Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigríður Dögg svarar gagnrýninni: „Starfslok Hjálmars vel ígrunduð“

Sigríður Dögg svarar gagnrýninni: „Starfslok Hjálmars vel ígrunduð“
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir segir að styrkt­ar­sjóður Blaða­manna­fé­lags­ins hafa verið á leið í þrot, þess vegna þurfi að skerða rétt­indi veikra blaða­manna.

Und­an­farið hefur stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands með for­maður þess, Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, sætt gagn­rýni frá eldri blaða­mönnum félags­ins en Hjálmar Jónsson, fyrrum fram­kvæmd­ar­stjóri félags­ins skrif­aði opið bréf til félaga BÍ og birti í nokkrum miðlum, þar á meðal hjá Mannlífi. Þar fer hann mik­inn og gagn­rýnir stjórn félags­ins og for­mann þess harð­lega. Þá gagn­rýndi elsti núlif­andi blaða­mað­ur­inn, Fríða Björns­dóttir bæði Sigríði Dögg og stjórn­ina í við­tali við Mannlíf. Gagn­rýndu þau bæði til að mynda laga­breyt­ingar sem kynntar voru á aðal­fundi BÍ í apríl á þessu ári og verður kosið um á fram­halds­að­al­fundi næst­kom­andi mið­viku­dag. Þar kveður á um að þeir félags­menn sem hætt hafa störfum sem blaða­menn vegna ald­urs eða örorku, missi atkvæð­is­rétt sinn á fundum félags­ins.
Þá hafa þau einnig gagn­rýnt að kaffi­hitt­ingur í húsa­kynnum félags­ins hafi verið úthýst en þar hafa eldri félags­menn í bland við yngri hist um áraraðir á föstu­dögum og fengið sér kaffi og kruð­erí og borið saman bækur sínar. Hjálmar hefur jafn­vel gengið svo langt að tala um að ofan­greind mál séu hefnd­ar­að­gerðir vegna gagn­rýni hans á störfum Sigríðar Daggar.

Einnig snéri gagn­rýni Hjálmars að skerð­ingu sjúkra­dag­pen­inga en í bréfi sínu sagði hann meðal ann­ars: „Ekkert í fjár­hags­stöðu Blaða­manna­fé­lags­ins rétt­lætir að ráð­ast með þessum hætti á kjör þeirra sem þurfa á sjúkra­dag­pen­ingum að halda vegna langvar­andi veik­inda. Við áttum, þegar ég lét af störfum, yfir 100 millj­ónir króna í vara­sjóði og félags­sjóður skil­aði alltaf góðum afgangi meðan ég hélt um stjórn­ar­taumana.“

Ekki hefndaraðgerðir

Varðandi ásökun Hjálmar sum hefnd­ar­að­gerðir svarar Sigríður Dögg:

„Einróma ákvörðun stjórnar BÍ um starfs­lok Hjálmars Jóns­sonar átti sér langan aðdrag­anda og var vel ígrunduð. Í aðdrag­and­anum hafði verið rætt við Hjálmar um að til stæði að ráða nýjan fram­kvæmda­stjóra, m.a. þar sem hann var sjálfur að nálg­ast starfs­lok vegna ald­urs. Var honum boðið að halda áfram störfum fyrir félagið, á óbreyttum kjörum en í öðru hlut­verki. Hann vildi ekki verða við þeim óskum stjórnar og var það meðal ann­ars vegna þess að hann átti ekki áfram að fara með fjár­ráð fyrir hönd félags­ins. Það virt­ist hann ekki geta sætt sig við. Varð það þá óhjá­kvæmi­leg og ein­róma nið­ur­staða stjórnar að Hjálmar þyrfti að ljúka störfum fyrir félagið. Sú ákvörðun kom einnig til vegna tregðu hans við að fram­fylgja stefnu­breyt­ingum og ákvörð­unum stjórnar, van­virð­andi fram­göngu hans gagn­vart stjórn­ar­mönnum og starfs­fólki, skorts á upp­lýs­ingum um fjár­mál og rekstur félags­ins og höfnun á að for­maður félags­ins fengi skoð­un­ar­að­gang að reikn­ingum félags­ins til að rækja mætti eft­ir­lits­hlut­verk stjórnar.“ 

Sigríður Dögg heldur áfram: „Ýmsar laga­breyt­inga­til­lögur liggja fyrir fram­halds­að­al­fundi BÍ og voru þær kynntar á aðal­fundi í apríl síð­ast­liðnum. Til­lög­urnar eru lagðar fram sam­kvæmt ein­róma ákvörðun stjórnar félags­ins. Ein af þeim snýr að félags­rétt­indum bið­fé­laga og líf­eyr­is­þega, þ.e. kjör­gengi og atkvæð­is­rétt. Lengi hefur ríkt óvissa um atkvæð­is­rétt í félag­inu og tíma­bært að skil­greina betur í lögum félags­ins. Meg­in­þorri stétt­ar­fé­laga hefur það að reglu að tak­marka eða afnema jafn­vel félags­rétt­indi félaga láti þeir af störfum vegna ald­urs. Vegna öldr­unar þjóð­ar­innar eykst hlut­fall líf­eyr­is­þega af félags­mönnum stöðugt og óeðli­legt að mati stjórnar að hópur sem ekki greiðir til félags­ins hafi atkvæð­is­rétt um mál­efni félags­ins, hver er þar í for­svari og hvernig kjara­málum er háttað, þó sami hópur njóti ann­arra félags­rétt­inda. Blaða­manna­fé­lag Íslands er bæði stétt­ar­fé­lag og fag­fé­lag og mat stjórnar að það skuli vera starf­andi blaða­menn sem hafi atkvæð­is­rétt um hvernig félagið beitir sér sem slíkt.“

Enn hægt að kíkja í kaffi

Hvers vegna var kaffi­stof­unni lokað? 

Sigríður Dögg: „Þetta er ekki rétt. Líf­eyr­is­þegar í Blaða­manna­fé­lag­inu hafa mætt í föstu­dags­kaffi nær því alla föstu­daga frá ára­mótum þótt stór hluti þeirra hafi kosið að hitt­ast ann­ars staðar. Öll eru að sjálf­sögðu vel­komin áfram í föstu­dags­kaffi í Síðu­múl­ann eins og starfs­fólk skrif­stofu hefur ítrekað. Þá eiga líf­eyr­is­þegar eins og aðrir félags­menn kost á að nýta hús­næði félags­ins til funda- og veislu­halda.“

Af hverju ákvað stjórnin að breyta lögum um eldri félags­menn og atkvæða­rétt þeirra?  Fyr­ir­finnst dæmi um slíkt í öðrum stétt­ar­fé­lögum?

„Lög og reglur meg­in­þorra stétt­ar­fé­laga gera ráð fyrir því að félags­rétt­indi fólks skerð­ist þegar það hættir störfum vegna ald­urs. Í mörgum félögum er það jafn­vel svo að fólk missir öll félags­rétt­indi sjálf­krafa við að hætta að greiða í sjóði. skv. athugun sem gerð var á u.þ.b. fimm­tíu félögum halda líf­eyr­is­þegar ein­vörð­ungu atkvæð­is­rétti í örfáum þeirra eftir starfs­lok. Í þeim félögum sem að líf­eyr­is­þegar halda atkvæð­is­rétti er iðu­lega sér­stak­lega tekið fram í lögum að atkvæð­is­rétt­ur­inn nái þó ekki til kjara­mála. Þá er hlut­fall líf­eyr­is­þega tals­vert lægra hjá þeim félögum sem heim­ila áfram­hald­andi atkvæð­is­rétt eða 1 – 2% eftir eft­ir­grennslan. Til sam­an­burðar er hlut­fallið hjá BÍ um 15%. Ekkert stétt­ar­fé­lag sem BÍ gerði athugun á veitir líf­eyr­is­þegum áfram­hald­andi sjóða­að­ild og styrki úr sjúkra­sjóðum eftir að hætt er að greiða iðgjöld í sjóð­ina.“ 

Bætir hún við:

„Samkvæmt laga­breyt­ing­ar­til­lögu stjórnar BÍ halda þeir félagar sem hafa hætt störfum sökum ald­urs til­lögu­rétti sínum og mál­frelsi á aðal­fundum. Auk þess er fyr­ir­hugað að stofna sér­staka líf­eyr­is­deild eins og þekk­ist hjá öðrum stétt­ar­fé­lögum til að taka mál­efni eldri félags­manna fast­ari tökum.“

Styrktarsjóðurinn stefndi í þrot

Af hverju stendur til að skerða rétt­indi veikra blaða­manna? 

Sigríður Dögg: „Styrkt­ar­sjóður BÍ hefur verið rek­inn með alls 60 milljón króna halla á síð­ustu 10 árum með þeim afleið­ingum að gengið hafði svo veru­lega á eigið fé sjóðs­ins að hann hefði tæmst á árinu 2024 ef ekki hefði verið gripið til ráð­staf­ana. Til að setja þessa upp­hæð í sam­hengi eru iðgjöld í sjóð­inn um 40 millj­ónir árlega. Önnur stétt­ar­fé­lög miða t.a.m. við að styrktar- og sjúkra­sjóðir eigi alltaf minnst þrefalt iðgjald árs­ins í sjóðnum til að mæta óvæntum sveiflum.“

Við þetta bætir Sigríður Dögg:

„Þær breyt­ingar sem gerðar hafa verið á úthlut­un­ar­reglum og tóku gildi í júní sl. miða að því að koma rekstri sjóðs­ins í sjálf­bært horf svo hann geti áfram gagn­ast félags­mönnum BÍ, einkum ef þeir lenda í langvar­andi veik­indum. Án breyt­ing­anna hefði sjóð­ur­inn farið í þrot. Við útfærslu breyttra úthlut­un­ar­regla var leitað til trygg­inga­stærð­fræð­ings sem hefur ára­tuga reynslu af því að meta gjald­þol sam­bæri­legra sjóða og farið að ráð­legg­ingum hans.

Stjórn styrkt­ar­sjóðs og stjórn BÍ kynnti sér jafn­framt ítar­lega hvaða reglur gilda um greiðslur úr sjóðum ann­arra stétt­ar­fé­laga. Af þeim tugum stétt­ar­fé­laga sem skoðuð voru var ein­ungis eitt sem greiðir styrki til líf­eyr­is­þega til lengri tíma en fárra mán­aða eða miss­era – og þá í 5 ár eftir starfs­lok.“

Að lokum bendir Sigríður Dögg á að breyt­ing­arnar séu ekki aft­ur­virkar.

„Til að rétta við halla­rekstur sem hefur verið á sjóðnum nær sleitu­laust frá árinu 2014 þurfti því miður að skerða lengd tíma­bils sjúkra­dag­pen­inga. Hins vegar var það ekki gert aft­ur­virkt eins og haldið hefur verið fram. Stjórn BÍ styrkti sjóð­inn um 25 millj­ónir úr vara­sjóði félags­ins á þessu ári til þess að koma í veg fyrir að hann færi í þrot, til við­bótar við þær 10 millj­ónir sem hún lagði sjóðnum til á síð­asta ári. Gætt var að því að félags­menn héldu áþekkum rétt­indum og þekk­ist hjá öðrum stétt­ar­fé­lögum en veik­inda­réttur blaða­manna er nokkuð rýmri en almennt þekk­ist á almennum vinnu­mark­aði. Það ætti að vera öllum ljóst að ekki gengur til lengdar að leggja sjóðnum til tugi millj­óna árlega án þess að stefna rekstri félags­ins í heild sinni í hættu. Breyt­ing­arnar ná ein­ungis til þeirra umsókna sem bár­ust eftir að regl­unum var breytt. Þær eru ekki aft­ur­virkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ