Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Snorri forsetaframbjóðandi trúir ekki á refsingar í málum fíkniefnaneytenda

Snorri forsetaframbjóðandi trúir ekki á refsingar í málum fíkniefnaneytenda
Snorri Ótt­ars­son Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur Alkasts­ins er for­seta­fram­bjóð­and­inn Snorri Ótt­ars­son.

Snorri er fæddur og upp­al­inn á Akureyri en hefur verið búsettur í Horsens í Danmörku frá árinu 2007. Rétt fyrir hrun fluttu þau hjónin og voru mjög heppin því þau borg­uðu aðeins 300 þús­und fyrir leigu á 20 feta flutn­ingagám sem hálfu ári seinna hefði kostað nálægt milljón vegna hruns íslensku krón­unnar. Snorri er mennt­aður húsa­smiður en hefur svo í Horsens bætt við sig tveimur háskóla­gráðum. Hann hefur starfað við ýmis­legt og verið mikið í akstri síð­ustu árin ásamt öðru.

Fjölskyldumaður

Snorri er mikil fjöl­skyldu­maður og nefnir í við­tal­inu að nú sé hann á land­inu því faðir hann er mjög veikur á spít­ala um þessar mundir. Börn Snorra eru komin úr hreiðri að mestu leyti og munu því að öllum lík­indum ferð­ast með honum á Bessa­staði ef af því verður. Eig­in­konan hans styður hann heils­hugar og myndi standa sína plikt sem for­seta­frú, enda vön álagi.

Áherslur Snorra í þessu for­seta­fram­boði snúa að því að virkja Bessa­staði eins og Ástþór Magn­ús­son leggur einnig áherslu á og þá í þágu frið­ar­mála. Snorri, eftir öll þessi ár í Danmörku, segir klár­lega vanta visst sam­ein­gar­tákn inni í íslenskt sam­fé­lag. Honum finnst ríkja mikil spill­ing inni á þingi sem og í einka­geir­anum sem hann vill breyta. Hann segir alveg óhæft að fyr­ir­tæki taki ekki meiri sam­fé­lags­lega ábyrgð og tekur undir orð Gunnars þátt­ar­stjórn­anda um að viss yfir­falls­vent­ill á sjóðum einka­fyr­ir­tækja sé æski­legur ef heil­brigt sam­fé­lag eigi að vera mögu­legt.

Maður fólksins

Snorri seg­ist vera maður fólks­ins. Hann sem ungur drengur var afar hlé­drægur og að eigin sögn inni í skel. Hann horfði á föður sinn í sinni æsku sem afar mann­blendin ein­stak­ling sem bland­aði geði við fólkið á göt­unni. Nú í dag seg­ist Snorri vera kom­inn út úr skel­inni og vera til­búin í alla þá félags­legu þætti sem for­seta­emb­ætt­inu fylgir. Gunnar spurði Snorra hvort að visst vits­muna­legt eða fræði­legt bol­magn þyrfti ekki að vera til staðar hjá for­seta Íslands og Snorri segir að sjálf­sögðu sé það mik­il­vægt en fyrst og fremst sé hann drif­inn áfram af heið­ar­leika og mennsku sem honum klár­lega finnst vanta. Hann seg­ist ekki vera sækj­ast eftir per­sónu­legum met­orðum eða pen­ingum og seg­ist meira að segja vera til­bú­inn til að deila launum sínum sem for­seti í þágu lýð­heilsu og vel­ferðar. Hann á sér draum um að skapa skemmti­garða sem allir hafa aðgengi að gegn vægu gjaldi eins og í Danmörku og nefnir sem dæmi Lególand og seg­ist alveg til í að fjár­magna svo­leiðis skemmti­garða sjálfur með afgangi af launum sínum sem for­seti.

Manngæska frekar en refsing

Snorri trúir ekki á refs­ingu í málum fíkni­efna­neyt­enda og vill sjá að stjórn­völd taka nýja stefnu í þeim mála­flokki. Hann vill fá að sjá meiri mann­gæsku í málum þeirra sem minna mega sín gagn­vart fíkni­efna­djöfl­inum. Hann leggur meira að segja til að ríkið fram­leiði sjálft eins­konar lyf eða töflur sem væri þá bara úthlutað til fíkla til að koma þeim undan þeirri ánauð sem fylgir því að skaffa sér efni af glæpa­mönnum. „Einhvern tíma kom upp hug­mynd hjá mér og það er kannski kjána­legt, ef að ríkið hrein­lega fram­leiddi ein­hverja pillu sem skap­aði þessi áhrif sem ein­stak­ling­ur­inn er að leita sér að. Ef þetta yrði fram­leidd væri það undir eft­ir­liti,“ sagði Snorri og nefndi dæmi þar sem kona bauð honum fyrir mörgum árum að deila með sér e-pillu en hann þorði ekki að þiggja hana enda vissi eng­inn hvað væri í slíktri pillu þar sem hver sem er gat sett hvað sem er í þetta og fólk væri að fá hjarta­á­föll og hvað eina.

Þessa dag­ana er Snorri að vinna hart að því að safna nógu mörgum und­ir­skriftum til að upp­fylla þau skil­yrði sem til þarf svo að hann geti boðið sig fram til for­seta. Honum vantar enn mikið upp á en þegar þetta við­tal var tekið var hann ein­ungis komin með átta und­ir­skriftir og átti því tals­vert langt í land en hann er von­góður og trúir að ef hann á að kom­ast á Bessa­staði muni það ger­ast.

Þáttinn í heild sinni má sjá á spil­ar­anum hér fyrir neðan og einnig má hlusta á Alkastið á öllum helstu streym­isveitum eins og Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ