Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Glapræði að ráðast í óafturkræfar framkvæmdir á meðan rannsóknarniðurstöður liggja ekki fyrir“

„Glapræði að ráðast í óafturkræfar framkvæmdir á meðan rannsóknarniðurstöður liggja ekki fyrir“

Þar sem nátt­úran tapar er yfir­skrift greinar er Hólm­fríður Jenný Árna­dóttir – sem er leik­skóla­stjóri, odd­viti Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs í Suð­ur­kjör­dæmi og stjórn­ar­kona í hreyf­ing­unni – skrifar, og hefst hún svona.

„Fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir vegna atvinnu­starf­semi í og við Þor­láks­höfn, sem mikið hefur verið fjallað um und­an­farið, hafa vakið ugg hjá mörgum íbúum svæð­is­ins. Iðn­að­ar­svæðið vestan Þor­láks­hafnar munu nefni­lega verða mjög sýni­legt og gjör­breyta ásýnd strand­svæð­is­ins til fram­búðar að mati Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands.“

Hólm­fríður segir að „almennt séð verður um gíf­ur­lega mikið rask að ræða og munu til dæmis fyr­ir­hug­aðar bygg­ingar möl­un­ar­verk­smiðju Heidel­berg sjást frá stöðum líkt og Sel­vogs­vita, Karls­minni, Arn­ar­keri og fjör­unni við Eyr­ar­bakka sem skráðir eru sem áhuga­verðir staðir á vefsjá Ferða­mála­stofu. Verk­smiðjan mun sjást á nán­ast allri göngu­leið­inni frá Hafn­ar­nesi að Sel­vogs­vita og áhrifa mun gæta á öðrum svæðum sem nýtt eru til úti­vistar og geta verið við­kvæm fyrir ásýnd­ar­á­hrifum enda muni fram­kvæmdin hafa bein og var­an­leg áhrif á ásýnd í allt að 20 km fjar­lægð frá verk­smiðj­unni.“

Hún færir í tal að „mann­virki verk­smiðju Heidel­berg munu einnig vera umfangs­mikil og ráð­gert er að lækka efri hluta hrauns­ins sem hún mun standa á um nokkra metra auk þess sem veru­legar breyt­ingar á jarð­mynd­unum næst strönd­inni, vegna afrennslis frá sett­jörnum og hafn­ar­gerðar, munu verða að veru­leika. Hafs­botni þarf að raska mjög mikið með dýpkun til að koma upp starf­hæfri höfn og gríð­ar­legri umbreyt­ing mun eiga sér stað á stóru svæði við Þor­láks­höfn.“

Hólm­fríður ljær máls á því að „hug­myndir um efn­is­töku við Sel­vogs­banka sem er afar verð­mætt svæði eru afskap­lega var­huga­verðar. Bæði vegna líf­ríkis eins og komið hefur fram í skrifum margra en einnig mun efn­is­þörf vegna hafn­ar­gerðar verða tölu­vert umfangs­mikil og ekki er fyrir séð úr hvaða námum sú efn­istaka eigi að fara fram. Það er nefni­lega ekki sjálf­bært til fram­tíðar að ein­stök sveit­ar­fé­lög og land­eig­endur taki ákvarð­anir um efn­is­töku á móbergi (eða hverju öðru hrá­efni í nátt­úr­unni) á for­sendum stakra verk­efna heldur þarf að móta heild­stæða stefnu byggða á greina­góðu mati til að tryggja megi sjálf­bæra land­nýt­ingu og vernd. Samkvæmt 61. gr. laga nr. 60/2013 um nátt­úru­vernd njóta ákveðnar jarð­mynd­anir sér­stakrar verndar. Hluti fyr­ir­hug­aðs fram­kvæmda­svæðis (litla Sandfell) er stað­sett á Leit­ar­hrauni sem er rúm­lega 5000 ára gam­alt.“

Hún bendir á að „í hraun­inu er að finna marga hella þ.á.m. Rauf­ar­hóls­helli, Arnarker og Árna­helli. Samkvæmt 3. mgr. ákvæð­is­ins skal forð­ast röskun þeirra nátt­úru­fyr­ir­bæra, sem undir grein­ina falla, nema brýna nauð­syn beri til og ljóst að aðrir kostir séu ekki til staðar. Mikil áhersla er á að ein­ungis mjög ríkir hags­munir geti rétt­lætt röskun og þá fyrst og fremst brýnir almanna­hags­munir. Erfitt er að sjá hvaða brýnu hags­muni er um að ræða, auk þess er rask á hrauni er var­an­leg og óaft­ur­kræf aðgerð sem verður hvorki bætt né milduð með mót­væg­is­að­gerðum. Heidel­berg er einnig með áætl­anir um námu­vinnslu af hafs­botni sem mun hafa gríð­ar­leg bein og óaft­ur­kræf áhrif á jarð­mynd­anir og sjáv­ar­botn.“

Hólm­fríður telur að umfang áhrif­anna sé afar „mikið þar sem nálega öllu hrauni innan athafna­svæðis verður raskað og heild­ar­á­hrif á jarð­mynd­anir og hafs­botn eru nei­kvæð að mati sér­fræð­inga. Lífríki sveit­ar­fé­lags­ins og lands­ins alls mun bera skaða af. Námu­svæðið er innan mik­il­vægs hrygn­ing­ar­svæðis verð­mætra nytja­stofna, mögu­lega verð­mætasta hrygn­ing­ar­svæði lands­ins og því ein­stakt nátt­úru­fyr­ir­bæri. Fuglalíf mun einnig verða fyrir skaða þar sem sand­síli sem halda sig í fjör­unni og eru lyk­il­teg­und í vist­kerfi Sel­vogs­banka eru mik­il­væg­asta fæða flestra sjó­fugla­teg­unda. Þá er bent á að grunn­sævið verði fyrir var­an­legu og óaft­ur­kræfu raski með til­heyr­andi áhrifum á líf­ríki þess.“

Hólm­fríður segir síðan að end­ingu að „Land­vernd ályktaði á síð­asta lands­fundi um mik­il­vægi þess að koma 5% allra haf­svæða við landið undir stranga vernd og að ráð­ast þyrfti í viða­miklar rann­sóknir á vist­kerfum haf­botns­ins til að ákvarða hvaða 30% haf­svæða (að lág­marki) þarfn­ist verndar á grund­velli mik­il­vægra vist­kerfa. Næsta víst er að Sel­vogs­banki myndi falla þar undir og því glapræði að ráð­ast í óaft­ur­kræfar og eyði­leggj­andi fram­kvæmdir á meðan rann­sókn­ar­nið­ur­stöður liggja ekki fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ