Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Alls 2020 bíða eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna – Tveir ráðherrar svara ekki umboðsmanni

Alls 2020 bíða eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna – Tveir ráðherrar svara ekki umboðsmanni
Salvör Nordal, umboðs­maður barna – Mynd: Skjáskot N4

Umboðs­maður barna birtir nú í sjötta sinn upp­lýs­ingar um bið barna eftir þjón­ustu.

Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá umboðs­manni barna að löng bið eftir þjón­ustu við börn hafi verið við­var­andi vanda­mál til margra ára. Frá því í des­em­ber 2021 hefur umboðs­mað­ur­inn staðið fyrir reglu­legri upp­lýs­inga­öflun um þann fjölda barna sem bíður eftir þjón­ustu hjá til­teknum aðilum, með það að mark­mikið að varpa ljósi á raun­veru­lega stöðu barna.

Eft­ir­far­andi sam­starfs­að­ilar verk­efn­is­ins eru: Barna- og fjöl­skyldu­stofa, lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,  Geð­heilsu­m­ið­stöð barna, Ráð­gjafar- og grein­ing­ar­stöð, Barna- og ung­linga­geð­deild LSH,  Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Heilsu­skóli  Barna­spít­al­ans og Heyrnar- og tal­meina­stöð Íslands.  

Umboðs­maður barna starfar sam­kvæmt lögum um umboðs­mann barna nr. 83/1994 og hefur það hlut­verk að standa vörð um hags­muni, þarfir og rétt­indi barna, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu umboðs­manns barna. Segir þar að liður í því sé að afla og miðla gögnum og upp­lýs­ingum um aðstæður barna og stöðu til­tek­inna hópa barna hverju sinni í sam­vinnu við ýmsa aðila. „Hluti af þeirri vinnu er að gera aðgengi­legar á einum stað  upp­lýs­ingar um þann fjölda barna sem bíður eftir til­tek­inni þjón­ustu hverju sinni.  Upp­lýs­ing­arnar eru upp­færðar á sex mán­aða fresti til að fylgj­ast með þró­un­inni,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Von umboðs­manns­ins er sú að birt­ing upp­lýs­ing­anna muni varpa ljósi á raun­veru­lega söðu barna í íslensku sam­fé­lagi og verði þannig stjórn­völdum hvatn­ing til að bregð­ast við og bæta úr. Þá er söfnun og birt­ing upp­lýs­ing­anna jafn­fram liður í því hlut­verki umboðs­manns barna að stuðla að frek­ari inn­leið­ingu Barna­sátt­mál­ans.

Það er von umboðs­manns barna að birt­ing þess­ara upp­lýs­inga muni varpa ljósi á raun­veru­lega  stöðu barna í íslensku sam­fé­lagi og verði stjórn­völdum hvatn­ing til aðgerða og úrbóta. Söfnun  og birt­ing upp­lýs­ing­anna er jafn­framt liður í því hlut­verki umboðs­manns að stuðla að frek­ari  inn­leið­ingu Barna­sátt­mál­ans.

Helstu nið­ur­stöður umboðs­manns­ins er sú að 2020 börn bíða hjá Geð­heilsu­m­ið­stöð barna og 1727 börn hafa beðið lengur en þrjá mán­uði. Áætlaður bið­tími eftir athugun vegna gruns um ADHD er að minnsta kosti 24 mán­uðir og 34 mán­uðir vegna gruns um ein­hverfu. Þá bíða 626 börn eftir grein­ingu hjá Ráð­gjafar- og grein­ing­ar­stöð en með­al­tími er yfir 20 mán­uðir. Alls hafa 553 börn beðið lengur en þrjá mán­uði. Hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins bíða 209 börn eftir að kom­ast að hjá sál­fræð­ingi og  með­al­bið­tími er 203 dagar. Þá kemur einnig fram í frétta­til­kynn­ing­unni að hjá göngu­deild BUGL bíða 47 börn og með­al­bið­tími er 1,8 mán­uður. Þá hafa 3 börn beðið lengur en þrjá mán­uði. Hundrað börn bíða svo eftir þjón­ustu Heilsu­skól­ans en með­al­bið­tími eru 12 mán­uðir og 84 börn hafa beðið lengur en þrjá mán­uði.

Fram kemur í tölvu­pósti frá umboðs­manni barna að tveir ráð­herrar rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar hafi ekki svarað fyr­ir­spurnum umboðs­manns­ins. „Þann 11. mars 2024 sendi umboðs­maður barna bréf til dóms­mála­ráð­herra, heil­brigð­is­ráð­herra og mennta- og barna­mála­ráð­herra þar sem umboðs­maður óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvernig ráð­herrar hygg­ist bregð­ast við við­var­andi bið barna eftir þjón­ustu. Svar barst frá heil­brigð­is­ráð­herra 9. júlí sl. en svar hefur hvorki borist frá dóms­mála­ráð­herra né mennta- og barna­mála­ráð­herra.“

Hér fyrir neðan má sjá frétta­til­kynn­ing­una í heild sinni:

Frétta­til­kynn­ing:  

Bið barna eftir þjónustu, nýjar tölur

Umboðs­maður barna birtir nú í sjötta sinn upp­lýs­ingar um bið barna eftir þjón­ustu. 

Löng bið eftir þjón­ustu við börn hefur verið við­var­andi vanda­mál til margra ára. Með það að  mark­miði að varpa ljósi á raun­veru­lega stöðu barna hefur umboðs­maður barna, frá því í  des­em­ber 2021, staðið fyrir reglu­legri upp­lýs­inga­öflun um þann fjölda barna sem bíður eftir  þjón­ustu hjá til­teknum aðilum. 

Sam­starfs­að­ilar verk­efn­is­ins eru Barna- og fjöl­skyldu­stofa, lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,  Geð­heilsu­m­ið­stöð barna, Ráð­gjafar- og grein­ing­ar­stöð, Barna- og ung­linga­geð­deild LSH,  Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Heilsu­skóli  Barna­spít­al­ans og Heyrnar- og tal­meina­stöð Íslands.  

Umboðs­maður barna starfar sam­kvæmt lögum um umboðs­mann barna nr. 83/1994 og hefur  það hlut­verk að standa vörð um hags­muni, þarfir og rétt­indi barna. Liður í því er að afla og  miðla gögnum og upp­lýs­ingum um aðstæður barna og stöðu til­tek­inna hópa barna hverju sinni  í sam­vinnu við ýmsa aðila. Hluti af þeirri vinnu er að gera aðgengi­legar á einum stað  upp­lýs­ingar um þann fjölda barna sem bíður eftir til­tek­inni þjón­ustu hverju sinni.  Upp­lýs­ing­arnar eru upp­færðar á sex mán­aða fresti til að fylgj­ast með þró­un­inni. 

Það er von umboðs­manns barna að birt­ing þess­ara upp­lýs­inga muni varpa ljósi á raun­veru­lega  stöðu barna í íslensku sam­fé­lagi og verði stjórn­völdum hvatn­ing til aðgerða og úrbóta. Söfnun  og birt­ing upp­lýs­ing­anna er jafn­framt liður í því hlut­verki umboðs­manns að stuðla að frek­ari  inn­leið­ingu Barna­sátt­mál­ans. 

Helstu nið­ur­stöður: 

  • Það bíða 2020 börn hjá Geð­heilsu­m­ið­stöð barna og 1727 börn hafa beðið lengur en þrjá mán­uði. Áætlaður bið­tími eftir athugun vegna gruns um ADHD er að minnsta kosti 24 mán­uðir og 34 mán­uðir  vegna gruns um ein­hverfu. 
  • Það bíða 626 börn eftir grein­ingu hjá Ráð­gjafar- og grein­ing­ar­stöð, með­al­bið­tími er yfir 20 mán­uðir.  Þá hafa 553 börn beðið lengur en þrjá mán­uði. 
  • Hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins bíða 209 börn eftir að kom­ast að hjá sál­fræð­ingi og  með­al­bið­tími er 203 dagar. 
  • Hjá göngu­deild BUGL bíða 47 börn og með­al­bið­tími er 1,8 mán­uður. Þá hafa 3 börn beðið lengur en  þrjá mán­uði. 
  • Það bíða 100 börn eftir þjón­ustu Heilsu­skól­ans, með­al­bið­tími eru 12 mán­uðir og 84 börn hafa beðið  lengur en þrjá mán­uði.

Nýjar upplýsingar og samanburður

Upp­lýs­ingar um bið barna eftir þjón­ustu eru aðgengi­legar á vef­síð­unni barn.is1 Heyrnar- og tal­meina­stöð Íslands 

Í byrjun júlí sl. biðu 418 börn eftir þjón­ustu hjá Heyrnar- og tal­meina­stöð. Þessi börn bíða  nær öll eftir heyrn­ar­mæl­ingu og sum einnig eftir annarri þjón­ustu heyrn­ar­fræð­inga eða lækna.  Með­al­bið­tími fyrir börn undir fjög­urra ára aldri var 4 mán­uðir og minna en 2 mán­uðir fyrir  eldri börn. Í lok jan­úar sl. biðu 553 börn hjá Heyrnar- og tal­meina­stöð. 

Heyrnar- og tal­meina­stöð Íslands er mið­stöð þekk­ingar í heyrnar- og tal­meinum á Íslandi. Þar  er veitt þjón­usta á lands­vísu, þeim sem eru heyrn­ar­skertir, heyrn­ar­lausir eða með mál og  tal­mein. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Fyrstu sex mán­uði þessa árs hafa 40 börn haft stöðu brota­þola í kyn­ferð­is­brota­máli og 63 í  ofbeld­is­brota­máli. Þá hafa 8 börn haft stöðu sak­born­ings í kyn­ferð­is­brota­máli og 79 í  ofbeld­is­brota­máli. Hér þarf að gera fyr­ir­vara þar sem um er að ræða bráða­birgða­tölur sem  geta tekið breyt­ingum aftur í tím­ann. 

Barna- og fjölskyldustofa

Upp­lýs­ingar um bið barna eftir úrræðum á vegum BOFS eru frá 1. sept­em­ber 2024. Úrræði á  vegum BOFS eru MST, Stuðlar, Bjargey, styrkt fóstur og Barnahús. 

  • MST – Það biðu 24 börn eftir þjón­ustu MST teymis og með­al­bið­tími var 89 dagar. Þá  höfðu 3 börn beðið lengur en þrjá mán­uði.  

MST er með­ferð­ar­úr­ræði á vegum Barna- og fjöl­skyldu­stofu fyrir fjöl­skyldur barna á  aldr­inum 12-18 ára sem glíma við alvar­legan hegð­un­ar­vanda. 

  • Stuðlar – Það biðu 5 börn eftir þjón­ustu með­ferð­ar­deildar Stuðla, með­al­bið­tími var 53 dagar. 

Stuðlar eru með­ferð­ar­stöð fyrir börn og ung­linga frá 12 til 18 ára, Stuðlar skipt­ast í þrjár  deildir, neyð­ar­vistun, með­ferð­ar­deild og stuðn­ings­heim­ilið Fanna­fold. 

  • Bjargey – Það beið 1 barn eftir plássi á Bjargey og með­al­bið­tími var 34 dagar. 

Bjargey er lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ili sem er ætlað stúlkum og kynsegin. Meg­in­mark­mið  með­ferð­ar­heim­il­is­ins er einkum að veita sér­hæfða með­ferð vegna alvar­legra  hegð­un­ar­erf­ið­leika og vímu­efna­neyslu. 

  • Styrkt fóstur – Það biðu 6 börn eftir því að kom­ast í styrkt fóstur og með­al­bið­tími var  59 dagar. 

1 https://www.barn.is/barnasattmalinn/bid-eftir-thjonustu/upplysingar-um-bid-eftir-thjonustu-1

Styrkt fóstur er þegar þörf er fyrir sér­staka umönnun og þjálfun barns á fóst­ur­heim­ili í  tak­mark­aðan tíma, að hámarki tvö ár. Gjarnan er um að ræða börn sem eiga við íþyngj­andi  til­finn­inga- og hegð­un­ar­vanda að etja sem ekki hefur tek­ist að vinna bug á með öðrum og  væg­ari hætti. 

Ráðgjafar- og greiningarstöð

Í ágúst 2024 beið 381 barn á aldr­inum 0-6 ára eftir þver­fag­legri grein­ingu hjá Ráð­gjafar- og  grein­ing­ar­stöð, með­al­bið­tími var 22,8 mán­uðir og 333 börn höfðu beðið lengur en þrjá  mán­uði. Jafn­framt biðu 245 börn á aldr­inum 6-18 ára eftir þver­fag­legri grein­ingu.  Með­al­bið­tími í þeim ald­urs­hópi var 20 – 22 mán­uðir og 220 börn höfðu beðið lengur en þrjá  mán­uði. 

Þeim börnum sem bíða eftir þjón­ustu Ráð­gjafar- og grein­ing­ar­stöðvar hefur fjölgað nokkuð frá því umboðs­maður kall­aði fyrst eftir þessum upp­lýs­ingum í des­em­ber 2021. Þá biðu 226 börn hjá sviði yngri barna (0-6 ára) og 100 börn hjá sviði eldri barna (6-18 ára). Samtals biðu  því 326 börn í des­em­ber 2021 en nú bíða 714 börn. 

Hlutverk Ráð­gjafar- og grein­ing­ar­stöðvar er að tryggja að börn með alvar­legar  þroska­skerð­ingar sem leitt geta til fötl­unar síðar á ævinni fái grein­ingu, ráð­gjöf og önnur  úrræði sem bæta lífs­gæði þeirra. 

Barna- og unglingageðdeild (BUGL)

Í lok ágúst 2024 biðu 43 börn eftir þjón­ustu göngu­deildar BUGL (teymi A og B), af þeim  beið 1 barn eftir þjón­ustu tran­steymis. Með­al­bið­tími var 1,8 mán­uður og 8 börn höfðu beðið  lengur en þrjá mán­uði. Þar að auki biðu 4 börn eftir átrösk­un­ar­með­ferð göngu­deildar. Hér er  um að ræða nokkra aukn­ingu frá því í febr­úar sl. en þá biðu 19 börn eftir þjón­ustu  göngu­deildar og 3 hjá átrösk­un­arteym­inu.  

Göngu­deild barna- og ung­linga­geð­deildar veitir börnum og ung­lingum að 18 ára aldri  þjón­ustu vegna geð- og þroskarask­ana. 

Geðheilsumiðstöð barna

Í ágúst 2024 biðu 2020 börn hjá Geð­heilsu­m­ið­stöð barna og 1727 börn höfðu beðið lengur en  þrjá mán­uði. Þar af biðu 615 börn eftir athugun vegna gruns um ein­hverfu og með­al­bið­tími  var að minnsta kosti 34 mán­uðir. Þá biðu 1124 börn eftir athugun vegna gruns um ADHD  með eða án ein­hverfu og 966 börn höfðu beðið lengur en þrjá mán­uði. Þeim börnum sem bíða  eftir grein­ingu hjá Geð­heilsu­m­ið­stöð barna hefur fjölgað tölu­vert frá því umboðs­maður barna  kall­aði fyrst eftir upp­lýs­ingum um bið barna eftir þjón­ustu í des­em­ber 2021 en þá biðu 738  börn. 

Geð­heilsu­m­ið­stöð barna (GMB) veitir 2. stigs heil­brigð­is­þjón­ustu á lands­vísu fyrir börn að  18 ára aldri. Mið­stöðin sinnir grein­ingu, ráð­gjöf og með­ferð vegna geð- og þroska­vanda  barna og ung­linga.

Heilsuskólinn

Það biðu 100 börn eftir því að kom­ast að hjá Heilsu­skól­anum í lok ágúst 2024. Með­al­bið­tími  var 12 mán­uðir og 84 börn höfðu beðið lengur en 3 mán­uði. 

Heilsu­skóli Barna­spít­al­ans þjónar öllu land­inu og aðstoðar börn og fjöl­skyldur þeirra sem eru  2,5 stað­al­frá­vikum fyrir ofan með­al­kúrfu í BMI eða börn sem hafa verið með mikla  þyngd­ar­aukn­ingu á stuttum tíma. Í Heilsu­skól­anum eru fjöl­skyldum kenndar aðferðir til að  takast á við þyngd­ar­stjórnun og við­halda breyt­ingum ásamt því að bæta lífs­gæði til lengri  tíma. Leitast er við að hvetja börnin áfram með styðj­andi hætti ásamt því að veita ráð­gjöf um  matar­æði og hreyf­ingu. 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Í ágúst biðu 209 börn eftir þjón­ustu sál­fræð­ings hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og  með­al­bið­tími var 203 dagar. Þá höfðu 154 börn beðið lengur en þrjá mán­uði. 

Sál­fræð­ingar á heilsu­gæslu­stöðvum veita börnum með­ferð vegna hegð­unar- og  til­finn­inga­vanda ásamt því að veita for­eldrum þeirra ráð­gjöf. Læknir á heilsu­gæslu­stöð þarf  að senda til­vísun til sál­fræð­ings til nán­ara mats ásamt því að upp­lýsa um áætl­aðan bið­tíma. 

Talmeinafræðingar

Sjúkra­trygg­ingar Íslands gerðu úttekt á stöðu barna sem biðu eftir þjón­ustu tal­meina­fræð­inga  í des­em­ber 2021 en þá voru 3.701 barn skráð á biðlista, þar af voru 947 börn skráð á fleiri en  einum stað. Flest börn á biðlistum höfðu beðið í 0 – 6 mán­uði (eða um 30%) en um 11%  höfðu beðið lengur en 2 ár. Engar hald­bærar upp­lýs­ingar liggja fyrir um hvernig þró­unin  hefur verið frá árinu 2021 þar sem biðlistar og kerfi eru ekki sam­ræmd. Að mati  umboðs­manns barna ber stjórn­völdum að grípa til aðgerða með það að mark­miði að koma í  veg fyrir að börn þurfi að bíða eftir þjón­ustu tal­meina­fræð­inga. Þar til því mark­miði verður  náð ber stjórn­völdum að sjá til þess að hægt sé að nálg­ast upp­lýs­ingar með reglu­bundnum  hætti um það hversu mörg börn séu á biðlistum eftir þess­ari þjón­ustu. Slík upp­lýs­inga­öflun er  grund­vall­ar­for­senda þess að hægt sé að leggja mat á stöð­una hverju sinni og grípa til  við­eig­andi aðgerða 

Umboðs­maður barna sendi heil­brigð­is­ráð­herra bréf 26. febr­úar sl. þar sem óskað var eftir  upp­lýs­ingum um hvort það standi til að koma á mið­lægum biðlistum eftir þjón­ustu  tal­meina­fræð­inga fyrir börn. Svar hefur ekki borist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ