Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjölmenni á samstöðufundi með Palestínu á Héraði: „Sættum okkur ekki við aðgerðarleysi stjórnvalda“

Fjölmenni á samstöðufundi með Palestínu á Héraði: „Sættum okkur ekki við aðgerðarleysi stjórnvalda“
Fjöl­mennt var á fund­inum. Mynd: Aðsend

Sam­stöðu­fundur með Palest­ínu var hald­inn á Egils­stöðum í dag.

Þó nokkur fjöldi mætti á sam­stöðu­fund með Palest­ínu við Tehúsið á Egils­stöðum en í byrjun safn­að­ist fólk saman við Egils­staða­kirkju og gengu svo í gegnum bæinn og námu staðar hjá Tehúsinu, þar sem fund­ur­inn fór fram, líkt og áður segir.

Frá sam­stöðu­göng­unni

Árni Frið­riks­son var fund­ar­stjóri en auk hans hélt Sig­ur­laug Björns­dóttir Blöndal ræðu á fund­inum og tón­list­ar­menn­irnir Máni og Öysteinn Gjerde tóku lagið.

Krafist var vopna­hlés strax á fund­inum.
Öysteinn Gjerde og Máni


Kröfur fund­ar­ins voru eft­ir­far­andi:

Fund­ur­inn skorar á íslensk stjórn­völd að stíga fast niður fæti á móti ógn­ar­stjórn Benja­míns Net­anja­hús og geri ský­lausa kröfu um Vopnahlé strax!

Fund­ur­inn krefst þess að íslensk stjórn­völd nái strax í þá ein­stak­linga sem enn hefur ekki verið bjargað frá Gaza og hafa nú þegar fengið dval­ar­leyfi hér á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar.

Fund­ur­inn tekur undir áskorun Amnesty til Katrínar Jak­obs­dóttur um að tryggja að ákvörðun um að frysta greiðslur til Palest­ínu­flótta­manna­að­stoð­ar­innar verði snúið við hið snarasta.

Hér fyrir neðan má sjá brot úr ræðu Árna:

„Árið 1973 var gefin út bók eftir banda­ríska rit­höf­und­inn, Ursulu Le Guin, sem inn­hélt meðal ann­ars smá­sög­una The Ones who Walk Away from Omelas, eða „Þau sem yfir­gefa Omelas“ sem er senni­lega hennar þekktasta smá­saga. Sagan fjallar um borg­ina Omelas þar sem öll eru ham­ingju­söm, öll lifa sæld­ar­lífi, öll njóta allra lífs­ins lystisemda, þ.e. öll nema eitt barn. Vegna þess að til þess að við­halda þessu útópíska sæld­ar­lífi þarf að geyma eitt barn­anna niðri í kjall­ara þar sem það hýr­ist klæða­lítið í eigin skít og stöku sinnum birt­ast menn sem sparka í það á meðan fyllt er á matar og vatns­dall­inn. Þegar ham­ingju­sömu börnin í Omelas eru orðin nógu stór er þeim sagt frá barn­inu og farið í skoð­un­ar­ferð niður í kjall­ara og ég ætla að þýða hérna nokkrar línur úr sög­unni: „Það er alveg sama hversu vel málið hefur verið útskýrt fyrir þeim, þessir ungu áhorf­endur verða alltaf fyrir áfalli og finna fyrir ógleði við þessa sýn. Þau finna fyrir við­ur­styggð, sem þau héldu sig hafin yfir. Þau finna fyrir reiði, hneykslan, van­mætti, þrátt fyrir allar útskýr­ing­arnar. Þau vilja gera eitt­hvað fyrir barnið. En það er ekk­ert sem þau geta gert.“

Það er hægt að túlka þessa sögu á marga vegu, en í dag fjallar hún í mínum huga um þjóð­ar­morðið í Palest­ínu. Barnið í kjall­ar­anum er Gaza-svæðið. Ham­ingju­sama fólkið sem getur því miður ekk­ert gert er restin af heim­inum. Og því miður trónir Evrópa þar á toppnum. Og það er með öllu óskilj­an­legt hvernig Evrópa, í skugga Banda­ríkj­anna, leyfa þessum hörm­ungum að við­gang­ast.

En sagan heitir “Þau sem yfir­gefa Omelas”, það eru þau sem geta ekki sætt sig við þján­ingu ann­arra, jafn­vel þó að lífið sé að mörgu leyti gleði og dásemd. Það eru hetjur eins og íslensku sjálf­boða­lið­arnir, kon­urnar sem eru búnar að bjarga og eru enn að bjarga Palest­ínu­fólki á meðan rík­is­stjórn okkar gerir ekk­ert nema í mesta lagi vinnur að því að herða komu­tak­mark­anir flótta­fólk og auka á útlend­inga­andúð í boði utan­rík­is­ráð­herra. Svo er það fólk eins og við sem að minnsta kosti sýnum að okkur er ekki sama. Við sættum okkur ekki við aðgerð­ar­leysi stjórn­valda á meðan að barna­morð og þjóð­ar­morð eru framin í beinni útsend­ingu. Og við sættum okkur ekki við að að sveit­ar­fé­lagið Múlaþing taki þátt í þess­ari útlend­inga­andúð með því að sam­þykkja nýjar fána­leið­bein­ingar gagn­gert til að losna við Palest­ínska fán­ann af fána­stöng félags­heim­il­is­ins Herðu­breiðar á Seyð­is­firði. Við kjósum að yfir­gefa Omelas. Ég á vini sem hafa sagt: „Við getum ekk­ert gert.“ En það er svo margt sem við getum gert. Við getum með sam­stöðu­fundum eins og þessum mót­mælt yfir­stand­andi ástandi, mót­mælt and­vara­leysi stjórn­valda og sýnt að okkur er ekki sama.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil