Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Víðistaðaskóli bregst við barnahrellinum: „Það gladdi mig að finna samtakamátt skólasamfélagins“

Víðistaðaskóli bregst við barnahrellinum: „Það gladdi mig að finna samtakamátt skólasamfélagins“

Víði­staða­skóli hefur brugð­ist skjótt við fregnum af árásum karl­manns á nem­endur skól­ans.

Mannlíf sagði frá því fyrir þremur vikum að karl­maður í app­el­sínugulri úlpu og með yfir­var­ar­skegg, hafi veist að börnum í Norðurbæ Hafn­ar­fjarðar og elt þau á röndum. Nýjasta til­vikið gerð­ist svo í gær þegar karl­maður tók 12 ára stúlku háls­taki þegar hún var á leið í skól­ann. Hún hafði annað í huga og beit fólið og spark­aði í sköfl­ung hans og los­aði sig frá honum og hljóp á brott. For­eldrar og börn eru skelkuð í hverf­inu. Ekki var þó hægt að full­yrða að um sama barna­hrelli væri að ræða og í hinum til­vik­inum. Lög­reglan hefur ekki enn haft hendur í hári manns­ins.

Sjá einnig: Karl með yfir­var­ar­skegg herjar á börn í Hafn­ar­firði:„Fólk slegið og óör­uggt að senda börnin ein út“
Sjá einnig: Barna­hrellir tók 12 ára stúlku háls­taki: „Hún nær að bíta hann og rífa sig lausa“

Hrönn Berg­þórs­dóttir, skóla­stjóri Víði­staða­skóla sendi tölvu­póst á for­sjárað­ila barna í skól­anum í dag þar sem hún fer yfir þau við­brögð sem skól­inn hefur sýnt í kjöl­far árása ein­stak­lings á börn við skól­ann. Þar seg­ist hún hafa nokkra pósta í kjöl­far bréfs sem hún sendi í gær varð­andi nýjasta til­fellið. Fer hún svo yfir við­brögð skól­ans og nefnir meðal ann­ars að aukið hafi verið við úti­gæslu í frí­mín­útum og svo er hús­inu lokað fyrr á dag­inn. Lög­reglan er einnig í miklu sam­starfi við skól­ann og vaktar hverfið, bæði í merktum og ómerktum bílum.

Hér má lesa póst­inn í heild sinni:

Kæru for­eldrar, for­sjárað­ilar barna í Víði­staða­skóla. Það hafa margir haft sam­band við mig eftir bréfið sem ég sendi ykkur í gær varð­andi atvikið þar sem maður veitt­ist að nem­anda á leið í skól­ann í gær. Ég fékk nokkra pósta í kjöl­farið þar sem fólk hefur eðli­lega áhyggjur og þiggur ráð og eins frá­sagnir af öðrum atvikum sem hafa átt sér stað áður. Fólk spyr líka hvað er verið að gera og hvað gerir skól­inn? Málið var strax til­kynnt til lög­reglu sem kynnti sér mála­vexti vel. Ég hef líka verið í þéttu sam­starfi við lög­regl­una í gær og í dag. Lög­reglan er á vakt­inni í hverf­inu bæði í merktum og ómerktum bílum og fylgist vel með.

Við í skól­anum brugðum á það ráð að auka í gæslu í frí­mín­útum á skóla­lóð­inni hjá okkur og skipt­ast kenn­arar á að fara á vörslu með skóla- og frí­stunda­lið­unum. Við höfum líka bætt ganga­vörslu inn­an­dyra og lokum hús­inu fyrr. Allt starfs­fólk skól­ans er upp­lýst og und­ir­búið að ræða við börnin út frá þroska og aðstæðum. Það er mik­il­vægt að fara ekki offari í umræð­unni til að skapa ekki hræðslu og kvíða hjá börn­unum. Það er mik­il­vægt er að þau finni að við erum til staðar og gætum öryggis þeirra eftir bestu getu. Það gladdi mig mikið að finna sam­taka­mátt skóla­sam­fé­lag­ins okkar og finna sterkt að við erum öll í sama liði að tryggja öryggi barn­anna okkar. Í morgun mátti sjá marga for­eldra fylgja börnum sínum í skól­ann og nokkrir for­eldrar fóru í for­eldrarölt og voru á vakt á göngu­stígum og leiðum að skól­anum. Bestu þakkir fyrir þetta fram­tak.

Stjórn for­eldra­fé­lags­ins ætlar að skipu­leggja for­eldrarölt næstu morgna, virku dag­ana og við biðjum þá sem geta lagt sitt af mörkum að skrá sig á facebooksíðu for­eldra­fé­lags­ins svo hægt verði að halda utan um verk­efnið. Við von­umst til að fá 6-8 á vakt frá kl. 7:30 í fyrra­málið og er mæt­ing við aðal­inn­gang skól­ans en þar fá þeir sem skrá sig gulu vestin til að auð­kenna sig. Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur einnig verið í góðu sam­starfi við okkur ásamt lög­regl­unni sem hefur það hlut­verk að upp­lýsa málið og tryggja öryggi íbúa í hverf­inu. Með kærri kveðju og þakk­læti fyrir sam­stöð­una Hrönn Berg­þórs­dóttir, skóla­stjóri Víði­staða­skóla

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð