-sýslu, við Hudson-ánna, rétt hjá lestar­teinum, árið 1977,“ sagði Jelly um upp­hafið og hélt áfram. „Ég flutti til Phila­delphia í Penn­syl­vaniu árið 1999 og ferð­að­ist um allan heim í sirkus­sýn­ingum sem Jelly Boy the Clown en not­aði Phila­delp­hiu sem mitt heima­svæði.“

The Squidling Brothers

En síðan kom hann til Íslands. „Ég kom svo til Íslands því að ég er ævin­týra­gjarn og auð­vitað kom ég fram í sýn­ingu Burlesque-hóps Mar­grétar Erlu Maack. Svo bjó ég til Squidling Brothers Circus sýn­ingu með Alex Diego, sem við köllum Coney Iceland. Coney nafnið kemur frá skemmti­garði í Brooklyn fyrir nokkrum árum þar sem ég vann sem sverða­gleypir en garð­ur­inn heitir Coney Island. Stað­ur­inn er frægur fyrir frík-sjóv og skemmti­tæki, stað­settur á bryggju við sjáv­ar­síð­una. Ég vann þar heilt sumar og fékk svo þann sem mál­aði aug­lýs­inga­skiltin fyrir sýn­ing­una til að mála aug­lýs­inga­borða fyrir Coney Iceland-sirkus­inn.“

Bruninn

Árið 2011 varð Eric næstum því eldi að bráð er íbúð sem hann svaf í, varð alelda.

„Þetta gerð­ist þriðja júlí árið 2022 í Queens, New York-borg. Ég var nýkom­inn aftur eftir mjög vel heppn­aða ferð með Squidling Brothers og var að vinna sem sverða­gleypið fyrir utan Ripley´s Believe It or Not-safnið á Times Square. Kald­hæðnin í þessu er sú að ég var að nota sverð með inn­byggðum eld­varpa við hand­fangið og var að skjóta eldi á hverjum degi. Ég hafði samt ekk­ert að gera með eld­inn sem kvikn­aði í íbúð­inni sem ég gisti í. Ég var sof­andi í bóka­her­bergi vinar míns þegar hann vakti mig með öskrum um miðja nótt! Eldur breidd­ist um alla íbúð­ina, frá veggjum og upp á loft. Hann hljóp í gegnum eld­inn og sagði mér að elta sig. Þegar hann opn­aði hurð­ina og kom sér út, kom risa­stór eld­hnöttur á móti mér, vegna súr­efn­is­ins. Ég náði að stökkva frá og dans­aði yfir heitt gólfið skó­laus og með ull­ar­bol fyrir and­lit­inu. Ég varði svo augun með hinum hand­leggnum. Ég var fastur í horni bað­her­berg­is­ins og eld­ur­inn elti mig inn. Ég hugs­aði að þetta væri endir­inn og ég sá þrjár mik­il­vægar eft­ir­sjár fyrir augum mér. Ég hafði aldrei farið í Asíu, eng­inn mun vita neitt um mitt líf og ég hef aldrei eign­ast börn og mína eigin fjöl­skyldu. Mér var bjargað af slökkvi­liðs­mönnum en var í dái í sex vikur á spít­ala. Þegar ég útskrif­að­ist af sjúkra­hús­inu og var búinn að jafna mig nógu vel, fór ég aftur ról með Squidling Brothers-sirkus­inn. Ég og bróðir minn fórum um alla Evrópu árið 2012 og svo til Indlands og Japan. Ég var að klára bók um upp­haf mitt sem trúður, elds­voð­ann og ferða­lög mín en bókin verður gefin út næsta vor. Við Heiða giftum okkur árið 2020, þegar ég flutti til Íslands og höfum við síðan eign­ast son­inn Sævar. Þannig að allar deyj­andi eft­ir­sjár mínar hafa nú verið upp­fylltar!“

Ástin og brotin bein

Og svo hitti Eric ást­ina. „Ég hitti Heiðu á Coney Iceland sýn­ing­unni en hún var þar að taka ljós­myndir og ég féll strax fyrir henni. Það var eins og ég hefði verið sleg­inn í and­litið af ósýni­legum lófa og ég átt­aði mig á að ekki yrði aftur snúið. Það var þannig að eftir að við höfðum hist á fyrstu Coney Iceland-sýn­ing­unni á Gauknum, voru bara tveir dagar í að ég færi frá land­inu. Þannig að við hitt­umst á Public House og fengum okkur mat og spjöll­uðum. Seinna þann dag, eftir loka­sýn­ing­unni með Margréti Erlu Maack, bauð Heiða okkur úr frík-sýn­ing­unni heim til sín í ljóða­lestur og sveppate. Auðvitað varð ég að fara en ég var sá eini sem vildi fara því allir voru svo þreyttir og vildu pakka niður fyrir ferða­lagið dag­inn eftir. Ég vildi ekki fara úr íbúð­inni en þurfti að ná flug­fél dag­inn eftir. Ég bauð henni að túra með okkur í Squidling Brothers næsta mánuð á eftir en við ferð­uð­umst frá Denver til Los Angeles og svo til New Orleans yfir Hrekkja­vök­una. Hún kom með og ferðin var frá­bær fyrir okkur. Hún var kannski ekki eins frá­bær fyrir hina þrjá Squidlingana sem sökn­uðu allir kærast­anna.“

Eric og Heiða

En svo kom áfallið.

„Stuttu eftir að túrnum lauk, féll ég af þaki húss sem ég var að vinna í, braut báðar fæt­urnar og brákaði á mér hrygg­inn! Sjö árum eftir brun­ann var ég aftur kom­inn á spít­ala. Heiða kom til að sjá um mig og í jan­úar fór ég að heim­sækja hana en ég var í hjóla­stól. Ég var hjá henni í sex vikur. Þetta var í lok 2018 og byrjun 2019. Í byrjun árs 2020 hófum við stóran túr um Evrópu en við byrj­uðum á Íslandi. Við fórum til  Þýska­lands, Hollands, Frakk­lands, Spánar , Ítalíu, Slóveníu, Aust­ur­ríki og Póllands. Heiða hitti okkur þegar við komum til Ítalíu. Þegar túr­inn var búinn var Covid-heims­far­ald­ur­inn kom­inn á fullt skrið. Við vorum með Covid-brúð­kaup, seinna það ár með aðeins átta gestum.

Kinký-sirkussýning

Eric segir að nú sé kom­inn tími til að skemmta sér en Coney Iceland verður með all sér­staka sýn­ingu þann 10. nóv­em­ber en hún er bönnuð börnum. „Sýningin er í Iðnó og er metn­aða­fyllsta sýn­ing okkar til þessa. Heiða er að fara með okkur á næsta stig með þessum við­burði. Þetta verður gagn­virk upp­lifun með mat, ráf­andi flytj­endum sem til­búnir eru að bregða á leik einn á móti einum með áhorf­endum. Boðið verður upp á Sirkus-glæfra­brögð, galdra, blætis-leiki, drag, burlesque, sverða­kyngja og eld­list.“

Heiða og Eric á sviði

Eftir sýn­ing­una verður svo danspartý með plötu­snúði en þar verða líka óvæntar upp­á­komur. Sýningin er styrkt af Losti.is.

Trúður á Íslandi

Að lokum spurði blaða­maður Mannlífs Eric hvernig það sé að vera trúður á Íslandi.

„Það hefur verið svo­lítið krefj­andi að vera trúður á Íslandi því ég er van­ari mun stærri borgum þar sem finna má fullt af sýn­ingum, öllum stundum. En þetta hefur verið mjög gef­andi því ég held að fólk kunni að meta skrítnar sýn­ingar, sem ég er meira í hér á landi, því fólk er ekki vant því hér. En svo hefur það verið stór­kost­legt að verða pabbi í fyrsta skiptið og það er gott að hægja aðeins á sér til að ein­blína á son minn en hann hefur verið að læra að tala og ganga. Og nú er hann far­inn að hlaupa!“

Heiða og Jellyboy the Clown.

Hægt er að kaupa miða á sýn­ing­una

hér

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ