Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tóta er móðir hampsins á Íslandi: „Það vantar að sleppa tökunum aðeins“

Tóta er móðir hampsins á Íslandi: „Það vantar að sleppa tökunum aðeins“

Hamp­fé­lagið fer af stað með HAMPKASTIÐ sem eru umræðu­þættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálf­sögðu um HAMP. Þátta­stjórn­endur verða Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs sem bæði eru stjórn­ar­menn í Hamp­fé­lag­inu. Fyrstu gestir þátt­ar­ins verða bæði íslenskir og erlendir sér­fræð­ingar á sínu sviði um nýt­ingu hamps. Fyrsti við­mæl­andi í Hamp­kast­inu er Þórunn Þórs Jóns­dóttir, gjarnan kölluð Tóta. Sigurður hefur orð á því í byrjun við­tals­ins að Tóta sé móðir hamps­ins á Íslandi. 

Tóta sem er ein­stæð tveggja barna móðir er fædd í Reykja­vík en elst upp í Hafn­ar­firði og miðbæ Reykja­víkur. Hún seg­ist hafa sterka strengi til þess­ara staða, á stóran vina­hóp í Hafn­ar­firði sem og í miðbæ Reykja­víkur og lítur á sig sem grjót­harðan FH-ing.

Tóta sem er einn stofn­andi Hamp­fé­lags­ins kynnt­ist fyrst kanna­bis í lækn­inga­skyni fyr­ir tíu árum þegar vin­ur henn­ar var að tak­ast á við fjórða stigs krabba­mein í hálsi. Tóta er visku­brunn­ur á þessu sviði kanna­bis og þegar hún var búin að vera 10 ár að stúd­era kanna­bis og CBD  og hjálpa fólki með alls­konar sjúk­dóma fannst henni mik­il­vægt að taka skömm­ina af þessu og kynna þessa mögn­uðu plöntu og í kjöl­farið var Hamp­fé­lagið stofnað af árið 2019 af fjöl­breyttum hópi fólks sem voru að að nálg­ast hamp­inn og kanna­bis úr mjög álíkum áttum.

Fyrsta stóra verk­efni Hamp­fé­lags­ins var mál­þing sem bar heitið Hampur fyrir fram­tíð­ina og mun það nafn verða yfir­skrift við­burða á vegum félags­ins í fram­tíð­inni. Markmið mál­þings­ins var að skapa umræður og fræða sam­fé­lag okkar um fjöl­breytta notk­un­ar­mögu­leika hamps og mik­il­vægi þess að gera plönt­unni hærra undir höfði en gert hefur verið síð­ustu ára­tugi. Mál­þingið var haldið á Grand Hótel Reykja­vík og er óhætt að segja að und­ir­tektir hafi verið framar vonum því sal­ur­inn yfir­fyllt­ist og þurfti stór hópur fólks að sitja á gangi fyrir framan sal­inn. Miklar umræður sköp­uð­ust fyrir og eftir mál­þingið í fjöl­miðlum og í sam­fé­lag­inu öllu. Í fram­hald­inu var sett fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga af Halldóru Mogensen, þing­manni Pírata sem ber heitið „CBD í almenna sölu“. 

Sigurður þátt­ar­stjórn­andi nefnir í þessu sam­hengi með hamp­inn við­tökur Alþingis á efnum tengt hug­víkkun, Psilosobin og hvernig það ein­fald­lega virð­ist vera að renna í gegn þökk sé því að sá armur virð­ist hafa aka­dem­í­una með sér í liði og það virð­ist vera svo að sér­fræð­ingar og aka­demik­arar séu það eina sem ráða­menn hlusti á. Í því sam­hengi finnst Tótu finnst magnað að ekki sé búið að finna lækna hér á landi sem eru til í að tala fyrir CBD. Hún seg­ist hafa farið á sínum tíma og talað við Kára Stefáns hjá Decode og útskýrt fyrir honum hvernig hún hafi í gegnum árin hjálpað krabba­meins­sjúk­lingum með notkun CBD og THC en um leið og hún minnt­ist á tauga­sjúk­dóma þá hafi hann farið í algjöran bak­lás og alls ekki viljað ræða þetta þó svo að hann sé tauga­læknir. 

„Það sem mér finnst svo skrítið að ef þú ert læknir, þú ert vís­inda­maður og þú ert með sjúk­ling sem þú ert búin að vera að sinna ógeðs­lega lengi og þetta gengur ekki nógu vel og hann er með með mjög skert lífs­s­gæði og svo bætir þú bara ein­hverjum dropum inn í líf hennar sem þú veist að eru ekki skað­legir og þú verður ekki einu sinni for­vitin.“

Tóta segir að Bænda­blaðið sé búið að vera gríð­ar­lega dug­legt að fylgja þess­ari hamp­bylt­ingu og eigi þeir skilið miklar þakkir. Eftir að Covid skall á fljót­lega eftir ráð­stefn­una og lítið búið að ger­ast síðan þó svo að Hamp­fé­lagið sé núna farin að leggja drög að nýrri ráð­stefnu sem verður betur kynnt síðar. Einnig er nýaf­staðin vinnu­stofa í sam­vinnu við Ludika arki­tektum þar sem sér­fræð­ingur á sviði hamp­steypu kom til lands­ins og fræddi landan um mögu­leika hamp­steypunar sem eru væg­ast sagt ótrú­legir. Í tengslum við vinnu­stof­una sótti Ludika um styrk til að byggja til­rauna­hús úr hampi. Húsið sem verður 15 m2 verður til­rauna­hús og klædd á tvo vegu, hamp­klæðn­ing ann­ars­vegar og timb­ur­klæðn­ing hins­vegar og verður svo tak­markið að ná í svo­kall­aða CE vottun í sam­vinnu með Mannvit þannig að hægt sé að nota íslenska hamp­steypu. Tóta segir að hamp­steypa sé málið, hún myglar ekki, brennur ekki, andar og er hita og kulda ein­angr­andi. 

Tóta er búin að vera ötul í að byggja upp tengsla­net síð­ustu 15 ár bæði hér­lendis og erlendis og fengið að kynn­ast ótrú­lega mörgum sem koma að hamp­inum úr öllum áttum. Hvað hana varðar þá segir hún að drif­kraftur hennar sé að fyrst og fremst að hjálpa fólki með þá fyrst og fremst með CBD olí­unni. Tóta hefur verið mikið í kringum fatl­aða ein­stak­linga, bróðir hennar var fatl­að­isti ein­stak­ling­ur­inn á Íslandi og hún seg­ist búa yfir mik­illi sam­kennd gagn­vart fólki og sér­stak­lega fólki sem er að glíma við kvilla sem hún veit að geta fengið bót mála sinna með hjálp kanna­bis. 

„Maður sér að þetta var sprengja og svo sér maður fólkið sem ætlar sér að vera i þessum bransa, þetta var svo­lítið eins og gull­graf­ara­dæmi til að byrja með en sem betur fer er það að líða yfir og fólk er bara að reyna finna leiðir en á flestum stöðum eru það bara reglu­gerðir sem eru að standa í veg fyrir, það vantar að sleppa tök­unum aðeins, það er alltaf verið að setja fót­inn fyrir.“

Sigurður segir að í BNA sé ekki hægt að not­ast við kort í við­skiptum á hampi eða kanna­bis sem gerir það að verkum að öll við­skipti fara fram í reiðufé sem kallar á alls­konar hættur og mörg dæmi eru um að fólk sem vinnur í kringum hampi og kanna­bis séu rænd. Þó svo að Tóta vilji meina að yfir­völd standi oft í vegi fyrir mögu­leikum kanna­bis með þröng­sýnum reglu­gerðum þá vill hún meina að margt gott sé að ger­ast í dag út um allan heim og ber að nefna hvað sé búið er að vera ger­ast í Tælandi. Fyrir nokkrum árum síðan áttir maður sem tekin var með snef­il­magn af kanna­bis á götum Tælands það í hættu að þurfa eyða mörgum árum í fang­elsi fyrir vikið en nú er öldin önnur segir Tóta. Kannabis er búið að fylgja okkur í tíu þús­und ár og í Tælandi hefur kanna­bis oft verið notað í helgi athöfnum og trú­ar­há­tíðum fyrir guð­ina þrátt fyrir að vera ólög­legt en nú á síð­ustu tveim árum erum stjórn­völd í Tælandi búin að snúa algjör­lega við blað­inu hvað varðar mót­þróa gegn kanna­bis. Þeir eru búnir að lög­leiða lyfja­hamp og hamp­ræktun og gáfu milljón kanna­bis­plöntur til fólks sem vildu taka þær með sér heim og nýta sér. 

Talið berst að krabba­meini en Tóta er með mikla reynslu á því sviði. Það sem Tóta hef­ur séð á þeim sjúk­ling­um sem hún hef­ur verið í sam­skipt­um við síð­ustu ár er að þeir sem hafa ásamt hefð­bundn­um krabba­meins­með­ferðum notað ým­ist CBD eða THC virð­ast koma mun bet­ur út úr veik­ind­um sín­um. Virðast þeir koma bet­ur út hvað varðar auka­verk­an­ir og end­ur­heimt að með­ferð lok­inni en þeir sem fara ein­ung­is í hefð­bundna með­ferð. 

Hún seg­ir að rann­sókn­ir sýni að CBD ein­fald­lega drepi og út­rými ákveðnum krabba­meins­frum­um. Í því sam­hengi seg­ir hún að við horm­óna­krabba­meini myndi við­kom­andi fara í með­ferð með háu inni­haldi af CBD og lágu af THC en ef ekki væri um horm­óna­tengt krabba­mein að ræða þá myndi með­ferðin ein­kenn­ast af háu THC-inni­haldi og lágu af CBD.

Tóta tal­ar einnig um mik­il­vægi réttr­ar fæðu fyr­ir lík­amann. Til dæm­is þurfi þurfi fólk að hreinsa lifr­ina svo hún sé í stakk búin til að tak­ast á við lyfja­gjöf sem fylgi hefð­bundn­um krabba­meins­með­ferðum. Hún tal­ar um hvernig hún upp­lif­ir að sjúk­ling­arn­ir legg­ist oft kylli­flat­ir fyr­ir fram­an lyfja­lausn­ina eina sér. Byrja að dæla í sig lyfj­um og ein­hvern veg­inn af­sali sér allri ábyrgð sem fylg­ir að vera með al­var­leg­an sjúk­dóm og bíði eft­ir að lækn­ir­inn eða kerfið bjargi sér.

Á sama tíma og það er skort­ur á lyfj­um við til dæm­is krabba­meini þá er al­gjör­lega litið fram hjá rann­sókn­um og reynslu margra ná­granna­þjóða okk­ar á með­höndl­un með ým­ist CBD eða THC gegn krabba­meini. Hún tel­ur að Íslend­ing­ar séu aft­ar­lega á mer­inni og í raun um tutt­ugu árum á eft­ir mörg­um öðrum þjóðum í þess­um mál­um.

Í Covid fór Tóta af stað með að gera heim­ild­ar­mynd um hamp­inn og ferð­að­ist Tóta um allt land og heim­sótti hamp­bændur. Árið 2020 voru rækt­aðir á Íslandi um 30 hekt­arar og ári seinna árið 2021 voru rækt­aðir um 150  hekt­arar sem er svipað magn sem rækt­aðir voru síð­asta sumar árið 2022. Tóta vill meina að það sé búið að marg­sanna það að hægt sé að rækta hamp á Íslandi þó svo að það sé alveg ljóst að veðrið hafi alveg rosa­lega mikið að segja ásamt land­svæðum og segir Tóta að því meiri tími sem not­aður í að und­ir­búa jarð­veg­inn því betri verður upp­skeran. 

Hvað varðar fram­tíð­ar­sýn Tótu í hamp­málum á Íslandi seg­ist Tóta veðja á bygg­ing­ar­iðn­að­inn þó svo að hún hafi von­ast eftir að sjáv­ar­út­veg­ur­inn myndi koma sterk­ari inn með notkun hamplasts og í neta­gerð. Hún segir að hamp­iðjan sem eitt sinn fram­leiddi allt úr hampi sé nær ein­ungis að vinna með nylon plast sem er helsti skað­vald­ur­inn í sjónum hvað varðar umhverf­is­mál. Hún seg­ist hafa tekið smá spjall með nokkrum skip­stjórum um dag­inn um neta­mál og kom­ist að því að með­al­notk­un­ar­tími á plast­netum í dag sé um ár, þau eru ekki bætt, þeim er bara hent. Eftir fimm hund­ruð ár byrja þau að brotna niður. Hamp­ur­inn byrjar að brotna niður í sjó eftir 18 mán­uði og vill Tóta meina að það sé þó alla­vaga hægt að blanda saman nylon og hampi upp á fljót­ara nið­ur­brot neta í sjónum. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn er helsti skað­valdur líf­ríki sjávar og finnst henni að þeir eigi að axla ábyrgð og hætta notkun plasts og snúa sér að hamp­inum. 

„Þarna er stærsta vanda­málið okkar, það byrjar þarna. Við getum verið að tala um ein­hver plast­rör sem eru  0,0001%, hvernig væri að skoða fiskinet eða foam­pakkn­ingar, allt þetta sem fylgir sjáv­ar­út­veg­inum. Þeir eru að græða mest og eru minnst ábyrgir.“

Hún segir að bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn sé full­komin fyrir Ísland að leggja áheyrslu á. Það sé ekki flókið að rækta fyrir stöngl­ana auk þess að vinnslan sé ekki flókin. Hún seg­ist líka vera áhuga­söm á að rækta inn­nandyra fyrir stöngla. Hún segir að ef við á Íslandi ætlum í iðnað þá þurfum við lág­mark 2000 hekt­ara á ári eða um 500 tonn af hampi og við þurfum að tryggja okkur það að við getum staðið undir þeirri fram­leiðslu.

Að lokum segir Tóta:

„Það er engin fyr­ir­staða nema fólkið og ég er í raun bara að aug­lýsa eftir ein­hverjum hug­rökkum manni eða fólki sem er til í að breyta ein­hverju, gera betur. Á þessum tíma sem við erum að upp­lifa þurfum við að verða meira sjálf­bær og við þurfum að fara að fara opna augu okkar meira gagn­vart bændum og þeirra starfi, ég held að fólk sé ekk­ert með­vitað um hvað þetta skiptir miklu máli og við þurfum að finna betri far­veg að þeir þurfi ekki alltaf að vera að berj­ast í bökkum og við þurfum að vera meira ábyrg fyrir því að rækta landið okkar og nýta það sem við eigum.“

Viðtalið má nálg­ast í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu