Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Myndaði furðuljós á himni: „Hvað í ósköpunum var ég að sjá?“

Fallegt er það!
Fallegt er það! Mynd: Rúnar Freyr Júlíusson

Rúnar Freyr Júlíusson, leið­sögumaður hjá Geo Travel. náði mögnuðum ljós­myndum af furðu­ljósi á himnum í gærkvöldi.

Leið­sögu­maðurinn Rúnar Freyr Júlíusson rak augun í stór­furðuleg ljós á himni nærri Mývatni, þar sem hann var að stíga úr út bíl sínum eftir norðurljósa­skoðun.

Skilj­an­lega vissi Rúnar Freyr ekk­ert hvað hann sá.

„Hvað í ósköpunum var ég að sjá?“ skrifaði Rúnar Freyr inni á Facebook-grúppuna Norðurljósa­vaktin og birti þrjár ljós­myndir af furðu­ljósum á himni. Og hélt áfram:

„Myndir teknar á 3ja og 10 sekúndna shutter klukkan 01:03 í Mývatns­sveit. Var bjart og grænn blær á þessu með berum augum. Leit í raun út eins og spírall af norður­ljósum. Hvarf á bakvið sjóndeildar­hringinn til Norð­austurs.“

Stór­kost­leg sýn.

Svarið er annað en margir hefðu haldið því ekki náðust þarna ljós­myndir af geimverum, heldur af eldflaug SpaceX geimflaugafyrir Elon Musk, sem var að losa eldsneyti. Sævar Helgi Björnsson, eða Stjörnu-Sævar eins og hann er oftast kallaður, birti ljós­myndir Rúnars Freys á Facebook-grúppuna Stjörnu­fræði­vefurinn og útskýringu á fyrirbærinu:

„Hvað í veröldinni er þetta? Falcon 9 eldflaug SpaceX að losa eldsneyti.Í gærkvöld (4. mars) kl 22:05 að íslenskum tíma, skaut SpaceX á loft Falcon 9 eldflaug frá Vandenberg í Kaliforníu. Með í för voru 52 gervi­tungl, flest af Starlink gerð. Spor­brautin hallaði 97 gráður sem þýðir að flaugin var á pólbraut sem lá yfir Íslandi.Skömmu eftir miðnætti hóf Falcon 9 að losa sig við eldsneyti. Það sást vel á himni frá Íslandi og náði Rúnar Freyr Júlíusson, leið­sögumaður hjá Geo Travel í Mývatns­sveit myndum af því. Var hann þá staddur við bæinn Hellu klukkan 01:03. Horft er í norð­austur sem stemmir við sporbraut Falcon 9.

Þegar elds­neytið er losað var eldflaugin í um 500 km hæð yfir Jörðinni. Nógu hátt til þess að sólin nái að lýsa elds­neytið upp og sömuleiðis nógu hátt til þess að það hafi engin markverð áhrif á andrúms­loftið okkar. Útfjólbuláa ljósið frá sólinni brýtur elds­neytið á endanum niður. Eldflaugin snýst svo spíral­mynstur birtist.“

Þá vitum við það!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra