Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ofbeldi og ásakanir í Ártúnsholtinu: „Runólfur ofsækir okkur“

Ofbeldi og ásakanir í Ártúnsholtinu: „Runólfur ofsækir okkur“
Deil­urnar áttu sér stað í Ártúns­holti árið 1995 – Mynd: Skjáskot Ja.is

Það var algjör ófriður sem ríkti í Álakvísl 124-136 árið 1995 en DV greindi frá mál­inu á sínum tíma.

Samkvæmt DV deildu íbúar fjöl­býl­is­húss­ins við Runólf Oddsson, sem bjó einnig í hús­inu, en Runólfur var sviptur leyfi til hunda­halds af yfir­völdum en fór ekki eftir þeim fyr­ir­mælum. Málið komst til kasta borg­ar­stjórnar, félags­mála­ráð­herra, lög­reglu, umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins, Heil­brigð­is­nefndar Reykja­víkur og fleiri aðila. Þá var eldri bróðir Runólfs for­sæt­is­ráð­herra Íslands á þessum tíma. Í sögu Runólfs lýsir hann því að hann hafi verið að koma heim frá útlöndum þegar nágranni hans réðst á sig.

Hundurinn til bjargar

„Hann hringdi dyra­bjöll­unni og þegar ég opn­aði dyrnar rudd­ist hann inn í íbúð­ina og sló mig í and­litið. Það bjarg­aði mér að hund­ur­inn kom fram og þá bráði af mann­inum,“ sagði Runólfur en sam­kvæmt honum var búið að fjar­lægja reið­hjól í hans eigu. „Mér virð­ist sem hann hafi verið búinn að ákveða að ég ætti að flytja út þann 1. júní þegar úrskurð­ur­inn gengur í gildi. Ég hitti hann úti í garði og spurði hann hvort hann hefði tekið reið­hjólin. Hann sagð­ist hafa tekið þau og hent þeim. Ég sagði honum strax að ég myndi kæra hann til lög­regl­unnar. Það liðu um 10 mín­útur þangað til hann hringdi bjöll­unni hjá mér og rudd­ist inn,“ sagði Runólfur og ætl­aði að kæra árás­ina.

Grætti dóttur Ólafs

Ólafur Bene­dikts­son, nágranni Runólfs, við­ur­kenndi í DV að hafa slegið nágranna sinn. „Ég dangl­aði til hans og það er ekki hægt að kalla það högg. Ég hafna því alfarið að það hafi valdið honum skaða en auð­vitað er ég ekki hreyk­inn af þessu og þetta var rangt af mér. Þetta átti sér þann aðdrag­anda að hann jós yfir mig fúk­yrðum í garð­inum. Ég er búinn að taka ýmsu en það sem gerði það að verkum að ég reidd­ist var að sjö ára dóttir mín, sem þarna var að leik, hljóp grát­andi inn undan fúk­yrð­unum.“

Þá við­ur­kenndi Ólafur einnig að hús­fé­lagið hafi hent reið­hjól­unum hans Runólfs. „Þetta var hálf­ónýtt drasl sem við vissum ekki hver átti. Við töldum reyndar að þau hefðu verið skilin eftir af fyrri íbúum. Ef ein­hverjum hefði dottið í hug að þetta væri í eigu Runólfs hefði ekki hvarflað að okkur að svo mikið sem hreyfa við þessu.“

Sífelldar hót­anir

Anna Karen Hauks­dóttir, for­maður hús­fé­lags­ins, sagði við DV að íbúar væru búnir að fá nóg af Runólfi en Anna bjó fyrir ofan Runólf.

„Ég tek fulla ábyrgð á þessu reið­hjóla­máli. Það var ákveðið á hús­fundi að henda þessum hjólum sem var ofaukið í hjóla­geymsl­unni. Þessi hjól voru gjarða­laus og í slæmu ástandi og við spurðum þá íbúa húss­ins sem náð­ist til hvort þeir ættu þetta en svo var ekki. Runólfur ofsækir okkur og er með sífelldar hót­anir í okkar garð. Það hefur hvarflað aö flestum okkar að flytja úr þessu húsi því ástandið er við það að vera óbæri­legt. Maður fyllist orðið kvíða við að koma heim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni