Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jón Gnarr minnist Ellýjar með mikilli hlýju: „Ég heyri dillandi hlátur hennar óma“

Jón Gnarr minnist Ellýjar með mikilli hlýju: „Ég heyri dillandi hlátur hennar óma“

Jón Gnarr ritar fal­legan pistil um Ellý Katrínu – þar sem hann segir að „leiðir okkar Ellýjar lágu saman þegar ég varð borg­ar­stjóri 2010. Hún var þá sviðs­stjóri yfir Umhverfis- og sam­göngu­sviði Reykja­vík­ur­borgar. Ég hreifst strax af henni einsog öllum öðrum sviðs­stjórum borg­ar­innar.

Ég átt­aði mig fljótt á því, í öllum þeim ólgu­sjó, sem borgin var að sigla í gegnum þá eftir hrun bank­anna og ára­langan póli­tískan óstöð­ug­leika í, að sviðs­stjór­arnir, æðstu stjórn­end­urnir myndu verða horn­steinn­inn í end­ur­reisn borg­ar­innar. Þau höfðu reynsl­una, þekk­ing­una, mennt­un­ina og ekki síst ástríð­una sem til þurfti. Átti ég ein­stak­lega gott sam­starf við þau öll.“

Bætir þessu við:

„Árið 2011 stóðum við meiri­hlut­inn fyrir ein­hverjum umfangs­mestu stjórn­kerf­is­breyt­ingum sem Reykja­vík­ur­borg hefur farið í gegnum. Embætti Borg­ar­rit­ara var end­ur­vakið sem hluti af því ferli. Borg­ar­rit­ari er yfir mið­lægri stjórn­sýslu og starfar með borg­ar­stjóra. Margt gott fólk sótti um þá stöðu en fremst meðal jafn­ingja var Ellý Katrín og hreppti hún stöð­una.

Skrif­stofa hennar var við hlið­ina á minni og unnum við mjög náið saman öll þau ár sem ég átti eftir að vinna í Ráð­hús­inu. -Þessi kona er með svona 200 í greind­ar­vísi­tölu ! man ég að ég sagði við Jógu konu mína þegar ég var að reyna að lýsa upp­lifun minni af sam­skiptum mínum við Ellý.

Ellý Katrín. Blessuð sé minn­ing hennar.

Hún var ótrú­lega greind en hafði líka til að bera þol­in­mæði, þraut­seigju og æðru­leysi til að full­nýta greind­ina. Hæglát og yfir­veguð tókst hún þol­in­móð á við verk­efni dags­ins og leysti þau af sinni alkunnu hæversku og lít­il­læti sem svo gjarnan ein­kennir gott og gáfað fólk.“

Jón bætir því við að „starfs okkar vegna þurftum við að ferð­ast mikið saman á ráð­stefnur og fundi erlendis. Og þótt við værum gjör­ó­líkir per­sónu­leikar þá tókst með okkur ein­stök vin­átta og engu lík­ara en við hefðum alltaf verið vinir.

Mér fannst gaman að koma vin­konu minni á óvart, segja eitt­hvað sem hún hafði ekki átt von á og sjá hana brosa. Mér fannst það líka það minnsta sem ég gat gert í allri þeirri alvöru sem við vorum að takast á við alla daga. Við náðum oft góðum hlát­ur­sköstum saman.

Og í gegnum sam­starfið kynnt­ist Ellý Jógu konu minni og við Magnúsi manni hennar.“

Hann heldur áfram og færir í tal að honum hafi alltaf verið „minn­is­stæð ferð sem við fórum öll saman til Færeyja sum­arið 2012. Þessi ferð hafði afger­andi áhrif á okkur hjónin. Ég hafði aldrei komið þangað áður og varð fyrir miklum hug­hrifum. Mér fannst einsog ég hefði verið að upp­götva stað á Íslandi sem ég vissi ekki að væri til. En Ellý var af fær­eyskum ættum. Móðir hennar var þaðan en hafði ung flust til Íslands.

Ellý var ein­stak­lega stolt af sinni fær­eysku arf­leið.“

Jón minn­ist á að „það var svo margt sem gerð­ist í þess­ari ferð að það væri alltof langt mál að fara að telja það allt upp hér. En það var allt ynd­is­legt. Vinátta okkar hélt áfram eftir að ég hætti hjá borg­inni. Það tókst líka mikil og öðru­vísi vin­átta á milli Jógu og Ellýjar. Það var okkur því mikið áfall þegar okkar elsku­lega og góða vin­kona greind­ist með þennan hræði­lega sjúk­dóm.

En jafn­vel því tók hún af því jafn­að­ar­geði og æðru­leysi sem ein­kenndi allt hennar líf, not­aði stöðu sína til að upp­lýsa aðra og vera fyr­ir­mynd.

Ég og við hjónin höfum fylgt okkar ást­kæru vin­konu í gegnum veik­indi hennar. Það hefur verið okkur ein­stak­lega sárt að sjá hvernig fjarað hefur undan henni hægt og bít­andi. Það er merki­leg þján­ing að vera mann­eskja. Þegar Ellý var orðin svo veik að hún var hætt að muna almenni­lega hver ég var þá fann ég samt alltaf svo sterkt hvað henni fannst vænt um mig og mikið til mín koma. Það var nokkuð sem maður fær ekki skilið nema með hjart­anu.“

Jón vill ásamt konu sinni, Jógu, votta „fjöl­skyldu Ellýjar okkar inni­leg­ustu samúð. Við minn­umst vin­konu okkar með hlýju og gleði. Þegar ég minn­ist Ellý Katrínar þá finn ég fyrir skar­pri hugsun, umhyggju fyrir öllu mann­eskju­legu og ástríðu fyrir umhverf­is­málum. Og ég heyri dill­andi hlátur hennar óma. Ég hvet að lokum öll til að kynna sér og styrkja minn­ing­ar­sjóð Ellý Katrínar. Markmið sjóðs­ins verður að veita árlega styrki til ein­stak­linga og verk­efna sem mæta þörfum þeirra sem grein­ast með heila­bilun, maka og ann­arra náinna aðstand­enda. Öllum sem vilja leggja mál­efn­inu lið er bent á eft­ir­far­andi reikn­ing:

nr: 0370-22-087656 kt: 2008647519

Blessuð sé minn­ing elsku Ellý Katrínar Guð­munds­dóttur.

Do not standBy my grave, and weep.I am not there,I do not sleep—I am the thousand winds that blowI am the diamond glints in snowI am the sunlight on ripened grain,I am the gentle, autumn rain.As you awake with morn­ing’s hush,I am the swift, up-fling­ing rushOf quiet birds in circling flight,I am the day transcending night.Do not standBy my grave, and cry—I am not there,I did not die.— Clare Harner

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ