Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Óútskýrð geimför og uppljóstrarinn – Birtu myndbönd af fljúgandi furðuhlutum yfir Íslandi

Alvarpsdrengirnir.
Alvarps­drengirnir.

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­hússins settust þeir félagarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í áfram­haldandi umræðu um fljúgandi furðu­hluti. 

Í þættinum fóru strákarnir yfir nokkrar nýjar frásagnir Íslendinga sem þeim hefur borist. Flestir kusu að segja sína sögu í nafnleynd og talsvert myndefni fylgdu frásögnunum. Það sem vakti mestu athyglina voru myndbönd sem tekin voru í Njarðvík og Grafar­vogi í nóvember og desember á síðasta ári.

Dularfullir hnettir

Mynd­böndin sýna það sem virðist vera óvenju skærar stjörnur en þegar þysjað er inn sést að ekki er um hefð­bundnar stjörnur að ræða. Það sem sést er að um svokallað hnetti eða það sem á ensku kallast orbs að ræða en þeir virðast iða af einkennilegri orku eða jafnvel af einhverju virðast vera hrein orka. Strákarnir veltu því fyrir sér hvort einskonar „plasma“ væri það sé þeir væru að horfa á en Gunnar sagði Arnóri frá viðtali sem hann heyrði við mann Vestanhafs sem sagði að það sem við erum að sjá í þessum hnöttum sem sjást útum allan heim þessa dagana sé truflun í segul afli sem skapað er með tækni flýgildisins sem knúið er af andsegulafli. Það skal tekið fram að andsegulafls­svið er samkvæmt vísindum ekki mögulegt að skapa þó svo að það komi títt og iðulega fram í frásögnum þeirra sem segjast hafa unnið við þessi för undir háleynilegum skykkjum eins og Bob Lasar sem fjallað var um í síðasta þætti. Það er sem er einnig einkennilegt við þessa hnetti er að samkvæmt þeim sem tóku myndefnið eiga þeir það til að birtast og hverfa í tíma og ótíma og stundum ferðast þeir hægt um en ef þeir ferðast á meiri hraða skilja þeir eftir sig rákir í allskonar litum.

Þessi vitni sem stíga fram með sínar frásagnir kjósa að koma fram undir nafnleynd. Þessir einstaklingar treysta drengjunum í Þvotta­húsinu en flest þeirra hafa aldrei talað um þessa hluti við nokkurn skapaðan mann í ótta við að það sé gert grín af þeim og þau talin með einhverja geðkvilla. Óþroskuð og oft á tíðum ofbeldis­full viðbrögð er eitthvað sem þessir einstaklingar eru að upplifa títt og iðulega. Í því samhengi sagði Gunnar frá því að síðasta föstudag kom Gísli Martin fram með glensi og gaslýsingum í sambandi við frásögn konunar sem dren­girnir fjölluðu um í síðasta þætti. Gunnar sagði þetta ekkert nýtt af nálinni, þau sem hafa séð hafa þessa hluti og stigið fram hafa upplifað margoft harkalegar afleiðingar og því kjósa flestir að koma fram undir nafnleynd. 

En frásagnirnar og myndefnið sem kom fram í þessum þætti er einstakt og vilja Gunnar og Arnór þakka þeim sem deildu frásögnum sínum með þeim innilega fyrir traustið. Gunnar og Arnór sögðust vera til að fjalla áfram um þennan málaflokk svo lengi sem þeim berist efni og upplýsingar og því er öllum þeim sem hafa einhverjar upplýsingar og myndefni frjálst að hafa samband í gegnum [email protected] og fullum trúnaði og virðingu er heitið.

Mikið gengið á síðustu vikur

Mikið hefur gengið á síðustu tvær vikur í UFO heiminum, það má með réttu segja að hann sé á hvolfi og þá aðallega í kjölfar nýjustu frétta um uppljóstrara innan innsta kopp bandaríska hersins sem komu fram um helgina með vægast sagt ótrúlegar frásagnir og myndefni sem gætu alveg eins hafa komið úr vísinda­skáldsögu. 

Í einka­viðtali við Ross Coulthart hjá News Nation sagði uppljóstrarinn Jacob Barber að hann hafi starfað sem þyrlu­flugmanns verktaki fyrir djúp­ríkis­herdeild og hans hlutverk hafi verið í ein 10 ár að sækja alls kyns flýgildi af ójarðneskum uppruna. Barber útskýrði í viðtalinu hvernig flýgildin oft eru boðin til að lenda eða tekin yfir af manneskjum sem kallast “psionics”, manneskja sem gegnir því hlutverki og starfar í þessum verkefnum er hæfi­leikum gædd hvað varðar bæði skyggni­gáfu og “telepatíska” eigin­leika til samskipta. 

Í viðtalinu hjá News Nation spyr Ross hann hvort þessir hlutir, flýgildi séu óvenjuleg eða afbrigðileg. Barber svaraði því á þá leið að þessir hlutir, hvað sem þeir væru, væru ekki mannlegir. Hann segist einnig hafa orðið vitni af ótrúlegustu hlutum sem þessi flýgildi geta gert sem brýtur á bága við allt sem við teljum mögulegt, meðal annars hefur hann séð flýgildi koma bókstaf­lega úr jörðinni, ferðast í gegnum fjöll og börð eins og að enga um fyrir­stöðu er að ræða. 

Í þessum þætti News Nation sem sýndur var síðasta laugardag voru einnig sýnt myndband sem aldrei hefur verið sýnt áður sem sýnir flýgildi vera fært af hrapstað. Flýgildið virðist vera um 7 metra stórt og egglaga. Barber segir ekki hafa verið neinar sýnilegar merkingar á hlutnum né merki um hreyfla, samskeiti né útblástur. 

Það geta þess að News Nation braut þögn David Grusch sumarið 2023 sem leiddi til þess að stutta seinna koma hann fram fyrir bandaríska þingnefnd og flutti þar eiðsvorin vitnis­burð. Í þeim vitnis­burði sagði hann frá starfi sínu, sem sneri að greiningu og viðtölum fyrir leyni­þjónustu hersins við aðila sem höfðu með að gera allskonar háleyndar­verkefni og deildir viðriðin UFO eða UAP að gera.  Hann hélt því fram að ólöglegar og óreglu­væddar djúpríkis herdeildir væru búin að stunda svokallað “crash retrieval” verkefni sem einmitt snúa að því sem Jake Barber talar um í nýjasta viðtali News Nation. Einnig hélt David Grusch því fram að náðst hafa svokölluð “biologics” eða lífverur af ójarðneksum uppruna sem fljúga þessum flýgildum.

Gunnar og Arnór fóru yfir efni þessara nýju uppljóstrana sem UFO heimurinn hefur beðið eftir nú í nokkra daga þrátt fyrir að þráðleitur orðrómur um að hann væri á leiðinni hafi reikað um í nokkrar vikur. Hægt er að horfa á þáttinn hér fyrir neðan en einnig á streymis­veitum á borð við Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Stefnir í rólegt stuð

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027