Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sósíalistar efstir en Sjallar neðstir: „Segja að leigjendur séu of lítill hópur til að skipta máli“

Sósíalistar efstir en Sjallar neðstir: „Segja að leigjendur séu of lítill hópur til að skipta máli“

Hér á eftir fer ein­kunna­gjöf Leigj­enda­sam­tak­anna á stefnu flokk­anna í mál­efnum Leigj­enda.

Formaður Leigj­enda­sam­tak­anna hefur stigið tíma­bundið til hliðar í ljósi fram­boðs síns fyrir Sós­í­alista­flokk­inn.

Vara­for­maður sam­tak­anna tók því við sem starf­andi for­maður og leiddi sam­tölin við flokk­ana.

Þessi ein­kunna­gjöf er unnin af starf­andi for­manni og stjórn Leigj­enda­sam­tak­anna með það að mark­miði að upp­lýsa þá leigj­endur sem við náum til um stefnu flokk­anna í okkar málum.

1. sæti – Sósíalistaflokkur Íslands

Sanna Magda­lena borg­ar­full­trúi sós­í­alista.

Við viljum vera hrein og bein með það að for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna er í fram­boði fyrir Sós­í­alista, og við þekkjum hann auð­vitað vel. Við teljum að leigj­endur geti ekki fengið betri bar­áttu­mann en hann inn á þing. Flokk­ur­inn styður kröfur Leigj­enda­sam­tak­anna um kostn­að­ar­teng­ingu leigu og end­ur­skoðun á húsa­leigu­bóta­kerf­inu.

Það sem skilur Sós­í­alista frá öðrum er vilji þeirra til að byggja á félags­legum grunni – að taka utan um okkar fátæk­asta fólk sem hefur verið á ver­gangi frá hrun­inu. Ætla að koma böndum á Airbnb og stuðla að nýt­ingu tóms íbúð­ar­hús­næðis. Við sjáum enga ástæðu til að efast um fram­kvæmd­ar­vilja Sós­í­alista og trúum að þeir muni sann­ar­lega berj­ast fyrir leigj­endur og fast­eigna­eig­endur – enda hafa þeir ekki enn kom­ist til valda og því aldrei svikið sín lof­orð.

2. sæti – Flokkur fólksins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins

Það er ekki mikið sem skilur á milli efstu tveggja flokka hjá okkur. Flokkur fólks­ins hefur lýst yfir stuðn­ingi við við­mið­un­ar­verð á leigu og breyt­ingar á leigu­bóta­kerf­inu. Þau hafa lagt til nýtt hús­næð­is­lána­kerfi sem svipar til gamla verka­manna­bú­staða­kerf­is­ins, sem okkur líst vel á.

Við berum mikið traust til Ragnars Þórs, sem hefur leitt hús­næð­is­stefnu flokks­ins. Alveg eins og með Sós­í­alista, sjáum við enga ástæðu til að efast um vilja Flokks fólks­ins til verka – við höfum dæmi um störf Ragnars Þórs í þágu hús­næð­is­mark­að­ar­ins á Íslandi.

3. sæti – Samfylkingin

Koma Kristrúnar í for­manns­stól Sam­fylk­ingar hefur skilað sér vel.

Við hittum hús­næð­is­hóp Sam­fylk­ing­ar­innar í ágúst og náðum að koma á fram­færi ákveðnum málum, eins og ein­ing­ar­hús­unum.

Sú stefna kom fram þegar full­trúi okkar benti á að Alþingi bæri loka­á­byrgð og ætti að geta sett lög, flutt inn ein­ing­ar­hús og reist á stuttum tíma til að bregð­ast við bráða­vanda.

Ætla að koma böndum á Airbnb og stuðla að nýt­ingu tóms íbúð­ar­hús­næðis.

Vilja breyta van­nýttu iðn­að­ar­hús­næði í góðar íbúðir.

Eru sam­mála okkur um skað­semi fjár­festa á hús­næð­is­mark­aði.

Skrefin sem þau vilja taka eru ekki nógu öflug; að segj­ast vilja taka á aðkomu fjár­festa en taka ekki á því að 1 af hverjum 4 heim­ilum er undir sjálfs­vald leigu­sala er stefna sem er dæmd til að mis­takast. Jóhann Páll hefur lýst yfir vilja til að skoða kostn­að­ar­teng­ingu leigu. Þó við teljum trú­verð­ug­leika þeirra nokkuð góðan, getum við ekki horft fram­hjá aðgerð­ar­leysi í hús­næð­is­málum í Reykja­vík, þar sem hús­næð­is­verð hefur tífald­ast frá alda­mótum. Rík­is­stjórn Íslands ber þó höf­uð­á­byrgð á þess­ari þróun.

4. sæti – Píratar

Lenya Rún Taha Ka­rim. Mynd/skjá­skot. Stúd­enta­blaðið.

Nálægt Sam­fylk­ing­unni í flestum málum; hafa tekið upp hug­myndir eftir fund okkar með þeim.

Ætla að koma böndum á Airbnb og stuðla að nýt­ingu tóms íbúð­ar­hús­næðis.

Vilja skoða kostn­að­ar­teng­ingu leigu, en ekki er ein­hugur meðal fram­bjóð­enda.

Vilja laga málin í rík­is­stjórn en hafa staðið sig illa í borg­inni, eins og aðrir flokkar. Hús­næð­is­verð hefur hækkað tvö­falt á við laun undir þeirra stjórn.

5. sæti – Vinstri græn (VG)

Svandís Svav­ars­dóttir.

Vilja stefna að félags­legri upp­bygg­ingu, sem sár­vantar á íslenskan leigu­markað.

Hug­myndir þeirra eru jákvæðar en skorta metnað miðað við efstu flokk­ana.

Vilja byggja 1.500 félags­legar íbúðir, sem er aðeins dropi í hafið miðað við þörf­ina. Vilja setja þrengri skorður á Airbnb, en ekki eins skýrt og efstu flokk­arnir.

Tala ekki fyrir tómt­hús­skatti eða öðrum afger­andi lausnum. Tillögur eins og sér­stakar vaxta­bætur eru góðar en aðeins plástrar.

Vilja leigu­bremsu strax, sem við höfum gagn­rýnt þar sem hún myndi frysta núver­andi órétt­læti á leigu­mark­aði. Hafa tekið vel í hug­myndir okkar en vilja ekki taka upp kostn­að­ar­teng­ingu leigu. Vísa í græn­bók um hús­næð­is­mál, sem lofar mörgu en skortir sér­tækar aðgerðir og sam­þykkir stöðnuð eða minnk­andi fram­lög til hús­næð­is­mála næstu árin.

6. sæti – Viðreisn

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir.

Sjá nauð­syn þess að upp­fylla alþjóða­samn­inga um félags­leg rétt­indi. Vilji til að reglu­væða leigu­mark­að­inn betur.

Eru alfarið á móti verð­stýr­ingu á leigu­mark­aði, þrátt fyrir sýnda skað­semi óheftrar græðgi.

Teljum lík­legt að þeir standi gegn verð­stýr­ingu, en vonum að þeir bæti hag þeirra verst stöddu. Úrræða­leysi í Reykja­vík stendur þeim fyrir þrifum.

7. sæti – Framsóknarflokkurinn

Sigurður Ingi.

Þrátt fyrir langa stjórn hús­næð­is­mála, trúum við að vilji til góðra verka sé enn til staðar. Ágúst Bjarni Garð­ars­son hefur sýnt mik­inn vilja og reynslu í sam­tali okkar.

Stefna þeirra í hús­næð­is­málum er óljós; virð­ast halda að „allt sé að koma“ og sjá ekki gríð­ar­legan vanda á hús­næð­is­mark­aðnum. Ágúst Bjarni vill skoða kostn­að­ar­teng­ingu leigu, sem færir þeim 7. sætið.

8. sæti – Miðflokkurinn

Sig­mundur Davíð leiðir Mið­flokk­inn -Mynd: Mið­flokk­ur­inn

Hittum Bergþór Ólafsson og áttum gott sam­tal.

Eru á móti núver­andi leigu­liða­stefnu, sem hefur skilað 1 af hverjum 4 íbúðum á leigu­markað. Engar lausnir í boði og ekki minnst á leigj­endur.

Botnsætið – Sjálfstæðisflokkur Íslands

Bjarni Bene­dikts­son.

Telja að leigj­endur séu of lít­ill hópur til að skipta máli. Sjá ekki að stefna þeirra hafi leitt til stærsta kjós­enda­hóps lands­ins – 52.288 leigj­enda.

Eru mót­fallnir félags­legu hús­næði þrátt fyrir alþjóða­samn­inga og lágt hlut­fall slíks hús­næðis hér miðað við Evrópu.

Að lokum:

Við vonum að þessi sam­an­tekt hjálpi leigj­endum að taka upp­lýsta ákvörðun um hvaða flokka þeir vilja kjósa í kom­andi kosn­ingum. Við hvetjum kjós­endur til að spyrja sína flokka út í afstöðu þeirra um hús­næð­is­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ