Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ofurhlauparinn Sigurjón Ernir: ,,Kólesteról er ekki óvinurinn“

Ofurhlauparinn Sigurjón Ernir: ,,Kólesteról er ekki óvinurinn“
Sigurjón Ernir Mynd: Trausti Hafsteinsson

Nýjasti gestur Sölva Tryggva­sonar í hlað­varps­þætti hans er ofur­hlaupar­inn og frum­kvöð­ull­inn Sigurjón Ernir Sturlu­son. Í við­tal­inu segir hann frá því að heilsa hans hafi hrakað mikið þegar hann gerði til­raun með að borða sam­kvæmt ráð­legg­ingum land­læknis. Alla jafna borðar Sigurjón hreina fæðu­beint frá nátt­úr­unni, en gerði tveggja vikna til­raun þar sem hann lét ráð­legg­ingar land­læknis ráða för:

„Ég gerði skemmti­lega til­raun þar sem ég tók tvær vikur og snar­breytti mat­ar­ræð­inu og fór því miður að borða eftir ráð­legg­ingum land­læknis. Ég sem íþrótta­maður á að fá 70 pró­sent af orkunni minni frá kol­vetnum sam­kvæmt því. Kolvetni vekja lík­amann og búa til sveiflur í blóð­sykri. Þannig að ég náði ekki að leggja mig á dag­inn eins og ég er vanur og var vakn­andi á næt­urnar og var kannski vak­andi í 2 tíma og náði mér ekki niður. Ég setti á mig síles­andi blóð­syk­ur­s­mæli til að sjá hvað væri í gangi og þá sá ég hvað var í gangi í lík­am­anum. Blóð­syk­ur­inn var í miklu ójafn­vægi og ég var í raun aldrei í fastandi ástandi og þess vegna gat lík­am­inn ekki hvílst vel. Simona kærastan mín horfði bara á mig fjara út eftir því sem dag­arnir liðu. Ég gat ekki ein­beitt mér í tölvu­vinnu, lang­aði ekki lengur að æfa og átti mjög erfitt með end­ur­heimt eftir æfingar. Eins sorg­legt og það er, þá eru þetta ráð­legg­ingar  bæði fyrir almenn­ing og íþrótta­fólk. Ég pass­aði mig að fara alveg eftir leið­bein­ing­unum og var að borða brauðið, hrís­grjónin, kart­öfl­urnar, Cheerios og fleira. Ef þú ert að borða beint frá nátt­úr­unni lítur það mat­ar­ræði allt öðru­vísi út” segir Sigurjón, sem telur löngu tíma­bært að breyta þessum ráð­legg­ingum:

„Munurinn á svefn­gæðum, stöðu insúl­íns, þrí­g­lýser­íði í blóði og fleiri hlutum var í raun slá­andi. Þrí­g­lýserið fór úr 0,6 í 1,6 á tveimur vikum. Fitu­brennsla í álags­prófi hjá Greenfit fór úr 90% niður í 59% á þessum tveimur vikum og svo fram­vegis. Um leið og ég skipti svo aftur yfir í hreint fæði beint frá nátt­úr­unni fór lík­ams­starf­semin aftur í jafn­vægi. Ég er alls ekki að segja að það þurfi allir að borða eins og ég, en það er orðið mjög aug­ljóst að þessar ráð­legg­ingar eru veru­lega úreltar og eru ekki til þess fallnar að hámarka heilsu. Við erum hönnuð til að borða nátt­úru­lega fæðu og það er alveg aug­ljóst að for­feður okkar voru ekki að háma í sig kol­vetni dag­inn út og inn.”

Í þætt­inum ræða Sölvi og Sigurjón um lífs­stíls­sjúk­dóma og tengsl þeirra við breytt mat­ar­ræði á Vest­ur­löndum, þar sem fita var gerð að versta óvin­inum:

„Það er eitt­hvað rangt við þá hug­mynda­fræði að fitur séu óvin­ur­inn og að hátt kól­esteról sé stór­hættu­legt. Mér líður aldrei betur en þegar kól­ester­ólið mitt er hátt. Ég hef ekki orðið veikur þannig að ég liggi í rúm­inu í 5-6 ár og ég hef allan þann tíma verið með hátt kól­esteról. Líkaminn fram­leiðir kól­esteról og við höfum horft fram­hjá hlut­verki þess í lík­ams­starf­sem­inni. Ef ein­stak­lingur er allt of lágur í kól­ester­óli er eig­in­lega öruggt að við­kom­andi er ekki við góða heilsu. Oxað kól­esteról er klár­lega ekki gott fyrir okkur og það eykur bólgu­myndun. Öll fita er ekki eins. Ég veit að ég er ekki læknir, en ég hef kafað ansi djúpt í þetta. Ég hrein­lega trúði því ekki að ég væri að fara að deyja af því að ég væri með hátt kól­esteról og öll mín líðan síð­ustu ár gengur þvert á það. Það átti að setja mig á lyf, en ég vildi það ekki, en bað um að fá skoðun hjá Hjarta­vernd þar sem ég fékk skugga­efni og kalk­stuð­ull var mældur. Þá sérðu hvað er að ger­ast í æðunum og hjá mér voru engar stíflur og allt tand­ur­hreint. Svo hef ég séð það sama hjá fleiri ein­stak­lingum. Hátt kól­esteról, en skín­andi góðar æðar. Nú eru að koma fram fleiri og fleiri rann­sóknir sem benda til þess að bólgu­myndun og sykur séu vanda­málið, en ekki hátt kól­esteról.”

Sig­ur­jón, sem rekur lík­ams­rækt­ar­stöðvar og vinnur við að aðstoða fólk við allar hliðar heilsu, seg­ir að drif­kraft­ur­inn komi ekki síst frá löng­un til að geta hjálpað öðru fólki. Með því að æfa sig í að leggja mikið á eig­in herðar geti maður aðstoðað aðra:

„Það sem ger­ist er að á end­an­um leit­ar fólk til þín ef það finn­ur að þú ert sterk­ur. Við höfum gleymt því að hugsa um ná­ung­ann og ekki síst fólkið sem byggði þetta land upp. Við erum hætt að leggja hluti á börn og ung­linga sem hjálpa þeim að verða sterk­ir ein­stak­ling­ar. Það getur auð­vitað verið þunn lína hvenær farið er yfir strikið, en börn sem ólust upp í sveit á Íslandi þurftu að ganga í alls kyns verk sem hjálp­uðu þeim að axla ábyrgð og læra á lífið. Að mínu mati erum við farin að ala upp ein­stak­linga í dag sem kunna  of lítið á lífið þegar þau eru orðin full­orðin. Börn­um og ung­ling­um líður ekki illa í öguðu um­hverfi. Þvert á móti verða til alls kon­ar vanda­mál ef það verður of mikið aga­leysi. Það er eng­um hollt að lífið sé alltaf þægi­legt og auð­velt. Við lifum í þeim heimi í dag að allt er ótrú­lega þægi­legt og við þurfum ekki lengur að hafa reglu­lega fyrir hlut­unum. Það að þjást og líða illa er ekk­ert að fara drepa þig.“

Sig­ur­jón seg­ir í þætt­in­um frá því hvernig ástríða hans fyr­ir hreyf­ingu byrj­aði strax þegar hann var barn:

„Ég ólst upp við aðstæður sem voru á köfl­um mjög krefj­andi og ég fann fljótt að hreyf­ing var mitt meðal. Þegar eitt­hvað bját­aði á vissi ég að mér myndi líða bet­ur ef ég myndi hreyfa mig. Ég gerði þessa teng­ingu strax sem barn og not­aði hreyf­ingu bein­lín­is til að slá á van­líðan. Hvort sem það var körfu­bolt­inn sem ég æfði eða önn­ur hreyf­ing. Ég ákvað strax á unga aldri að axla mikla ábyrgð og vildi bera ábyrgð á bæði mér og bróður mín­um,” segir Sigurjón, sem hefur vakið athygli fyrir ótrú­legar þrekraunir þegar kemur að hlaupum:

„Þegar maður bygg­ir sig upp í ár­araðir til að þola hluti, er ým­is­legt mögu­legt. Maður bygg­ir hægt og ró­lega bæði upp lík­amann og haus­inn til að þola meira og meira. En það er ekki hægt að fara alla leið á hausn­um ef lík­am­inn fylg­ir ekki og öf­ugt. Lengsta hlaupið mitt er 160 kíló­metr­ar, en mesta áskor­un­in var hlaup í Frakk­landi sem var rúm­lega 150 kíló­metr­ar með meira en 9 þús­und metra hækk­un. Það sem ger­ist í of­ur­hlaup­um eins og þess­um er að maður fer í gegn­um all­an skal­ann af til­finn­ing­um og stund­um meira en maður vissi að væri hægt. Fólk lær­ir jafn­vel meira á sjálft sig í einu svona hlaupi en á mörg­um árum í líf­inu sjálfu. Þú ferð í gegn­um allan til­finn­inga­skal­ann, lær­ir að koma þér út úr aðstæðum og þar fram eft­ir göt­um.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Sigurjón og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ