Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Verðlaun veitt fyrir ljósmyndir ársins 2023

Verðlaun veitt fyrir ljósmyndir ársins 2023
Frétta­mynd árs­ins: Kristinn Magn­ús­son.

Í dag, 27. apríl, klukkan 15 voru afhent verð­laun í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur fyrir myndir árs­ins 2023. Veitt voru verð­laun fyrir frétta­mynd árs­ins og mynd árs­ins.

Eft­ir­far­andi frétta­til­kynn­ing barst fjöl­miðlum frá Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lagi Íslands:

Mynd árs­ins 2023 er við fyrstu sýn ein­föld og kyrr­lát. Hún er þó afar tákn­ræn og hlaðin til­finn­ingu. Myndin sýnir Yazan, ungan flótta­mann frá Gaza, þar sem hann skreytir tíma­bundið athvarf sitt hér á landi með jóla­ljósum og fána heima­lands síns. Myndin kallar fram til­finn­ingar á borð við hryggð og sam­kennd og kemur vel til skila stolti hans yfir upp­runa sínum og heim­ili, heim­ili sem nú er glatað. Höfundur myndar árs­ins er Kjartan Þor­björns­son, eða Golli. 

Frétta­mynd árs­ins sýnir hina hlið­ina á einu stærsta frétta­máli árs­ins, jarð­hrær­ing­unum á Reykja­nesi. Myndin er frá sam­veru­stund fyrir Grind­vík­inga í Hall­gríms­kirkju. Við sáum margar stór­kost­legar myndir frá sjálfum eld­unum og eyði­legg­ing­unni sem hrær­ing­arnar höfðu í för með sér, en sig­ur­myndin fangar með eft­ir­minni­legum hætti mann­legu hlið­ina, hvernig sam­fé­lagið varð þétt­ara og fólk sýndi hvert öðru stuðn­ing á erf­iðum tíma. Höfundur frétta­myndar árs­ins er Kristinn Magn­ús­son.

Á ljós­mynda­sýn­ing­una Myndir árs­ins 2023 voru valdar 102 myndir frá 17 blaða­ljós­mynd­urum af óháðri dóm­nefnd úr fjölda inn­sendra mynda. Á sýn­ing­unni eru mynd­irnar í sex flokkum sem eru frétta­myndir, myndir úr dag­legu lífi, íþrótta­myndir, por­trett­myndir, umhverf­is­myndir, og myndaraðir. Í ár veitti dóm­nefndin verð­laun fyrir frétta­mynd árs­ins og eina mynd úr fyrr­nefndum flokkum var valin mynd árs­ins.

Dóm­nefnd­ar­störf fóru fram í byrjun febr­úar en í ár skip­uðu dóm­nefnd­ina Árni Torfason, Hrund Þórs­dóttir, Snorri Gunn­ars­son og Andrea Bruce sem var for­maður dóm­nefndar. Andrea er stríðs­frétta­ljós­mynd­ari frá Banda­ríkj­unum og hefur meðal ann­ars unnið í Írak og Palest­ínu fyrir tíma­rit eins og The New York Times og National Geographic. Hún hefur hlotið fjölda verð­launa fyrir myndir sínar. 

Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaða­manna­fé­lags Íslands. Sýningin Myndir árs­ins hefur verið haldin síðan 1979 og er ein fjöl­sóttasta ljós­mynda­sýn­ingin lands­ins ár hvert. Stjórn Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lags Íslands í ár skipa Vilhelm Gunn­ars­son (for­maður), Anton Brink, Eyþór Árnason, Hallur Karlsson, Hulda Margrét Óla­dóttir og Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir. Hægt að nálg­ast bók með öllum myndum sýn­ing­ar­innar í safn­búð Ljós­mynda­safns Reykja­víkur. 

Sýningin verður opin í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur til 18. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ