Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

HSÍ gerir samning við Adidas – Umdeilt merki Rapyd ennþá á treyjunni

HSÍ gerir samning við Adidas – Umdeilt merki Rapyd ennþá á treyjunni
Ný treyja lands­liðs­ins – Mynd: HSÍ

Hand­knatt­leiks­sam­band Íslands hefur gert samn­ing við Adidas en þýska fyr­ir­tækið mun sjá um bún­inga karla- og kvenna­lands­liða Íslands í hand­bolta. Athygli vekur að merki Rapyd er ennþá á treyj­unni en sam­starf HSÍ við Rapyd hefur verið harð­lega gagn­rýnt og umdeilt.

Hægt er að lesa til­kynn­ingu HSÍ um sam­starfið hér fyrir neðan.

HSÍ hefur gert samn­ing­ing við nýjan bún­inga­fram­leið­anda hand­knatt­leiks­sam­bands­ins og er það Adidas. Þetta er stórt skref fyrir HSÍ, þar sem Adidas er eitt virtasta og þekktasta íþrótta­vöru­merki heims og merkið þekkt fyrir gæði og fram­úr­skar­andi hönnun, sem hefur gert vöru­merkið að eft­ir­sókn­ar­verðum sam­starfs­að­ila íþrótta­fólks um heim allan. Sam­starfið við Adidas und­ir­strikar metnað HSÍ og við­ur­kenn­ingu á þeirri stór­sókn sem íslenskur hand­bolti hefur verið í und­an­farin ár.

Að fá Adidas sem sam­starfs­að­ila er mik­il­vægt fyrir íþrótta­hreyf­ing­una á Íslandi, bæði sem gæða­stimp­ill og áminn­ing um alþjóð­legan stuðn­ing við íslenskan hand­bolta.

Framundan eru stór verk­efni fyrir HSÍ og lands­lið Íslands. A lands­lið kvenna heldur af landi brott á morgun og leikur tvo vin­áttu­leiki gegn Sviss í und­ir­bún­ingi fyrir EM 2024. Stelp­urnar okkar munu ferð­ast til Innsbruck í Aust­ur­ríki þar sem þær taka þátt í riðla­keppni Evr­ópu­móts­ins og mæta sterkum liðum eins og Hollandi, Úkraínu og Þýska­landi. A lands­lið karla á líka spenn­andi verk­efni framundan, þar sem þeir munu keppa á HM 2025, en mótið verður haldið í Króatíu, Danmörku og Noregi í jan­úar.

Í vin­áttu­lands­leikj­unum gegn Sviss frum­sýnir kvenna­lands­liðið nýju Adidas keppn­is­treyj­una og er sú frum­sýn­ing tákn­rænn áfangi fyrir end­ur­nýjað sam­starf HSÍ og Adidas. Síðast unnu Adidas og HSÍ saman árið 1997 og því er ánægju­legt að fá þetta frá­bæra vöru­merki aftur til liðs við íslenskan hand­bolta. Samn­ing­ur­inn gildir í fjögur ár og tryggir lands­lið­unum aðgang að fyrsta flokks íþrótta­bún­aði og gefur von um frek­ari upp­bygg­ingu og styrk­ingu hand­bolt­ans á Íslandi á kom­andi árum.

„Það er mikið fagn­að­ar­efni fyrir HSÍ þegar skrifað er undir sam­starfs­samn­inga við nýja bak­hjarla. Flestir bak­hjarlar HSÍ í dag hafa verið í bak­varða­sveit okkar í yfir ára­tugi og er það von okkar hjá HSÍ að sam­starfið við Adidas verði far­sælt og ánægju­legt. Adidas er eitt sterkasta vöru­merki heims og það er mikil ánægja að ná samn­ingi við Adidas.“ segir Guð­mundur B. Ólafsson, for­maður HSÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð