Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Matilda hefur stundað kynlíf með eiginmanni sínum á hverjum einasta degi í 14 ár

Matilda hefur stundað kynlíf með eiginmanni sínum á hverjum einasta degi í 14 ár

Nýjasti gestur Þvotta­húss­ins sem er einnig hund­rað­asti gestur Þvotta­húss­ins er engin önnur en mark­þjálfinn, nánd­ar­inn, snert­ar­inn Matilda Gregers­dotter.

Kynlíf á hverjum degi

Matilda og mað­ur­inn hennar sem eiga fjögur börn saman, tóku þá djörfu ákvörðun fyrir um 14 árum síðan að stunda kyn­líf saman á hverjum ein­asta degi. Þau hafa haldið það út æ síðan með fáum und­an­tekn­ingum ef ein­hver er veikur eða erlendis. 

Þessi sam­heldni og stöðuga nánd þeirra á milli hefur ekki bara gjör­breytt hjóna­band­inu og þeirra sam­skiptum heldur hefur Matilda náð að beisla vissri stjórn á kynorkuflæði lík­am­ans og seg­ist upp­lifa stöðugt visst streymi kynorku og geti með hugsun einni saman sett af stað full­næg­ingar af mis­mun­andi styrk­leikum. 

Matilda er ásamt því að vera frum­kvöð­ull á svið mark­þjálf­unar á Íslandi, heldur einnig hina ýmsu við­burði tengda snert­ingu og nánd. 

Gunnar: „Ég skrifa hér hjá mér, þú er mark­þjálfi frá Stokk­hólmi sem hefur búið á Íslandi um nokk­urt skeið. Þú ert gift íslenskum manni og saman tóku þið þá djörfu ákvörðun árið 2008 að þið skylduð stunda kyn­líf á hverjum ein­asta degi og sjá þannig frá fyrstu hendi hvaða áhrif reglu­legt kyn­líf hefði á líf ykkar og hjóna­band.“

„Já, það var eng­inn sem vissi þá að þetta myndi end­ast í svona mörg ár. Þetta var bara til­raun,“ svar­aði Matilda bros­andi.

Davíð: „Nú eru liðin 14 ár, eruð þið ennþá að gera það einu sinni á hverjum degi?“

Matilda svar­aði því ját­andi og hló og bætti við „Að minnsta kosti segi ég.“
Aðspurð hvort mað­ur­inn hennar fái frípassa dag­inn eftir ef þau stunda kyn­líf tvisvar sinnum einn dag­inn, sagði Matilda það ekki vera.

Davíð vildi ólmur vita hvernig þau hjónin skil­greini kyn­líf, hvort það þýðir alltaf sam­farir.

„Við erum mjög hefð­bundin. Þetta snýst bara um að orkan í lík­am­anum að fá að vera til staðar,“ svar­aði Matilda að bragði.

Er bræð­urnir spurðu hana hvort það væri ein­hver fyr­ir­fram ákveð­inn tími sem þau hjónin velji til að stunda kyn­líf, neit­aði hún því en að oft ger­ist það þegar þau eru að vakna á morgn­ana og svo sofni þau bara aftur. „Þannig að þetta er hinn full­komni snooze-takki,“ sagði Davíð og Matilda svar­aði því ját­andi og skelli­hló.

Davíð spurði Matildi hvernig þau hjónin gætu látið þetta ganga í öll þessi ár, ver­andi í vinnum og með fjögur börn. Til dæmis ef ein­hver er með ælu­pest, hvort þurfi þá að stunda kyn­líf þann dag­inn. „Nei, ef ein­hver er veikur má auð­vitað sleppa,“ svar­aði hún og hélt áfram. „Og ef við erum erlendis, frá hvoru öðru, þá má sleppa.“

Já-leikurinn

Gunnar spyr hvað hafi orðið til þess að þau hjónin tóku þessa ákvörðun, eftir að hafa verið saman í 15 ár, að stunda kyn­líf á hverjum degi.

„Ég skal segja ykkur frá leik sem við förum stundum í sem við köllum já-leik­inn. Ég tók eftir því, vegna þess að öll mín til­vera snýst um að vaxa sjálf og hjálpa öðrum að vaxa, hvernig sam­bönd þró­ast oft og vaxa, þá mynd­ast oft gjá milli fólks af því að maður segir „nei“ og „nei, þetta er þitt og þetta er mitt, þú gerir þetta, ég geri þetta“, og alls konar valda­leik­rit, útskýrir Matilda og heldur áfram: „Og ef þú vilt leika það leik­rit við mig, þá er ég bara farin. En ef við snúum þessu við og förum í já-leik­inn. Þá kemur kannski til­laga sem að snýr öllu á hvolf hjá mér, þá er mín vinna að reyna að finna leið til að geta sagt já við þessu. Og sama þegar ég kem með til­lögu. Og hann kemur til mín með grein, árið 2008 sem hjón skrif­uðu en þar sögð­ust þau stunda kyn­líf dag­lega. Og hann sýnir mér þetta og stingur upp á við gerum þetta. Fyrstu við­brögð mín voru þau að mér þótti þetta svo­lítið mikið skrítið,“ sagði Matilda og hló og bætti svo við: „En … já prófum! Og það var ekki aftur snúið því það breytti svo miklu með það hvernig mér leið yfir dag­inn.“

Gunnar spurði Matildu hvort þau hafi gert þetta til að ná ein­hverju ákveðnu marki eða hvort þetta hafi átt að leysa eitt­hvað ákveðið vanda­mál í sam­band­inu en því neit­aði hún og sagði að enn þann dag í dag, er ekk­ert mark­mið með þessu hjá þeim. Sagðist hún að þessi til­raun þeirra hefðu til að mynda hjálpað sér með sína nánd­ar­þörf, þörf hennar fyrir knúsum og snert­inum hefði minnkað því þau hjónin mætt­ust svo vel í kyn­líf­inu að hún er sátt í sól­ar­hring á eftir. Þá sagði hún einnig að þau hjónin væru dínamísk eins og margir og þau ríf­ist alveg eins og önnur pör en það að stunda kyn­líf á hverjum degi hjálpi þeim að ná sáttum fyrr en ella.

Snertiskólinn

„Hvað er full­næg­ing?“ spurði Gunnar Matildi, sem fagn­aði mjög spurn­ing­unni. „Þetta er akkurat það sem ég vil ræða og lýsa í sýn­ingu minni, Snert­i­skól­inn. Ég vissi ekki að það væri hægt að líða svona. Eins og mér líður í dag. Það sem ger­ist er að við byrjum að hafa þetta akti­vited, að mæt­ast á hverjum sól­ar­hring skil­urðu. Og svo opn­ast lík­am­inn þinn og ég bara fatt­aði ekki hvað var að ger­ast. „Er eitt­hvað að mér, á mér að líða svona?“, ég var bara tur­ned on allan tím­ann. Þannig að þá sótti ég í mann­eskju sem vissi meira um þetta, tók mann­inn minn með á nám­skeið og þar sá ég að já, það er hægt að líða svona, maður þarf ekki að hætta að vera tur­ned on. Maður getur haft mikla við­var­andi orku og vera eins og hringrás. Og það er það sem mig langar að gefa fólki. Það er hægt að anda inn og vera í mik­illi orku allan tím­ann. Þetta er bara lífs­orkan.“ Matilda tekur hina leið­ina sem dæmi, akkurat öfugt, kyn­lífið er búið og þá kross­leggur maður bara fæt­urnar, þetta er búið og ekk­ert í gangi.

Á morgun, þriðju­dag­inn 6. des­em­ber er Matilda með það sem hún kallar sýn­ingu sem nefn­ist Snert­i­skól­inn í Tjarn­ar­bíói. „Ég er að taka svo­lítið stórt skref. Ég ætla að bjóða fólki að koma og ræða þessa hluti. Eða hlusta á umræður um málið. Þetta er bæði mál­þing og öræf­ingar.“ Matilda seg­ist alltaf hafa viljað taka þátt í leik­húsi þegar hún fer á sýn­ingar og þess vegna finn­ist henni snið­ugt að hafa öræf­ingar til að leyfa fólki að taka þátt. „Þannig að það verða dæmisögur og orð­ræður um greddu, full­næg­ingu, unað og fleira og kannski sýn­is­horn af því hvernig við snertum hvort annað án þess að vera of næm. Og svo eru það öræf­ing­arnar og þetta er klukkan 20:30 um kvöldið í tvo klukku­tíma í Tjarn­ar­bíói og heitir Snert­i­skól­inn.“

Segir Matilda aðspurð að já, áhorf­endur munu snerta hvort annað en bara örlítið, til dæmis hendur hvors ann­ars. „Það er óvenju­legt en það stendur í lýs­ing­unni og á ekki að koma neinum á óvart.“

Hægt er að horfa á þetta afar áhuga­verða við­tal í heild sinni hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar