Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tom segir mikla framtíð í hampsteypunni: „Eitt tré myndar ekki skóg heldur mörg tré“

Tom segir mikla framtíð í hampsteypunni: „Eitt tré myndar ekki skóg heldur mörg tré“

Hamp­fé­lagið fer af stað með HAMPKASTIÐ sem eru umræðu­þættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálf­sögðu um HAMP. Þátta­stjórn­endur verða Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs sem bæði eru stjórn­ar­menn í Hamp­fé­lag­inu. Fyrstu gestir þátt­ar­ins verða bæði íslenskir og erlendir sér­fræð­ingar á sínu sviði um nýt­ingu hamps. 

Tom með hamp­inn

Nýjasti gestur Hamp­kasts­ins er breski arki­tekt­inn Tom Woolly sem má segja að sé faðir hamp­steypunar í Evropu og eflaust á heim­vísu. Tom býr í Írlandi og er sér­fræð­ingur í sjálf­bærum og nátt­úru­legum bygg­ing­ar­að­ferðum. Tom sem lærði arki­tektúr á sjötta ára­tugnum í Edin­borg­ar­há­skóla, sýndi strax merki þess að vera á skjön við það sem var kennt, sem ein­kennd­ist mikið af stórum dýrum, steyptum bygg­ingum. Tom hefur verið þekktur fyrir það alveg frá fyrstu tíð hans í arket­ektúr að hugsa út fyrir boxið sem hefur í raun alltaf leitt af sér sjálf­bærni í tengslum við bæði hrá­efni, form og bygg­ing­ar­að­ferðir.

Fyr­ir­lest­ur­inn sem breytti öllu

Sem ungur maður í leit sinni að nátt­úru­legum bygg­ing­ar­að­ferðum gekk hann í sam­tök um umhvef­is­vænar bygg­ingar í Bret­landi en fann þar að umhverf­is­vit­undin þar var ekki að hans mati nógu sterk. Á ráð­stefnu sem sam­tökin héldu í lok níunda ára­tug­ar­ins í London heyrði hann fyr­ir­lestur arki­tekts að nafni Ralph Carpenter sem fjall­aði um bygg­ingar sem gerðar höfðu verið í Frakk­landi úr hamp­steypu. Fann Tom á því augna­bliki að þetta væri það sem hann hefði alltaf verið að leita að. Á þessum fyr­ir­lestri bland­aði Ralph steypu og gerði prufur sem gestum fannst ekk­ert mikið um og í lok fyr­ir­lestr­ar­ins fóru allir gest­irnir sína leið nema Tom, hann varð eftir og end­aði í sam­starfi við Ralph. Tom ferð­að­ist til Frakk­lands og í sam­vinnu við Ralph tókst honum að setja saman hamp­steypu­leið­bein­ingar sem svo Tom not­aði í þeim fyrstu húsum sem byggð voru úr hamp­steypu í Bret­landi.

Fyrstu húsin sem Tom byggði í Bret­landi voru úr inn­fluttum hampi sem þeir Ralph keyrðu í sendi­bílum yfir til Bret­lands en svo eftir því sem tím­inn leið fóru að spretta upp rækt­anir í Bret­landi sem svo urðu að hrá­efni fyrir breskar hamp­steypu­bygg­ingar. Tom tal­aði um upp­runa hamp­steypunnar og vís­aði þá í sögu­sagnir sem fjöll­uðu um hamp­steypu­fram­leiðslu forn róm­verja en ekk­ert sé til í raun sem styrkir þær sögu­sagnir þó svo að það sé stað­fest að róm­verjarnir hafi fundið upp limestonebind­er­inn sem svo er not­aður með hampi og vatni í fram­leiðslu á hamp­steypu í dag. Fram­leiðsla á hamp­steypu er því til­t­ur­lega ný af nál­inni og talið er að í kringum 1980 hafi Þjóð­verjar og Frakkar byrjað að notað hamp­steypu í við­gerðir á gömlum húsum sem svo leiddi til þess að fyrstu hamp­steypu­húsin voru byggð nokkrum árum seinna.

Kostir hampsteypunnar

Varðandi hamp­steypuna seg­ist Tom hafa fundið hana í leit sinni að hrá­efni sem gæti mögu­lega leyst af notkun hefð­bund­innar steypu og plasts í bygg­ingum sem eru ekk­ert annað en umhverf­is­skað­valdar. Helstu áhyggjur sér­fræð­inga í byrjun hamp­steypu­tíma­bils­ins voru að nátt­úr­legt efni eins og hampur í bygg­inum myndi auð­veld­lega brenna, burð­ar­fræði­legur styrkur væri ófull­nægj­andi, lélegt ein­angr­un­ar­gildi, myglu og að mýs og annar skað­valdur myndi frekar sækja í nátt­úru­leg efni fram­yfir steypu og plast. Það sem svo hefur komið í ljós með hamp­steypuna er að burð­ar­fræði­legur styrkur er sam­bæri­legur við steypu, ein­angr­un­ar­gildið er á pari með hefð­bund­inni ein­angrun ef ekki betri, mygla þrífst ekki í hampi eins og í öðrum nátt­úr­legum efnum eins og korki og ull. Hamp­steypan hefur það háa bruna­vörn að hann nán­ast brennur ekki og mýs og annar skað­valdur sækja alls ekki í hann. Reynslan er að sýna að hamp­steypan sé í raun heilt yfir tals­vert betri sem bygg­ing­ar­hrá­efni en önnur efni sem eru ráð­andi á mark­aðnum í dag.

Talið er að mann­virkja­geir­inn beri ábyrgð á um 30-40% af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á heims­vísu. Tæplega helm­ingur þeirrar los­unar kemur frá bygg­inga­efnum, einkum stein­steypu.

Tom fræðir áhuga­sama um hamp­steypuna

Helstu kostir hamp­steypunnar er hvað hún er umhverf­is­væn. Hamp­ur­inn bindur ekki bara koltví­oxíð meðan hann vex, því hamp­steypan heldur áfram að sjúga það í sig næstu ára­tugi. Hamp­steypa andar líka og er ein­angr­andi og brennur hvorki né myglar. Það hljómar næstum of gott til að vera satt.  

Eftir að plantan hefur verið skorin niður er hún ýmist færð inn í hús til þurrkunnar eða látin liggja úti og brotna niður. Eftir að hún er þurrkuð eru trefj­arnar skildar frá, en þær má nota í hluti eins og textíl og reipi. Stöng­ull­inn er hins vegar kurl­aður niður.  

Í fram­hald­inu er hampk­urlinu hrært saman við kalk og vatn, efj­unni sturtað í mót, þjöppuð niður og látin harðna. Þar með er eitt stykki útveggur orð­inn til en hann er bor­inn upp af grind, yfir­leitt úr timbri.

Brad Pitt hefði getað breytt miklu

Vand­málið hvað varðar hamp­steypuna í Írlandi til dæmis segir Tom vera skert aðgengi að arki­tektum og hönn­uðum sem séu til­búnir að hanna og setja nöfn sín við hönnun hamp­steypu­bygg­inga en hann vill meina að þetta séu bara smá skref og þau virð­ast vera tekin í rétta áttt. Hann tal­aði um að kannski þurfi ein­hvern þekktan áhrifa­vald sem tals­mann hamp­steypunar í stað eldri hug­sjóna­manns eins og hann sjálfur er. Á tíma­bili átti Brad Pitt stórt sveita­setur í Frakk­landi þar sem mik­ill hampur var rækt­aður og planið var hjá Brad að byggja stórt hamp­hús sem hafði vakið mikla athygli vegna frægðar hans en hann svo skildi við eig­in­kon­una sem hann var giftur og setrið var selt svo ekk­ert varð úr þeirri bygg­ingu sem hefði vakið mikla athygli.

Lífhúsið

Biobuild­ing, eða Lífhúsið, er til­rauna- og þró­un­ar­verk­efni á vegum arki­tekta­stof­unnar Lúdika, sem er í eigu þeirra Önnu Karls­dóttur og Jans Dobrowolski. Í sumar fékk stofan styrk frá Hönn­un­ar­sjóði til að hanna 15 fer­metra smá­hýsi úr hamp­steypu. Til stendur að reisa það í Gríms­nesi í vor og kanna hvernig það stenst íslenskar aðstæður. Í tengslum við þetta verk­efni hélt Lúdíka í sam­vinnu við Hamp­fé­lagið, vinnu­stofu í haust þar sem Tom var með kynn­ingu á gerð og sögu hamp­steypunnar ásamt því að til­rauna­veggur var byggður. Mikil undrun ein­kenndi gesti vinnu­stof­unnar því um leið og steyp­unni hafði verið hellt og þjappað í mót sem byggð höfðu verið gátu þau fjar­lægt mótin og steypan stóð og hreyfð­ist ekk­ert úr stað sem gerir fram­leiðslu á hamp­steypu­veggjum með ein­dæmum auð­velda og við­ráð­an­lega.

Skortur á fjárfestum

Á Íslandi segir Tom að vanti fjár­festa til að leggja pen­inga í úrvinnslu­stöðvar fyrir hamp­inn. Margir séu farnir að sýna hamp­inum áhuga og íslenskir rækt­endur á hampi hafi nú sýnt það síð­ustu ár að ræktun er mögu­leg á Íslandi en vanda­málið er að það eru engir staðir eða tæki til að taka við hamp­inum og vinna úr honum svo hægt sé að nota til fram­leiðslu á hús­næðum og öðrum hlutum sem hægt er að vinna úr hamp­inum. Þetta vanda­mál er enn til staðar að ein­hverju leiti á Írlandi þar sem hann býr en það má segja að Íslend­ingar séu einum 20 til 30 árum á eftir og að þetta ferli taki tíma. Í raun snýst þetta um að fram­leið­endur og fjár­festar opni augu sín fyrir sjálf­bærni, styrk og mögu­leikum hamps­ins og legg­ist í þá vinnu sem þarf til svo að fram­leiðsla á íslenskum hampi verði raun­hæf. Hann segir okkur einnig vera heppin því við séum með vatnið með okkur og ork­una sem til þarf. 

Tom segir að enn sé þörf á vís­inda­rann­sóknum því margir sem vinna með hamp­steypuna vinni út frá reynslu sem er gríð­ar­lega dýr­mæt og þýð­ing­ar­mikil en hafi kannski ekki nógu mikið vægi þegar kemur að því að sann­færa mark­að­inn. Til dæmis má nefna að hamp­steypan virð­ist halda á í raun óút­skýr­an­legan hátt hita­sigi í 14 gráðum óháð innri hita­gjafa og ytra hita­stigi sem gerir hamp­steypuna ákjós­an­legan kost fyrir mat­væla og vín­iðn­að­inn svo eitt­hvað sé nefnt. En þessi stað­reynd sem er orðin skýr út frá reynslu er enn frekar óút­skýrð út frá vís­inda­legum rann­sóknum.

Margir kúrekar í bransanum

Tom seg­ist vera kom­inn á stað í sinni vinnu þar sem hann er að reyna að gera hamp­steypuna ennþá meira umhverf­is­væna og því er hann að gera til­raunir með leir sem nátt­úr­legt jarð­efni í stað Limebind­ers­ins sem er í raun kalk afurð sem er ekki jafn umhverf­is­væn og leir­inn til dæmis. Einnig segir Tom að honum langi að gera til­raunir á bambus burð­ar­grind í stað hefð­bund­ins timb­urs því timbrið er orðið umhverf­is­lega séð að verð­mætri afurð og bambus er mjög fljót­vax­inn eins og hamp­ur­inn og býr yfir gríð­ar­legum styrk. 

Í lokin segir Tom að mik­il­vægt sé að sýna nær­gætni og virð­ingu fyrri fram­leiðslu á hampi og hamp­steypu. Hann vill meina að það séu margir „kúrekar“ ef svo mætti kalla í þessum bransa, sem eru fljótir með yfir­lýs­ingar en vanda svo ekki til verks. Hann nefnir í því sam­hengi áhuga­sama ein­stak­linga sem eru yfir­lýs­ingaglaðir um áform sín með ræktun og bygg­ingu hamp­húsa hér á landi en svo þegar raun­veru­leg vinnu­stofa er sett upp með sér­fræð­ingi í hamp­steypu þá geti þessir „kúrekar“ ekki einu sinni séð sér fært á að mæta og afla sér þeirra þekk­ingar sem til þarf fyrir verk­efnið sem til þarf til, auk þess sem það myndi stuðla að tengslum og hóp­mynd­unar fólks í sömu hug­leið­ingum svo að þeir geti frætt og lært af hvort öðru. „Eitt tré myndar ekki skóg heldur mörg tré.“

Þetta upp­lýsandi við­tal má sjá á spil­ar­anum hér fyrri neðan auk þess að finn­ast á öllum helstu streym­isveitum. Einnig má benda á auð­velt er að skrá sig í Hamp­fé­lagið á hamp­felagid.is og fá þar reglu­legar til­kynn­ingar á því sem er að ger­ast í hamp­brans­anum á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu