Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðmundur hafnar því að Tómas tengdasonur hans hafi verið myrtur: „Hann er veginn“

Guðmundur hafnar því að Tómas tengdasonur hans hafi verið myrtur: „Hann er veginn“
Guð­mundur Sigurður er faðir Guð­bjargar Svövu sem lést 20. októ­ber síð­ast­lið­inn. Myndin er sam­sett

„Ég veit ekki nákvæm­lega hvenær dóttir mín deyr, en hún deyr á mjög svip­uðum tíma og konan mín, Anika,“ segir Guð­mundur Sigurður Guð­munds­son í þriðja og síð­asta við­tal­inu hjá Reyni Trausta­syni  í Sjó­ar­anum.

„Mjög mikið áfall,“ segir Guð­mundur en fyrir rétt rúmum þremur mán­uðum síðan deyr dóttir hans, Guðbjörg Svava Guð­munds­dóttir,  og Anika kona Guð­mundar. Þann 20. októ­ber 2023.

Lára dóttir Guð­mundar var komin til að aðstoða föður sinn í kjöl­far and­láts Aniku og til­kynna frá­fallið.

„Svo ætl­uðum við að setja þetta út á Facebook að kona mín væri dáin […] svo um leið og við opn­uðum á Facebook, þá er það fyrsta sem ég sé er mynd af dóttur minni,“ segir Guð­mundur sem félagi hans hafði lagt út til að til­kynna honum að dóttir hans væri látin.

Guð­mundur Sigurður og Lára dóttir hans kom­ast að því þar og þá að Guðbjörg Svava er dáin.

„Við héldum að þetta væri eitt­hvað djók fyrst,“ segir Guð­mundur sem hringir í kjöl­farið í félaga sinn sem birti mynd­ina. „Nei, nei hún var dáin. Sá sem hún var í heim­sókn hjá hafði hringt í Kidda og Kiddi hafði sett þetta út á Facebook-ina,“ útskýrir Guð­mundur sem biður Kidda um fjar­lægja færsl­una.

Eftir svolitla umhugsun ákveður Guð­mundur að draga bón sína til baka og segir: „Ég sá að þetta var ágæt­lega orðað hjá honum, þannig lagað. Svo ég sagði við Kidda að leyfa þessu að vera þarna áfram – Ekki taka þetta í burtu.“

„Þetta var rosa­legt áfall. Rosalegt áfall fyrir mig.“

Guðbjörg Svava hafði lengi barist við fíkn og hafði gengið í gegnum miklar hörm­ungar.

„Já og ekki batn­aði það að eig­in­maður hennar, Tómas Waagfjörð, gekk í skrokk á henni,“ segir Guð­mundur Sigurður.

Reynir bætir inn að hann Tómas hafi verið myrtur.

Guð­mundur grípur fram í og segir:

„Ég myndi ekki segja að hann hafi verið myrtur, hann er veg­inn.

Steinþór Ein­ars­son, vinur Guð­bjargar Svövu, var í kjöl­farið dæmdur í átta ára fang­elsi fyrir morðið á Tómasi, í hinu svo kall­aða Ólafs­fjarð­ar­máli. Steinþór bar allan tím­ann fyrir sig sjálfs­vörn.

Guð­mundur Sigurður er algjör­lega ósam­mála þeim dómi sem Steinþór hlaut.

„Miðað við hvernig hann [innsk. blm. Tómas] hafði farið með dóttur mína og hvernig mann­gerð hann var og hvernig aðstæður voru þegar hann kemur þarna æðandi inn. Hann var búinn að und­ir­búa þetta í langan tíma. […] ætlun hjá honum var að myrða Steinsa, eins og ég kalla hann,“ segir Guð­mundur. Hann seg­ist hafa hugsað ef þessi atburður væri færður yfir á tíma vík­ing­anna og/eða Íslend­inga­sagn­anna:

„Þá hefði þetta verið hetju­dáð.“

Guð­mundur segir að sér hafi verið kennt það í skóla að þegar vík­ingar voru að kjálst og drápu hvorn annað, þá voru þeir álitnar hetjur.

Áskrif­endur að efn­isveitu Mannlífs geta séð við­talið í heild sinni hér

Hægt er að kaupa áskrift hér – Mán­að­ar­legt áskrift­ar­gjald er 1460 krónur .

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ