Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Umboðsmaður barna segir að börn eigi að njóti réttar síns til menntunar: „Foreldrar beri ábyrgð“

Umboðsmaður barna segir að börn eigi að njóti réttar síns til menntunar: „Foreldrar beri ábyrgð“
Salvör Nordal, umboðs­maður barna – Mynd: Skjáskot N4

Salvör Nordal, umboðs­maður barna, segir það grund­vall­ar­at­riði að njóti réttar síns til mennt­unar en mikil umræða hefur skap­ast und­an­farna mán­uði vegna leyfa barna frá skóla. Algeng­asta ástæða leyf­anna eru ferða­lög barna til útlanda með for­eldrum eða for­ráða­mönnum sínum og eru dæmi um að börn hafi farið erlendis í fimm vikur í senn á skóla­tíma. Þá kemur það reglu­lega fyrir að börnin sinni ekki námi sínu, sem kenn­arar setja þeim fyrir, meðan þau eru í leyfi.

Telja sumir kenn­arar og skóla­stjórn­endur að vinna þurfi mark­visst að því koma for­eldrum í skiln­ing um að löng óþarfa fjar­vera frá skóla geti haft mjög nei­kvæð áhrif á nám og and­lega heilsu barna en engar reglur eru í lögum um grunn­skóla um leyfi barna annað en að það sé mat skóla­stjóra hvers skóla að veita slíkt. Því getur verið mik­ill munur á leyf­is­veit­ingum milli skóla.

Stjórnendur og kennarar vilja aukna virðingu fyrir námi

Magnús Þór Jónsson, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, sagði í sam­tali við Mannlíf að best væri að sem minnst rof væri á námi barna og þá sagði rektor Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð að auka þurfi virð­ingu for­eldra og nem­anda fyrir námi.

„Hætt er við því að nem­andi sem er fjar­ver­andi vegna tíðra ferða­laga til­einki sér þá skoðun að fjar­vera úr skóla sé í lagi,“ skrif­aði Steinn Jóhanns­son, rektor MH, í pistli um málið.

Í könnun sem Mannlíf gerði um málið vilja 75% les­enda Mannlífs banna margra vikna leyfi barna á skóla­tíma.

Foreldrar beri ábyrgð á því þegar börn missi úr námi

„Það er grund­vall­ar­at­riði að börn njóti réttar síns til mennt­unar,“ sagði Salvör í sam­tali við Mannlíf um málið. „Stjórn­endur grunn­skóla og for­eldrar gegna þar mik­il­vægu hlut­verki. Varðandi frí vegna utan­lands­ferða á skóla­tíma er í 15. gr. laga um grunn­skóla nr. 91/2008 fjallað um skóla­skyldu og kemur þar m.a. fram að skóla­stjóra sé heim­ilt að veita tíma­bundna und­an­þágu frá skóla­sókn sæk­ist for­eldrar eftir því svo lengi sem gildar ástæður liggi þar að baki. Í grein­ar­gerð með lög­unum kemur fram að gildar ástæður geti t.d. verið ferða­lög fjöl­skyldu. Þá kemur jafn­framt fram í lög­unum að for­eldrar beri ábyrgð á því að nem­andi vinni upp það sem hann kann að missa úr námi meðan á und­an­þágu stendur. Það er því á ábyrgð skóla­stjóra að leggja ein­stak­lings­bundið mat á það hvort for­svar­an­legt sé að veita umrædda und­an­þágu með hlið­sjón af því sem er barn­inu fyrir bestu og síðan for­eldra að sinna námi barns­ins sé slík und­an­þága veitt. Ef ekki næst sam­komu­lag milli for­eldra og skóla­stjóra um slíka und­an­þágu geta for­eldrar kært synjun skóla­stjóra til mennta- og barna­mála­ráð­herra sam­kvæmt fyr­ir­mælum 47. gr. laga um grunn­skóla. Að öðru leiti vísar umboðs­maður barna til mennta- og barna­mála­ráð­herra sem fer með almenna yfir­stjórn og eft­ir­lit með starf­semi grunn­skóla,“ en Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, hefur ekki svarað ítrek­uðum fyr­ir­spurnum Mannlífs um málið.

Salvör segir þó að frí vegna utan­lands­ferða hafi ekki verið í for­gangi hjá emb­ætti umboðs­manns barna hingað til.

„Frí barna í skólum hefur ekki verið á for­gangs­lista hjá umboðs­manni barna. Embættið hefur frekar beint sjónum sínum að skólaforðun af öðrum ástæðum og lagt áherslu á að litið sé á frá­vik frá skóla­sókn barna með heild­stæðum hætt. Sér­stak­lega hefur emb­ættið bent á að setja þurfi fram og hrinda í fram­kvæmd aðgerðum sem stuðla að því að börn fái stuðn­ing við hæfi, líkt og skólum er skylt að gera sam­kvæmt grunn­skóla­lögum og reglu­gerð um nem­endur með sér­þarfir í grunn­skóla nr. 585/2010. Út frá þeim málum sem umboðs­maður barna hefur fengið ábend­ingar um má leiða að því líkur að ástæða end­ur­tek­inna fjar­vista hjá mörgum börnum sé sú að þau fái ekki við­un­andi stuðn­ing innan skól­ans. Þá má bæta við að börn sem ein­hverra hluta vegna ekki fá við­un­andi þjón­ustu eða stuðn­ing í leik- og grunn­skóla, eru lík­legri til að hverfa frá fram­halds­skóla­námi en önnur börn. Því er mik­il­vægt að tryggja sam­felldan stuðn­ing og eft­ir­fylgni fyrir sér­hvert barn eftir þörfum hvers og eins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ