Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Móðir látna fangans stígur fram: „Sumir hlutir verða ekki aftur teknir“

Móðir látna fangans stígur fram: „Sumir hlutir verða ekki aftur teknir“
Ingvi Hrafn Tómasson lést á Litla Hrauni í byrjun maí

Þann 6. maí lést Ingvi Hrafn Tómasson á Litla Hrauni eftir að hafa tekið eigið lífið og hefur ýmsum spurn­ingum varð­andi hvernig með­ferð Ingvi fékk í kerf­inu verið ósvarað. Berglind Vigg­ós­dóttir, móðir Ingva, gagn­rýnir fang­els­is­mála­yf­ir­völd fyrir hvernig tekið var á málum Ingva en hann var í afplánun á Vernd og kom­inn í vinnu.

Sjá nánar: Vill draga yfir­völd til ábyrgðar vegna dauða sonar hans: „Ingvi var settur inn án dóms og laga“

„Svo kom skell­ur­inn, í lok apríl er hann ásak­aður um afbrot, athugið sér­stak­lega – ásak­aður. Fang­els­is­mála­stofnun tekur ákvörðun um það hvort Ingvi Hrafn gæti ekki verið lengur í opnu úrræði og skyldi fara aftur inn í lokað fang­elsi. Þarna er rann­sókn á frum­stigi og neit­aði Ingvi Hrafn stað­fast­lega að hafa brotið af sér. En þar sem að hann er í afplánum þá skiptir það engu máli hvort hann er sekur og eða sak­laus, hann var sviptur frels­inu og inn skyldi hann fara. Geð­þótt­ar­á­kvörðun hefur þarna allt um það að segja hvort hann fái að halda áfram að vera nokkuð frjáls maður í afplánun í opnu úrræði, í sinni vinnu og að leggja til sam­fé­lags­ins. Þá hlýtur að skipta máli hvernig emb­ættin ræða saman – lágu frammi ein­hver sönn­un­ar­gögn sem studdu það að Ingvi skyldi sviptur frelsi, eða ekki. Lögregla hand­tók hann um 2 klst. eftir meint brot – á grund­velli þess að kæra hefði borist. Fleiri voru sönn­un­ar­gögnin ekki. Hefði hinn almenni og gegni borg­ari verið í sömu stöðu, hefði hann gengið út af lög­reglu­stöð­inni á Hverf­is­götu að lok­inni skýrslu­töku og beðið eftir nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar heima hjá sér,“ skrifar Berglind í pistli sem hún birti á Vísi.

Hún segir það sé gíf­ur­legt áfall fyrir ein­stak­ling eins og Ingva að finna fyrir frelsi og vera kippt aftur í fang­elsi án dóms og sönn­un­ar­gagna. Að sögn Berg­lindar óskaði Ingvi eftir að fá tíma hjá Geð­heilsuteymi Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. 

„Viðtalið fór aldrei fram þann 6. maí því þegar að fanga­verðir opn­uðu klefa hans að morgni 5. maí fannst Ingvi Hrafn lát­inn í klefa sínum á Litla Hrauni og hafði tekið sitt eigið líf.

Dagurinn 5. maí var alltaf þung­bær fyrir Ingva Hrafn, en bróðir hans lést á þessum degi fyrir 6 árum síðan. Nú er ég búin að missa annan son, son sem kerfið brást og hefði verið hægt að bjarga.“

Í pistl­inum kallar hún eftir því að yfir­völd bæti geð­heilsuteymi í fang­elsum lands­ins, það sé lág­marks­virð­ing sem þurfi að sýna föngum.

„Ég hef misst son, og syni ef út í það er farið. Sumir hlutir verða ekki aftur teknir. Það er ein­læg ósk mín að frá­fall Ingva Hrafns hafi áhrif á breyt­ingar til hins betra á geð­heil­brigði fanga og tengdri þjón­ustu þeirra. Mín bar­átta er rétt að byrja,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ