Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dagur minnist Ellýjar: „Það var alltaf birta yfir henni, rósemi og fágun“

Dagur minnist Ellýjar: „Það var alltaf birta yfir henni, rósemi og fágun“
Ellý Katrín Guð­munds­dóttir Mynd: Facebook.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrrum borg­ar­stjóri Reykja­víkur minn­ist Ellýjar Katrínar Guð­munds­dóttur í afar fal­legri Facebook-færslu en þau voru bæði sam­starfs­menn og vinir.

Ellý Katrín Guð­munds­dóttir, fyrrum borg­ar­rit­ari var borin til grafar í gær en hún hafði glímt við alzheimer-sjúk­dóm­inn um nokk­urt skeið. Í gær birti vinur hennar, Dagur B. Egg­erts­son fal­leg minn­ing­ar­orð á Facebook.

„Í dag var Ellý Katrín Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­rit­ari og stað­geng­ill minn og kær vin­kona, borin til grafar, langt um aldur fram. Myndin sem fylgir er hvers­dags­leg en mér þykir óskapega vænt um hana. Hún er tekin í einum af fjöl­mörgum og fal­legum göngut­úrum þeirra hjóna um borg­ina þar sem sem við rák­umst hvort annað, í veik­indum Ellýjar. Hinn ein­staki eig­in­maður hennar, Magnús Karl, tók mynd­ina. Ég skrif­aði minn­ing­ar­grein um Ellý sem von­andi birt­ist á morgun eða næstu daga – en fylgir hér með í ögn lengri gerð en komst fyrir í blað­inu.“ Þannig hóf Dagur færsl­una en hér fyrir neðan má lesa minn­ing­ar­orðin í heild sinni:

„Ellý – minn­ing­ar­orð

Ellý mætti mér með breiðu brosi og bliki i augum. Þetta var okkar fyrsti fundur. Ég var að hitta hana, yfir­mann umhverfis- og heil­brigð­is­stofu Reykja­vík­ur­borgar, sem for­maður stjórn­kerf­is­nefndar. Ég var nýbyrj­aður í borg­ar­stjórn. Ellý tók mér vel, eins og alltaf, og sagði mér af sýn sinni á fyr­ir­komu­lag mála. Það var alltaf birta yfir henni, rósemi og fágun, og stutt í bros og hlátur. Og undir brann hug­sjóna­eldur fyrir lofts­lag­inu, umhverf­inu og betri borg. Við vorum algerir sam­herjar í þeim leið­angri að hafa enda­skipti á for­gangs­röð mála­flokka og áherslna hjá borg­inni. Í stað þess að emb­ætti borg­ar­verk­fræð­ings væri yfir öllu sem við kæmi skipu­lagi og umhverf­is­málum áttu umhverf­is­málin og borg­ar­skipu­lagið að marka sýn­ina og gefa tón­inn, en verk­legar fram­kvæmdir og sam­göngu­málin að taka mið af því, en ekki öfugt. Ellý varð fyrsta sviðs­stýra hins nýja umhverf­is­sviðs borg­ar­innar, sem stofnað var að til­lögu stjórn­kerf­is­nefndar eftir sam­töl okkar, árið 2005. Fáir ef nokkrir mörk­uðu dýpri spor varð­andi umhverf­is­mál og umhverf­is­á­herslur á vett­vangi Reykja­vík­ur­borgar síð­ustu ára­tugi.

Ellý var afburða­mann­eskja á sínu sviði. Vel menntuð og víð­sýn og smit­aði alla sem með henni unnu af ást sinni á umhverf­inu og hinu stóra sam­hengi hlut­anna. Um leið brann hún fyrir því að allt starfs­fólk borg­ar­innar, hvort heldur í garð­yrkju eða sorp­hirðu eða hverju því sem kom umhverf­inu við. Hún lagði sig fram um að hver og einn átt­uðu sig á mik­il­vægi starfa sinna í óslit­inni grænni keðju. Hún var hluti af nýrri kyn­slóð öfl­ugra kvenna sem réð­ust til borg­ar­innar vegna hæfi­leika sinna, mennt­unar og hæfni þar sem aðeins karlar höfðu ráðið ríkjum áður. Þetta varð til þess að Reykja­vík varð að for­ystu­afli í umhverf­is­hugsun á lands­vísu, einsog borgin hefur verið æ síðan. Ellý og sam­starfs­fólk hennar átti ekki lít­inn hlut í því. Hún hafði hæg­verska leið til að leið­beina og kenna þar sem þekk­ing og þol­in­mæði horn­stein­arnir. Virkur og fag­legur stuðn­ingur við kjörna full­trúa og umboð sam­starfs­fólks til athafna var lyk­il­verk­færið og leiðin fram á við.

Ellý fór frá borg­inni til að verða for­stjóri Umhverf­is­stofn­unnar rík­is­ins en var fljót­lega aftur komin til baka. Hún not­aði kurt­eisleg orð til að lýsa ver­unni hjá rík­inu en ég held að henni hafi ein­fald­lega leiðst óbæri­lega að vinna fyrst og fremst með pappír og texta. Hún vildi alvöru stefnu­mótun og aðgerðir. Eftir end­ur­kom­una til borg­ar­innar varð Ellý borg­ar­rit­ari og stað­geng­ill borg­ar­stjóra. Þá unnum við nánar saman en nokkru sinni fyrr. Hún sótt­ist eftir því að fara tíma­bundið til starfa með lofts­lags­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna í aðdrag­anda lofts­lags­ráð­stefn­unnar í París 2015. Enginn var betur til þess fallin og við hlökk­uðum til að nýta okkur þá þekk­ingu og sam­bönd sem Ellý myndi afla sér eftir að heim yrði komið. Úr því varð minna en okkur dreymdi um.

Eftir heim­komu Ellýjar dróst smám saman upp mynd, sem hún lýsti síðar og rétti­lega svo að hún væri ekki söm og áður. Þar kom að við áttum trún­að­ar­fund tvö þar sem við ræddum áhyggjur mínar og líðan hennar. Það var, einsog öll önnur sam­skipti okkar, gott sam­tal en um leið einn erf­ið­asti fundur sem ég hef átt á löngum ferli. Ellý hefur sjálf sagt frá þessum degi á sinn ein­staka og hug­rakka hátt. Hún fór strax í leyfi og rann­sóknir sem við tóku sýndu það sem við ótt­uð­umst mest, að hún væri með snemm­kom­inn alzheimer-sjúk­dóm aðeins rétt rúm­lega fimm­tug. Þrátt fyrir grein­ing­una kom Ellý aftur til starfa hjá Reykja­vík­ur­borg en hvarf nú á sinn fyrri vett­vang á umhverf­is­sviði borg­ar­innar, sem ég veit að gaf henni mikið ekki síður en sam­starfs­fé­lögum hennar.

Við tóku erfið ár sem lit­uð­ust æ meira af fram­gangi sjúk­dóms­ins. Ég hef ekki dáðst að sam­bandi nokk­urra hjóna einsog þeirra Ellýjar og Magnúsar Karls í því sem á eftir fylgdi. Ellý sýndi styrk sinn og hug­rekki með því að ræða opin­skátt, af hrein­skilni, en líka húmor, um sjúk­dóm sinn og lífið í glímunni við hann. Það er ótölu­legur fjöldi fólks og fjöl­skyldna sem hefur sótt styrk í frá­sagnir hennar og ein­stak­lega fal­legt sam­band þeirra Magnúsar Karls. Magnús hefur sýnt ofur­mann­legan styrk í öll þessi ár og verið ótrú­lega opinn um ljós og skugga á þess­ari löngu og erf­iðu leið. Það var magnað að upp­lifa hvernig per­sónu­leiki Ellýjar, eðl­is­læg gleði og kær­leikur til ann­ars fólks og lífs­ins birt­ist í öllu við­móti hennar og sam­skiptum, líka þegar hall­aði undan fæti og sjúk­dóm­ur­inn tók smám saman völdin. Því fylgdi sann­ar­lega sorg að fylgj­ast með úr fjar­lægð þótt mann­leg reisn og feg­urð hafi ein­kennt svo margt í þessum átak­an­lega sjúk­dóms­gangi.

Eftir stendur gríð­ar­lega stór hópur fólks í þakk­ar­skuld við Ellý, þar á meðal er ég sann­ar­lega, en líka borgin okkar og umhverf­isum­ræðan á Íslandi og sá ótölu­legi fjöldi ein­stak­linga og hópa sem naut góðs af leið­sögn hennar, atfylgi og verk­efnum sem Ellý átti þátt í að vinna að og hrinda í fram­kvæmd. Að ógleymdu fram­lagi Ellýjar til opinnar umræðu um alzheimer-sjúk­dóm­inn og heila­bilun.

Við Arna viljum votta Magnúsi Karli, Ingi­björgu og Guðmundi og öllum öðrum aðstand­endum okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minn­ing Ellýjar Katrínar Guð­munds­dóttur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ