Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vegagerðin ætlar að strika aftur yfir Grindavík: „Mjög mikilvægt að við séum með rétta vegvísun“

Vegagerðin ætlar að strika aftur yfir Grindavík: „Mjög mikilvægt að við séum með rétta vegvísun“
Smári tekur yfir­strik­un­ina í burtu. Mynd: Facebook

Smári Þór­ólfs­son björg­un­ar­sveit­ar­maður og Grind­vík­ingur tók upp á því að fjar­lægja yfir­strik­anir Vega­gerð­ar­innar á nafni bæj­ar­ins á vega­skiltum. Vega­gerðin ætlar að strika aftur yfir bæj­ar­heitið.

Vega­gerðin strik­aði víða yfir Grinda­vík.

Björg­un­ar­sveit­ar­manninnum Smára Þór­ólfs­syni er hampað sem hetju af fjöl­mörgum ef marka má við­brögð fólks á Facebook við færslu hans þar sem hann birtir myndir af sér skafa yfir­strikun Vega­gerð­ar­innar á bæj­ar­heit­inu Grinda­vík á vega­skiltum. „Grinda­vík er enn á sínum stað og verður það von­andi um ókomna tíð. Við látum ekki teipa okkur af kort­inu. Áfram Grinda­vík­ingar og lengi lifi fal­lega Grinda­víkin okkar,“ skrif­aði Smári við ljós­mynd­irnar en við­brögðin hafa bara verið jákvæð en fjöldi manns hefur hrósað honum í athuga­semda­kerf­inu og hefur færsl­unni verið deilt 21 sinnum þegar þessi frétt er rituð. Þá hafa hátt í þrjú­hund­ruð manns líkað við hana.

Pétur Matth­í­as­son, upp­lýs­inga­full­trúi hjá Vega­gerð­inni segir stofn­un­ina ætla sér að strika aftur yfir Grinda­vík. „Já, já við setjum þetta upp aftur,“ sagði Pétur í sam­tali við Mannlíf og hélt áfram. „Það er mjög mik­il­vægt að við séum með rétta veg­vísun.“ Aðspurður hvort Vega­gerðin hyggð­ist kæra Smára svar­aði Pétur: „Það hefur bara ekki verið rætt.“

Lög­reglu­menn eru á öllum póstum nærri Grinda­vík en Pétur segir að skiltin séu víðar en alveg við bæinn. „Veg­vís­arnir eru ekki bara þar sem lög­reglu­póst­arnir eru, þeir eru víðar í vega­kerf­inu þannig að við erum einmitt að forða því að til dæmis erlendir ferða­menn, þeir þurfa bara að vita að það er ekki fært til Grinda­víkur. Með því að líma yfir þá sést Grinda­vík en þá sjá menn að það er ekki fært.“

Pétur segir að Vega­gerðin hafi fullan skiln­ing á þessu athæfi Smára. „Við skiljum alveg að þetta er við­kvæmt fyrir Grind­vík­inga, okkur finnst það alveg eðli­legt og kippum okkur ekk­ert upp við þetta í sjálfu sér.“

Mannlíf reyndi að ná sam­bandi við björg­un­ar­sveit­ina Þorbjörn frá Grinda­vík en þar var blaða­manni tjáð að eng­inn hjá Þorbirni hefði tíma til að ræða við fjöl­miðla, enda sjálf­sagt nóg að gera á þeim bænum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ