Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jakob Þ. Möller er fallinn frá

Jakob Þ. Möller er fallinn frá
kerti candle

Jakob Þ. Möller, lög­fræð­ingur og full­trúi í mann­rétt­inda­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna lést 14. jan­úar á Víf­ils­stöðum í Garðabæ, 88 ára að aldri.

Jakob fædd­ist 28. októ­ber 1936 í Reykja­vík en for­eldrar hans voru Gunnar J. Möller, hætta­rétt­ar­lög­maður og for­stjóri Sjúkra­sam­lags Reykja­víkur og Ágúst Sigríður Johnsen Möller.

Vorið 1956 lauk Jakob stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík en frá 1956 til 1958 stund­aði hann nám í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands. Lauk hann þar prófi í for­spjalls­vís­indum vorið 1957 og kenndi við fram­halds­skóla í Reykja­vík frá 1958 til 1961. Eftir það hóf hann lag­ana­nám við Háskóla Íslands og lauk þaðan emb­ætt­is­prófi í lögum vorið 1967 en réðst þá sem full­trúi Sýslu­manns­ins í Suður-Múla­sýslu á Eski­firði. Frá árs­byrjun 1968 vann hann síðan full­trúi Bæj­ar­fó­get­ans í Keflavík. Þremur árum síðar, 1971 var hann ráð­inn til starfa hjá mann­rétt­inda­nefnt Sam­ein­uðu þjóð­anna og varð það hans ævi­starf, fyrst í höf­uð­stöðum SÞ í New York en síðar í Genf í Sviss, þegar að skrif­stofa mann­rétt­inda­nefnd­ar­innar flutti þangað.

Árið 1996 var Jakob kos­inn af ráð­herra­nefnd Evr­ópu­ráðs­ins til að gegna starfi dóm­ara við alþjóð­legan mann­rétt­inda­dóm­stól fyrir Bosníu og Her­segóvínu og starf­aði þar þangað til störfum dóm­stóls­ins lauk árið 2003. Jakob flutti eftir það fyr­ir­lestra um mann­rétt­indi víðs­vegar um heim­inn og var gefin út bókin In­ternati­onal Hum­an Rights Monitor­ing Mechan­isms, honum til heið­urs. Ólafur Ragnar Grímsson, þáver­andi for­seti Íslands, sæmdi Jakob fálka­orð­unni fyrir mann­rétt­inda­störf á alþjóða­vett­vangi 1998 og þá var hann einnig útnefndur heið­urs­pró­fessor við Háskól­ann á Akureyri.

Árið 1968 kvænt­ist Jakob Þórunni Wathne, cand. jur. en for­eldrar hennar voru Stefán Wathne fram­kvæmd­ar­stjóri og Soffía Guðrún Hafstein Wathne. Sonur þeirra er Gunnar Stefán, fæddur 1969 en hann er með BA-próf í stjórn­mála­fræði og Sov­ét­fræðum við Harvard-háskóla. Jakob og Þórunn skildu.

Seinn eig­in­kona Jakobs var Maria Isa­bel Contreras en þau bjuggu í bænum Cessy í Frakk­landi, nálægt Genf. Þau skildu einnig. Árið 2017 flutti Jakob alkom­inn til Íslands, eftir að hafa verið með annan fótin hér á landi í nokkur ár.

Mbl.is sagði frá and­lát­inu.

Þegar and­láts­fréttin birt­ist fyrst var ljós­mynd af röngum Jakobi Möller birt en um leið og í ljós kom að um rangan mann væri að ræða, var mynd­inni kippt út. Mannlíf biðst afsök­unar á þessum mis­tökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ