Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ómar R. Valdimarsson vann mál gegn fyrrum skjólstæðingi – Úrskurðarnefnd lögmanna gerð afturreka

Ómar R. Valdimarsson vann mál gegn fyrrum skjólstæðingi – Úrskurðarnefnd lögmanna gerð afturreka
Ómar R. Valdi­mars­son Mynd: Þór Ægisson

Lög­mað­ur­inn Ómar R. Valdi­mars­son vann mál gegn fyrrum skjól­stæð­ingi sínum í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær. Með dóm­inum ógilti Hér­aðs­dóm­ur­inn úrskurð úrskurð­ar­nefndar lög­manna í máli sem hinn stefndi hafði kvartað yfir starfs­háttum Ómars sem lög­manns.

Í gær vann lög­mað­ur­inn umdeildi, Ómar R. Valdi­mars­son mál gegn manni sem hafði kvartað undan starfs­háttum Ómars til úrskurð­ar­nefndar lög­manna en hann hafði verið lög­maður hans og eig­in­konu þess stefnda í skiln­að­ar­máli þeirri. Krafðist Ómar þess að úrskurður úrskurð­ar­nefndar lög­manna í máli nr. 7/2023 yrði felldur úr gildi.

Tildrög málsins

Um til­drög máls­ins segir í dómnum:

„Tildrög máls­ins eru þau að stefndi stóð í skiln­aði við maka sinn og gætti stefn­andi, sem er lög­maður, hags­muna makans. Veitti stefndi umboð til stefn­anda til að ganga frá því máli. Mætti stefn­andi til sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 8. des­em­ber 2022 og lagði fram beiðni um skilnað fyrir hönd makans, en kvaðst jafn­framt  mæta í umboði stefnda. Af hálfu stefnda var litið svo á að hann hefði áður verið búinn að aft­ur­kalla umboð sitt til stefn­anda. Þá hefði stefn­andi að mati stefnda ekki getað gætt hags­muna stefnda þar sem þeir hefðu skar­ast á við hags­muni makans. Af þessu til­efni kvart­aði stefndi til úrskurð­ar­nefndar lög­manna 14. mars 2023 vegna starfs­hátta stefn­anda. Undir rekstri máls­ins fyrir nefnd­inni lagði stefn­andi fram til­kynn­ingu heim­il­is­læknis sonar stefnda til barna­verndar, þar sem lýst er áliti lækn­is­ins á ástandi barns­ins og grun hans um hugs­an­lega kyn­ferð­is­lega hátt­semi stefnda í garð barns­ins. Varð sú gagna­fram­lagn­ing til þess að stefndi lagði fram aðra kvörtun til nefnd­ar­innar þar sem kvartað var sér­stak­lega undan þeirri fram­lagn­ingu sem stefndi taldi meðal ann­ars brjóta gegn frið­helgi einka­lífs síns og gegn trún­að­ar­skyldum stefn­anda í sinn garð.“

Úrskurð­ar­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu þann 7. nóv­em­ber 2023, að Ómar hefði tekið að sér hags­muna­gæslur fyrir stefnda í and­stöðu við 6. mgr. 11. gr siða­reglna lög­manna, „þ.e. í and­stöðu við við bann siða­reglna lög­manna gegn því að lög­maður taki að sér hags­muna­gæslu fyrir skjól­stæð­inga í sama máli sem eiga skar­andi hags­muni, eða eftir atvikum skyldum hans til að gera við­eig­andi úrbætur eftir að honum varð sá hags­muna­á­rekstur ljós,“ eins og það er orðað í dómnum. Var sú hátt­semi Ómars ekki talin sam­rým­ast „góðum lög­manns­háttum“ sam­an­ber 1.mgr. 27. laga nr. 77/1998 um lög­menn. Aukreitis taldi úrskurð­ar­nefndin að það að Ómar skyldi leggja fram án þess að til­efni var til, áður­greint skjal frá lækni þar sem við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar barns og hins stefnda var að finna, „sam­rýmd­ist ekki þeirri til­lits­semi sem lög­mönnum bæri að sýna gagn­að­ilum skjól­stæð­inga sinna í skiln­ingi 34. gr. siða­reglna lög­manna.“ Var Ómari gert að sæta áminn­ingu auk þess að greiða stefnda 201.500 krónur í máls­kostnað.

Sætti sig ekki við úrskurðinn

Ómar sætti sig ekki við þann úrskurð og höfð­aði því mál til að fá honum hnekkt. Hélt hann því meðal ann­ars fram að máls­at­vikum hafi verið rang­lega lýst í úrskurði nefnd­ar­innar. Í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur segir orð­rétt:

„Stefn­andi byggir dóm­kröfu sína á því að máls­at­vikum sé rang­lega lýst í úrskurði nefnd­ar­innar. Stefndi hafi sann­ar­lega veitt stefn­anda umboð sem ekki hafi verið aft­ur­kallað. Stefndi og maki hans hafi í reynd verið sam­stíga um efni sam­komu­lags þeirra á fundi hjá stefn­anda. Ekki hafi verið ljóst að hags­munir stefnda og þáver­andi maka hans skör­uð­ust eins og atvikum hafi verið háttað. Nauð­syn­legt hafi verið að leggja fram fyrr­greinda til­kynn­ingu læknis í því skyni að nefndin gæti leyst úr mál­inu og hafi það verið liður í vörnum stefn­anda sem honum hafi verið nauð­syn­legt að grípa til. Skjalið hafi rennt stoðum undir máls­at­vika­lýs­ingu stefn­anda og um leið hrakið lýs­ingu stefnda á atvikum á skrif­stofu stefn­anda 25. nóv­em­ber 2022. Lýsingar stefnda á máls­at­vikum til nefnd­ar­innar hafi verið rangar. Úrskurður nefnd­ar­innar hafi verið hald­inn fjöl­þættum ógild­ingarann­mörkum. Vegna þeirra beri að ógilda úrskurð­inn, sbr. ákvæði 5. mgr. 28. gr. laga nr. 77/1998, en það kveði á um að þegar máli sé lokið fyrir úrskurð­ar­nefnd­inni sé aðila að því heim­ilt að leita fyrir dómi ógild­ingar á úrskurði hennar.“

Fram kemur einnig í dómnum að sá stefndi hafi ekki sett fram neinar efn­is­varnir gegn dóm­kröfu Ómars og hafi ekki skilað grein­ar­gerð í mál­inu. „Við þessar aðstæður telst stefndi ekki hafa sett fram nein rök­studd mót­mæli gegn kröfu stefn­anda, þar á meðal gegn mála­til­bún­aði stefn­anda um að röng máls­at­vika­lýs­ing hafi verið lögð til grund­vallar í hinum umþrætta úrskurði,“ segir í dómnum og er bætt við: „Þannig ber að dæma málið eftir kröfum og mála­til­bún­aði stefn­anda að því leyti sem er sam­rým­an­legt fram­komnum gögnum, nema gallar séu á mál­inu sem varði frá­vísun þess án kröfu, sbr. 2. mgr. 96. gr. laga nr. 91/1991 um með­ferð einka­mála.“

Mat dóm­ur­inn sem svo að engir gallar hafi verið á mála­til­bún­aði Ómars í mál­inu. í dómnum segir enn­fremur: „Við mat á því hvort fram­lögð gögn séu í sam­ræmi við kröfu stefn­anda á hendur stefnda verður ekki fram hjá því litið að í mál­inu liggur fyrir skjal sem und­ir­ritað er af lög­manni stefn­anda og þeim lög­manni sem gætti hags­muna stefnda við fyr­ir­töku máls­ins fyrir dómi áður en þing­sókn hans féll niður. Í skjal­inu kemur fram að aðilar séu ásáttir um að hinn umþrætti úrskurður, sem til­kom­inn var vegna kvart­ana stefnda, verði felldur úr gildi.“

1-0

Í dóms­orð­inu segir ein­fald­lega: „Felldur er úr gildi úrskurður úrskurð­ar­nefndar lög­manna í máli nr. 7/2023.“

Ómar R. Valdi­mars­son var að vonum ánægður með dóm­inn en hann birti skjá­skot af nið­ur­stöð­unni á sam­fé­lags­miðlum og skrif­aði við hana:
„Ómar: 1 stig Úrskurð­ar­nefnd lög­manna: 0 stig.“

1-0.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ