Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Óskar missti lærimeistara sinn er Víkartindur strandaði: „Við erum að fara að sökkva“

Óskar missti lærimeistara sinn er Víkartindur strandaði: „Við erum að fara að sökkva“

Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkast­inu er engin annar en Óskar Grétuson, einnig þekktur sem Boris. 

Óskar vann tit­il­inn Sterkasti maður Íslands fjögur ár í röð, frá 2005 til 2008 og keppti einnig í keppn­inni Sterkasti maður heims með góðum árangri. Óskar ólst upp á Grund­ar­firði áður en hann flutti í Fella­hverfið í Raykja­vík. Þar upp­lifði hann sig að tals­vert á skjön við aðra og átti erfitt með að eign­ast vini og upp­lifði mikið ein­elti og þá einna helst af því hann þótti þykkur í vext­inum.

Strandið

Þegar Óskar var 17 ára hóf hann störf hjá Land­helg­is­gæsl­unni og upp­lifði mikið áfall við björgun flutn­ing­ar­skips­ins Vik­art­inds er gæslu­skipið fékk á sig tvö­falt brot og lagð­ist bók­staf­lega á hlið­ina með þeim afleið­ingum að læri­meist­ari hans, Elli lést eftir alvar­legt höf­uð­högg. „Við höfum oft lent í brot­sjó en þessi stormur var mjög sér­stakur að því leit­inu til að það komu tvö brot með nán­ast því engu milli­bili. Þannig að það er kallað „brot!“ og þú veist, skellur á skip­inu og það hallar alveg gríð­ar­legar og á meðan skipið er að rétta sig af aftur, þá kemur annað brot. Og við lögð­umst 80 gráður á hlið­ina. Og ég hélt í eitt­hvað loftop ein­hvers staðar og ég dingl­aði bara í lausu lofti með fæt­urnar og ég hugs­aði bara „Við erum að fara að sökkva“. En skip­stjór­inn hékk á, sko, þú setur aðra vél­ina í áfram og hina í aftur á bak, til að rétta það við, og hann hékk bara á þessu í 80 gráðum. Og hann náði að bjarga skip­inu og við sukkum ekki. En Elli karl­inn hefur ekki náð að grípa í.“

Slysið

Óskar kynnt­ist kraft­lyft­ingum og sýndi þar mikla hæfi­leika og metnað. Hann fór fljótt upp met­orða­stig­ann en hann lærði af mörgum af bestu kraft­lyft­ing­ar­mönnum Íslands. Í sinni síð­ustu lyftu á hans síð­asta móti sem hann tók þátt í, stórslas­að­ist hann og að eigin sögn bók­staf­lega murrk­aði á sér tauga­kerfið með þeim afleið­ingum að hann keppti aldrei aftur. Hann fór inn í tíma­bil þar sem hann glímdi við alls­konar verki og und­ar­leg ein­kenni sem læknar áttu erfitt með að kort­leggja en einn ráð­lagði honum að skella sér bara í nudd og það átti eftir að hafa miklar aðfleið­ingar í för með sér.

Mynd af kýl­inu sem mynd­að­ist á háls­inum á honum. Óskar Fékk mörg svona kýli út um allan lík­ama eftir slysið.

Nuddið

Hann byrj­aði að nudda sjálfan sig og náði undra­verðum árangri. Hann fór að upp­lifa að með því að grafa sig inn í tauga­kláða og verki tókst honum að flytja til áfalla­ein­ingar sem voru að valda stíflum í tauga­kerf­inu og með því náði hann smátt og smátt heila þennan skaða sem læknar höfðu sagt honum, í algjörum van­mætti og úrræða­leysi, að væru ólækn­an­legir og þess vegna króniskir. Smátt og smátt hefur Óskar náð heil­brigði og á 14 árum hefur hann snúið lífu sínu við og starfar sem einn af öfl­ug­ustu með­ferð­ar­að­ilum á land­inu.

Þátta­stjórn­and­inn Gunnar fór sjálfur til Óskars fyrir tveimur vikum síðan og hann sagði að eftir að hafa farið í ótal nudd­tíma í gegnum tíð­ina, hafi hann aldrei upp­lifað það sem hann upp­lifði í þessum 90 mín­útna nudd­tíma sem hann fékk frá Óskari. Hann tal­aði um að hafa gefið sig alfarið á vald Óskars sem náði bók­staf­lega að kremja hann eins og sard­ínu og náði að losa um spennu í lík­am­anum sem Gunnar vissi ekki einu sinna að hann hýsti innra með sér. Það sem Gunnari fannst einnig áhuga­verð­ast var að traustið var algjört og má segja að hann hafi gefið Óskari leyfi til að fara eins djúpt og lík­am­lega og hægt var í þeim til­gangi að losa stíflur og opna fyrir orkuflæðið sem honum fannst hann í raun verð­skulda. 

Óskar er tals­vert fluttur á milli landa af við­skipta­vinum og hefur hann verið flogið tölu­vert til Banda­ríkj­anna, Englands, Frakk­lands, Þýska­lands og meira að segja yfir hálfan hnött­inn til Ástralíu því þeir erlendu við­skipta­vinir sem Óskar hefur með­höndlað segj­ast margir aldrei hafa upp­lifað neitt þessu líkt hvað varðar snert­ingu og inn­sæ­is­ríka nálgun Óskars. Er hann sjálf­lærður nudd­ari og segir Óskar að hann hafi það á til­finn­ing­unni að hann njóti hand­leiðslu sem hann getur ekki útskýrt. Hann seg­ist hálf­part­inn taka sjálfan sig úr jöfn­unni þegar að með­ferðin hefst og þannig nái hann besta flæð­inu og lestri við­fangs­efn­is­ins.

Óskar sér­hæfir sig í að vinna með það sem kall­ast stífur, sem sitja í lík­am­anum og hafa áhrif á bæði vöðva og liði sem og tauga­kerfið sem í raun stjórnar öllum lík­am­anum. Magnaður maður þarna á ferð sem greini­lega býr yfir vissri náð­ar­gáfu sem snýr að heilun manns­lík­amanns. 

Þáttinn má sjá í heild sinni hér á spil­ar­anum fyrir neðan en einnig má nálg­ast þætti Alkast­ins og Þvotta­húss­ins á öllum helstu streym­isveitum eins og Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ