Björn Leví líkir ungum Sjálfstæðismönnum við gamla íhaldskennarann í Gaggó Vest.
Ungir Sjálfstæðismenn birtu eitthvað sem virðist eiga að vera vísa, í story hjá sér á Facebook, þar sem þeir segjast vona að Píratar hverfi af þingi, rétt eins og Björt Framtíð. Björt Framtíð þurrkaðist út af þingi á sínum tíma eftir að flokkurinn sleit samstarfi sínu við Sjálfstæðisflokkinn eftir að ærumálið kom upp.
Björn Leví birti vísuna og gerði góðlátlegt grín að henni, með því að vitna í Gaggó Vest:
„Kennari:
Kond uppað töflunni hvað sem þú heitirþú minnir á púk’a- og öfgasveitir.Af hverju er haus á herðum þínum?Taktu nú vel eftir orðum mínum:Þú verður aldrei annað en rukkari, rónieða þaðan af verra,rugguhestur og uxakerra.Ó kennari minn þá kveð ég þig númeð kurt og pi og segi I love you.Ich Liebe dich, Je taime, ég elska þig.Er nokkur von til þess að þú elskir mig?—-Einhverra vegna minnir þessi ósk ungra sjálfstæðismanna mig á þennan texta úr Gaggó vest. Píratar að fara í pirrurnar á gamla íhaldskennaranum …“
Þorbjörn nokkrum fannst lítið til vísunnar koma og skrifaði athugasemd: „Þau þurfa a.m.k. að verða sér úti um betri hagyrðing…“
Þessu svarar ljóðskáldið Ingunn Snædal, sem eðli málsins samkvæmt veit sitthvað um kveðskap.: „Úff, já. Þetta er hroðalega vont.“
Hér má sjá vísuna:
































Athugasemdir