Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Geir Ólafsson.

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson. Vil­hjálmur Guð­jóns­son verður hljóm­sveit­ar­stjóri en hann útsetti lögin á sýn­ing­unni ásamt sjálfum Quincy Jones, Þóri Bald­urs­syni og Don Randi. Sýningar verða fimm: 29. og 30. nóv­em­ber og 1. 2. og 3. des­em­ber.

Goðsögn mætir

„Don Randi er nátt­úr­lega fyrir löngu orð­inn „legend“ í banda­rískri tón­list­ar­sögu og hann var í The Wrecking Crew sem var hljóm­sveit sem tók upp músík fyrir alla sem voru stjörnur á 6., 7 og 8. ára­tugnum svo sem Frank Sinatra til Michael Jackson. Hann er búinn að spila inn á fjölda platna og 300 af þeim hafa verið í 1. sæti. Hann er ennþá í fullu fjöri orð­inn 85 ára gam­all en hann velur unga og góða menn með sér til Íslands til þess að spila með okkur og þetta eru stór nöfn sem eru að koma.

Herbert heiðursgestur

Ég verð með tölu­vert af gesta­söngv­urum í ár, bæði með reynda og óreynda söngv­ara. Ég hef alltaf verið að gefa efni­legum söngv­urum tæki­færi. Ég verð til dæmis með Dag­björtu Rúríks og Birnu Berg og Önnu Margréti; þetta eru stúlkur sem eru búnar að vera að mennta sig í músík og þrá ekk­ert heitar en að láta ljós sitt skína og er ótrú­lega gaman og magnað að fá að vera þátt­tak­andi í því að geta tekið þátt í því að fá að byggja upp sam­fé­lagið með því að gefa fólki tæk­færi. Maður veit aldrei hvert það leiðir fyrir þann sem tekur þátt í því. Svo verð ég með Höllu Vil­hjálms sem er mjög reynd söng­kona, Maríu Magn­ús­dóttur og Vigdísi Ásgeirs­dóttur sem eru topp­söng­konur og hámennt­aðar. Heið­urs­gest­ur­inn verður Herbert Guð­munds­son; það er nátt­úr­lega geggjað og það er frá­bært að fá Hollywood-band til að spila hans betri lög. Þetta verður bara dásam­legt.“

Erfitt að selja

Sýningin verður eins og áður sagði haldin í sjö­unda skipti og jafn­framt það síð­asta hér á landi – alla­vega í bili. „VISA í Kólumbíu heldur sýn­ing­una á næsta ári úti í Kólumbíu,“ segir Geir en eig­in­kona hans er þaðan og þar eiga þau annað heim­ili. „Það hefur verið mjög erfitt að selja á þetta og ég get ekki verið að standa í því að kasta perlum fyrir svín eins og sumir segja. Ég tek svona til orða; við erum að búa til frá­bæra sýn­ingu sem hefur fengið frá­bæra dóma en ein­hvern veg­inn hefur þetta ekki náð til mark­að­ar­ins. Það er bara þannig; því miður. Það er ansi hart ef þú ert með stór­fyr­ir­tæki að kaupa hund­ruði miða á eina tón­leika.

Mikill metn­aður er lagður í Las Vegas Christmas Show.

Ég er að berj­ast í þessu og ég hef lagt mig í líma við að gera þetta flott og þetta er glæsi­legt. Salurinn er skreyttur og fólk fær þriggja rétta mál­tíð og það er lagt svo mikið í þetta. Ég er stoltur af þessu verk­efni. Ég er stoltur af því að hafa gefið frá­bærum söngv­urum tæki­færi sem hafa svo nýtt það áfram og ég er stoltur af að vinna með öllu þessu frá­bæra fólki sem hefur stutt við bakið á mér. Ég er þakk­látur öllum sem hafa keypt miða á sýn­ing­una. Og ég er stoltur af fólk­inu sem seg­ist koma ár eftir ár vegna þess að þetta er aldrei eins. Ég er bara þakk­látur fyrir þetta allt saman. Ég hefði aldrei getað gert þetta nema vegna fólks­ins sem er í kringum mig hvort sem það eru hljóð­færa­leik­arar, söngv­ar­arnir eða gest­irnir. Það er bara ekki hægt að gera þetta öðru­vísi.“

Geir er spurður um upp­á­hald­s­jóla­lagið. „Það er nýja jóla­lagið mitt sem heitir Christmas Blues og er eftir Richard Scobie.“

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu