Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gæti orðið heitavatnslaust í Reykjanesbæ: „Maður býr sig und­ir það versta en von­ar það besta“

Gæti orðið heitavatnslaust í Reykjanesbæ: „Maður býr sig und­ir það versta en von­ar það besta“
Reykja­nes­bær

Þor­vald­ur Þórðar­son pró­fess­or í eld­fjalla- og berg­fræði segir í sam­tali við mbl.is að lík­leg stað­setn­ing nýs goss sé í Illa­hrauns­gígum en þeir eru staddir um það bil einum kíló­metra frá orku­ver­inu í Svarts­engi og Bláa lón­inu. HS veitur og HS orka vinna að aðgerð­ar­á­ætlun sem send verður yfir­völdum svo tryggja megi lág­marks kynd­ingu á svæð­inu. „Maður býr sig und­ir það versta en von­ar það besta,“ seg­ir Kjart­an Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæj­ar í sam­tali við mbl.is.

„Við erum komin í það við­bragð að rýma Svarts­engi, Bláa lónið og Grinda­vík ef við höfum ein­hvern grun um að gos sé í aðsigi. Ekki bíða þar til gos er hafið,“ sagði Þor­valdur í sam­tali við Vík­ur­fréttir.

„Ef gossprunga opn­ast á þess­um slóðum þá eru bæði Svarts­engi og Bláa lónið ber­skjölduð. Menn eru að hugsa um hvernig hægt yrði að vernda það svæði og leggja leiði­garða þannig að hægt verði að leiða hraunið frá þess­um innviðum,“ segir Þor­valdur í sam­tali við mbl.is og bendir á að kvikan myndi renna mjög fljótt yfir vegna efna­sam­setn­ingu hennar.

„Við vit­um að þeir geta farið mjög hratt yfir í upp­hafi og þótt upp­hafs­fas­inn yrði ekki lengri en 15 mín­út­ur eða klukku­stund, þá geta slík hraun runnið með hraða sem nem­ur nokkr­um tug­um kíló­metra á klukku­stund,“ seg­ir Þor­vald­ur.

Gríðarleg áhrif á íbúa

Virkj­unin á Svarts­engi sér íbúum í Reykja­nesbæ fyrir heitu vatni og að hluta raf­magni. Komi til þess að virkj­unin yrði fyrir eld­gosi getur það haft gríð­ar­leg áhrif á íbúa svæð­is­ins sem reiðir sig á hita­veit­una til að kynda húsin sín.

Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ segir í sam­tali við mbl.is: „Ef að það dett­ur út þá verður kalt í hús­um á vetr­ar­mán­uðum og mun hafa mik­il áhrif á okk­ur,“ seg­ir Kjart­an.

„Mér er sagt að það væri hægt að bjarga neyslu­vatni, köldu vatni, í ein­hverj­um mæli, þó ekki í sama magni og það er í dag. Það þyrfti vænt­an­lega að skerða það eitt­hvað,“ segir Kjartan og að hann voni það besta. HS veitur og HS orka vinna nú að aðgerð­ar­á­ætlun sem send verður yfir­völdum svo tryggja megi lág­marks upp­hitun á svæð­inu.

„En gos á svæð­inu getur líka eyði­lagt bor­holur HS í Svarts­engi, en þær sjá að mestu um allt heitt vatn sem notað er á Suð­ur­nesjum.

Raf­magns­fram­leiðsla í Svarts­engi leggst þá af, sem mun leiða af sér að gera má ráð fyrir að skammta þurfi raf­magn á veitu­svæð­inu og ef Suð­ur­nesja­lína skadd­ast vegna hraun­rennslis verður það óum­flýj­an­legt. Slíkt hefur áhrif á alla íbúa Suð­ur­nesja, heim­ilin verða ljós- og raf­magns­laus, ekki er hægt að hlaða raf­magns­bíla og ekki er hægt að fylla á bensín og dísel­bíla, því bens­ín­stöðv­arnar verða jú líka raf­magns­lausar,“ bendir Garðar Lárusson rekstr­ar­ráð­gjafi og sér­fræð­ingur í raf­orku­málum á, í færslu á Facebook.


Tengdar fréttir:

Hætta á eld­gosi í dag: „Ansi hrædd­ur um að við séum kom­in ná­lægt því“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ