Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Yfirvöld vilja senda palestínskan ungling úr landi: „Ég er að reyna að gefast ekki upp“

Yfirvöld vilja senda palestínskan ungling úr landi: „Ég er að reyna að gefast ekki upp“
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra

„Samtökin No Borders Iceland krefj­ast þess að þess að Ásmundur Einar Daðason, barna­mála­ráð­herra og rík­is­stjórn Íslands bregð­ist ekki skyldu sinni gagn­vart börnum og að þau stöðvi grimmi­leg áform sín um að stofna lífi Fadi Bahar í hættu.“ Þannig hefst til­kynn­ing frá sam­tök­unum No Borders Iceland, sem birt­ist á Facebook í morgun.

Í til­kynn­ing­unni segir einnig: „Ef ekki verður gripið inn í verður Ásmundur, ásamt öðrum ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar, ætíð með örlög Fadi á sam­visku sinni.“ Aukreit­ist segja sam­tökin að ekk­ert barn eigi að þurfa að berj­ast fyrir sínum rétt­indum, „það á bara að njóta þeirra“.

Með til­kynn­ingu No Borders Iceland, fylgdi bréf frá hinum 17 ára Fadi Bahar, sem er nú í felum fyrir lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum, sem vill, sam­kvæmt skipun yfir­valda, reka hann úr landi. Segir hann í bréf­inu sögu sína en hann þurfti 12 ára gam­all að flýja frá Palest­ínu ásamt föður sínum og bróður, til Sví­þjóðar. Þar voru feðgarnir í fjögur ár, án allra rétt­inda og kenni­tölu. Vegna þess að glæpa­gengi vildi þvinga hann í vinnu fyrir sig, neydd­ist Fadi að flýja til Íslands. „Ég þrái að lifa góðu, öruggu og heið­ar­legu lífi,“ skrifar Fadi í bréf­inu. Segir hann að lög­reglan í Svíþjóð hafi vitað af þeirri ógn sem staf­aði af glæpa­geng­inu en glæpa­gengið heldur að hann hafi unnið með lög­regl­unni og vilji hann því feig­ann.

Fadi Bahar

Fadi hefur ekki heyrt í föður sínum og bróður frá 4. des­em­ber 2022 en sænsk yfir­völd vildu senda þá aftur til Palest­ínu. „Ég hafði lofað föður mínum að vera hug­rakkur og sterkur, sýna dugnað í skóla og vera heið­ar­legur. Nú er ég 17 ára og veit ekki einu sinni hvort þeir séu lífs eða liðnir.“ Eftir að Fadi hafði flakkað á milli úrræða á vegum félags­þjón­ust­unnar fékk hann loks tæki­færi á menntun. „Á end­anum fékk ég tæki­færi á að hefja nám við Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja þar sem ég eign­að­ist bæði frá­bæra kenn­ara og vini, og fékk stór­kost­lega vinnu hjá besta yfir­manni í heimi. Loksins leið mér eins og líf mitt væri komið í betri far­veg. Hér yrði pabbi stoltur af mér.“ Nú blasir hins vegar sá veru­leiki fyrir Fadi að hann verði sendur til Sví­þjóðar á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, þrátt fyrir að vera, að eigin sögn, með skjöl frá félags­mála­s­þjón­ust­unni í Svíþjóð um að ekki sé vitað um föður hans og bróður. „ Ég á engan að nema mig sjálfan. Ef ég berst ekki fyrir lífi mínu gerir það eng­inn. Ég er að reyna að gef­ast ekki upp og vera sterkur en það er oft svo erfitt að halda höfð­inu uppi þegar allt blæs á móti mér.“

Hægt er að lesa færsl­una í heild sinni hér fyrir neðan:

„Komið þið sæl, ég heiti Fadi Bahar, er 17 ára drengur á flótta frá Palest­ínu.Lög­reglan á Suð­ur­nesjum leitar að mér og deildi mynd af mér um allt inter­netið. Það kann að vera að fólk sem séð hefur lýst eftir mér í fjöl­miðlum þekki ekki sögu mína og aðstæð­urnar sem liggja að baki. Það þykir mér óþægi­legt svo mig langar deila með ykkur smá af sögu minni:Ég var ný orð­inn 12 ára þegar ég þurfti að flýja frá Palest­ínu með föður mínum og bróður.Við vorum í Svíþjóð í 4 ár án allra rétt­inda og kenni­tölu. Ég þurfti að fara til Íslands án föður míns og bróður vegna þess að ég átti í miklum vanda í Svíþjóð og það lá á að fela mig. Glæpa­gengi vildi þvinga mig til að vinna fyrir sig og ég gat ekki hugsað mér að þurfa að fara þá skelfi­legu veg­ferð. Ég þrái að lifa góðu, öruggu og heið­ar­legu lífi. Sænska lög­reglan vissi af þeirri ógn sem mér staf­aði af glæpa­geng­inu en glæpa­gengið dró þá ályktun að ég væri að starfa fyrir lög­regl­una. Þetta varð til þess að glæpa­gengið leitar að mér (ennþá) og er stað­ráðið í að myrða mig. Ég hef gögn sem sýna fram á það, bæði videó og skila­boð. Íslenska lög­reglan auk barna­verndar og útlend­inga­stofn­unar vita þetta líka. Samt finnst þeim í lagi að ætla að senda mig þangað aftur.Sænsk yfir­völd voru með áform um að brott­vísa föður mínum og bróður aftur til Palest­ínu, síðan þá hefur mér ekk­ert tek­ist að hafa sam­band við þá og hef ekki hug­mynd um hvar þeir eru nið­ur­komnir. Ég veit ekki hvað varð um þá og ég hef ekki talað við föður minn síðan 4. des­em­ber 2022. Það var fyrir þessa áður nefndu atburði sem ég ég kom til Íslands. Ég hafði lofað föður mínum að vera hug­rakkur og sterkur, sýna dugnað í skóla og vera heið­ar­legur. Nú er ég 17 ára og veit ekki einu sinni hvort þeir séu lífs eða liðnir.Það eru nokkrar mann­eskjur innan barna­verndar sem hafa reynst mér afskap­lega vel og kann ég þeim miklar þakkir fyrir. Eftir að ég kom til Íslands þurfti ég að flakka milli búsetu­úr­ræða á vegum félags­þjón­ust­unar sem ætluð eru fylgd­ar­lausum börnum á flótta á milli þess sem ég fékk synj­anir um vernd. Á end­anum fékk ég tæki­færi á að hefja nám við Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja þar sem ég eign­að­ist bæði frá­bæra kenn­ara og vini, og fékk stór­kost­lega vinnu hjá besta yfir­manni í heimi. Loksins leið mér eins og líf mitt væri komið í betri far­veg. Hér yrði pabbi stoltur af mér.Nú lítur út fyrir að ég neyð­ist ég til að skilja við líf mitt á ný þar sem lög­reglan ætlar sér að senda mig til Sví­þjóðar. Það gera þau undir þeim for­merkjum að þau vilji að ég sam­ein­ist föður mínum og bróður, þrátt fyrir að ég sé með skjöl frá sænskum félags­mála­yf­ir­völdum þess efnis að ekki sé vitað um fjöl­skyldu mína. Raunin er sú að mér verður komið fyrir í búsetu­úr­ræði fyrir fylgd­ar­laus börn á flótta og án verndar. Þar mun ég vera geymdur þar til ég verð 18 ára. Því næst verð ég sendur aftur til Palest­ínu án nokk­urrar vonar um líf eða fram­tíð.Ég lifi milli vonar og ótta í gjör­sam­legri örvænt­ingu. Fyrstu synj­un­ina fékk ég 6 mán­uðum eftir kom­una hingað, aðra synj­un­ina fékk ég um miðjan októ­ber í fyrra og þriðju synj­un­ina fékk ég þann 15. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Ég á engan að nema mig sjálfan. Ef ég berst ekki fyrir lífi mínu gerir það eng­inn. Ég er að reyna að gef­ast ekki upp og vera sterkur en það er oft svo erfitt að halda höfð­inu uppi þegar allt blæs á móti mér.Málið mitt er núna inni á borði hjá Umboðs­manni Alþingis vegna þess að það fékk ekki rétta máls­með­ferð í upp­hafi. Það má í raun­inni segja að líf mitt sé í höndum Umboðs­manns­ins og nefnd­ar­innar hans. Ég þarf að vera í felum þar til nefndin kemst að sinni nið­ur­stöðu. Ég vona að ég nái því og hún komi fljótt af því í Svíþjóð bíða mín annað hvort von­leysi eða dauði.Mér líður vel á Íslandi og upp­lifi hér öryggi fyrsta sinn þrátt fyrir allt. Íslend­ingar hafa veið mér góðir og viljað mér vel. Hér er ég í skóla og á vini og annað gott fólk að, sem er mér sem fjöl­skylda. Ég finn að hérna get ég átt fal­lega fram­tíð. Hjartað mitt getur ekki afborið þá til­hugsun um að þurfa að skilja við þetta allt.Ég hef ekki sofið almenni­lega í rúmt eitt og hálft ár, vakna mörgum sinnum á hverri nóttu vegna kvíða og ótt­ast stöðugt um fram­tíð mína. Er ítrekað að sjá fyrir mér verstu mögu­legu útkom­una fyrir mig en þrátt fyrir það er lít­ill von­ar­neisti í brjósti mér. Það er hann sem heldur mér gang­andi, heldur mér á lífi. Já litli neist­inn vonar að ég fái að búa á íslandi og að hitta baba minn og bróður aftur í þessu lífi.Ég vona að þið hlustið á sögu mína af skiln­ingi og sam­kennd, og fyr­ir­gefið mér felu­leik­inn. Kannski getið þið hjálpað mér, líf mitt og fram­tíð eru í húfi.Kær kveðja, Fadip.s. ég elska alla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ