Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Smíðakennarinn Gunnar samdi frið við hampinn: „Lifi byltingin, hömpum hampinum”

Smíðakennarinn Gunnar samdi frið við hampinn: „Lifi byltingin, hömpum hampinum”
Gunnar Dan Wiium. Mynd: Aðsend

Hamp­fé­lagið fer af stað með HAMPKASTIÐ sem eru umræðu­þættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálf­sögðu um HAMP. Þátta­stjórn­endur verða Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs sem bæði eru stjórn­ar­menn í Hamp­fé­lag­inu. Fyrstu gestir þátt­ar­ins verða bæði íslenskir og erlendir sér­fræð­ingar á sínu sviði um nýt­ingu hamps.

Gestur þátt­ar­ins er Gunnar Dan Wiium sem er hamp-akti­visti er starfar sem smíða­kenn­ari, pistla­höf­undur og umboðs­maður ásamt þess að vera þátt­ar­stjórn­andi hlað­varps­ins Þvotta­húsið.

Gunnar á fullu í rækt­un­inni.

Gunnar kynnt­ist kanna­bis sem ung­lingur. Hann byrj­aði að reykja lyfja­hamp eða THC fyllt kanna­bis í þeim til­gangi að kom­ast í vímu. Í mörg ár reykti hann kanna­bis dag­lega sam­hliða helg­ar­fyll­er­íum. Líf hans breytt­ist til muna þegar hann svo leidd­ist í neyslu á harð­ari efnum sem urðu að hættu­legum víta­hring sem honum tókst að slíta sig úr fyrir rúmum sex árum síðan með hjálp 12 spora sam­taka. Hann vildi þó ekki meina að kann­bis neyslan hafi leitt hann í sterk­ari efni frekar en áfengi nema á þeim for­sendum að þeir sömu sem seldu honum kanna­bis versl­uðu einnig með sterk­ari efni því jú bæði þessi efni eru ólög­leg. 

Gunnar segir einnig það risa­stórt skref og oft van­metið að þegar ung mann­eskja tekur þessa ákvörðun um að fara gegn og á svig við lög sam­fé­lags­ins og ger­ast brot­legur, að þessi hegðun eða þessi gjörn­ingur, eins sak­laus sem við­kom­andi getur fund­ist hann, felur í sér stórt skref sem svo aðeins elur af sér skerta sam­kennd, tvö­falt sið­ferði, tvö­falt líf og sið­gæð­is­hnignun.

Dóp er dóp

Gunnar seg­ist sann­færður um það að lög­leið­ing á kanna­bis sé ekki bara nauð­syn­leg hvað varðar aukna neyslu á sterkum lyfjum í æð, heldur einnig neyslu á örvandi efni eins og Rítalín og Concerta, ásamt sljævg­andi ópíóaíða lyfjum sem er að drepa um einn á viku hér á landi. Hann segir að þessi lyf sem fólk er að nota í æð á Íslandi séu í flestum til­fellum svo­kallað lækna­dóp og honum finnst það ekki skipta neinu máli hvort lyfið sem gengur í sölu á svörtum mark­aði sé stimplað af íslenska land­lækn­is­emb­ætt­inu eða því spænska. Löglegt lækna­dóp er dóp hvort sem það komi frá Íslandi eða Spáni og ábyrgðin sam­eig­in­leg, þar að auki segir hann heilan eða vit­und­ar­starf­semi þess í fíkni­vanda ekki gera neinn grein­ar­mun á götu­dópi eða lög­legu dópi, dóp er dóp. 

Fyrir 5 árum síðan fór Gunnar að heyra í fyrsta skiptið af CBD olíu sem gengu kaupum og sölum hér á landi, ólög­lega. Honum fannst þetta áhuga­vert og fór að kynna sér málið. Hann hafði aldrei spáð neitt í neinum öðrum kannbínóðum en THC en er hann fór að kynna sér málið þá kemst hann að því að plantan sem hann hafði verið í stríði við öll þessi ár inni­héldi um 130 þekkta kannabínóða og THC sá eini í plönt­unni, vímu­gjafi sé hann inn­byrgður í nógu miklu magni.

Glímdi við bólgur og streytu

Gunnar hafði glímt við bólgur og streytu í lík­am­anum sam­hliða sínum fíkni­sjúk­dóm í mörg ár sem komu skýr­ast fram í mjó­baks­verkjum. Þegar hann fór að kynna sér málin komst hann að því að innan tauga­kerf­is­ins er ákveðið hlið­ar­kerfi sem sem er kallað Endocannabinoid system, skamm­staf­ast sem ECS. Á íslensku myndi það þýð­ast sem Endokannabínóða­kerfið og því skamm­staf­ast sem EKK. Kerfið sem um ræðir er flókið merkja­kerfi frá fru­munum sem sam­anstendur af endókannabínóðum, ens­ímum og kannabínóða-mót­tökum, sem hafa stjórn á ýmissi starf­semi í manns­lík­am­anum. Ber að nefna í þessu sam­hengi hjálp við svefn, skap, mat­ar­lyst og melt­ingu, minni, bólgu­myndun, húð­vanda­mál, end­ur­heimt og frjó­semi. Þessar flóknu teng­ingar finn­ast í heil­anum, vefjum og kirtlum og í öllum aðal líf­færum okkar. Kerfið var upp­götvað af tékk­neskum vís­inda­manni árið 1992 í Ísrael og við þessa upp­götvun komust vís­inda­menn að því að lík­am­inn fram­leiðir sína eigin kannabínóða í marg­vís­legum til­gangi sem kerfið, ECS er hannað til að taka á móti.

Keypti CBD olíu af „díler“

Þegar Gunnar reyndi að hafa upp á CBD olíu fyrir þessum árum síðan þurfti að hann að nálg­ast það á svörtum mark­aði. Hann tal­aði um þegar hann hitti „díler­inn“ á bíla­stæði í Borg­ar­tún­inu. Dílerinn rúll­aði á planið á stórum Audi og þeir skipt­ust svo á glasi og tutt­ugu þús­und kalli eins og þeir væru að díla dóp, „það var ekk­ert öðru­vísi,“ sagði Gunnar. Það er allt annað upp á teng­ingnum nú í dag. Olían er nú lög­lega flutt inn og seld hér á landi sem húð­vara en upp undir hverjum og einum hvernig hin svo­kall­aða húða­vara er svo notuð.

Gunnar ansi hreint ánægður með upp­sker­una.

Gunnar segir að síð­ustu hund­rað ár eða svo hefur hamp­ur­inn, plantan verið svert og því talin hættu­leg. Þessi áróð­urs­her­ferð var sett af stað af há-kapital­ískum hags­muna­aflum sem lögð­ust í beina atlögu gegn hamp­inum, og er þá ekki aðeins að tala um Indica afbrigði plönt­unar heldur líka ræktun og alla notkun á Iðn­að­ar­hampi. Hann segir að hamp­ræktun hafi verið gríð­ar­lega útbreidda og áber­andi sem hrá­efni í alls­konar iðn­aði, í iðn­aði sem snýr að textíl­fram­leiðslu og pappír svo eitt­hvað sé nefnt. En þegar stórir hags­muna­að­ilar innan papp­írs­iðn­að­ar­ins, stál­iðn­aðar, plasts og pólyesters komu saman í eins­konar sam­kurli með íhalds­ömu og valda­miklu sam­fé­lagi bind­ind­is­hreyf­inga í Banda­ríkj­unum upp úr 1900, fór af stað mikil við­horfs­breyt­ing í garð plönt­unnar sem svo nú loks­ins virð­ist vera í sterkum og jákvæðum við­snún­ingi.

Vill sjá Kannabis-túrisma

Gunnar segir nauð­syn­legt að hugsa fram á veg­inn í þessum efnum. Hann vill fá að sjá breyt­ingar sem á næstu árum mun leiða til fullrar lög­leið­ingar á Kannabis. Hann seg­ist vilja sjá hér á Íslandi kanna­bis-túrisma og útflutn­ing af lyfja­hampi. Hann nefnir spá í Danmörku sem segir að innan næstu fjög­urra ára verði útflutn­ingur af lyfja­hampi í Danmörku orðin stærsta útflutn­ings­vara Dana svo að um gríð­ar­legar fjár­hæðir er um að ræða. Gunnar vill fá að sjá sjávar og bygg­ing­ar­iðn­að­inn koma sterkt inn með hamp. Hann talar um sjáv­ar­út­veg­inn sem mesta sóða sjáv­ar­ins og á sama tíma eru það þeir sem hirða allan gróðan af olíu íslend­inga, fisk­inn. Bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn er háður steypu og sem­enti þegar að við getum fært okkur í sjálf­bær og umhverf­is­vænar bygg­ing­ar­að­ferðir með timbri og hamp­steypu sem er orðin gríð­ar­lega algeng viðs­vegar í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Gunnar vill fá að sjá CBD á hjúkr­un­ar­heim­ilum þar sem geð­frá­viks­grein­ing­ar­hlut­fall vist­manna er um 75 pró­sent. Hann segir að þar sé engin að græða nema sið­blindir lyfj­arisar sem hann segir að svíf­ist einskis þegar að kemur að því að finna eða skapa mark­hóp geð­lyfja sem hafa sýnt að lækni engin geð­frá­vik með því í að plástra sárið sem er sýkt. Ráðast þarf á sýk­ingu vit­und­ar­innar með raun­veru­legum stuðn­ing við tauga­kerfi lík­am­ans og þar komi CBD og aðrir kannabínóðar inn sem gríð­ar­lega sterkir þættir. Sama vill hann meina að sé upp á ten­ingnum með grein­ingar og innan sviga við­eig­andi lyfja­gjafir við ADHD, kvíða og þung­lyndi og að það skipti engu máli hvort sé að ræða börn, ung­lingar eða full­orðnir.  

Finnur ekki fyrir fordómum

Gunnar seg­ist ekki finna til for­dóma í dag hvað við kemur sínum hampakti­visma. Hann seg­ist mikla vit­und­ar­vakn­ingu hafa átt sér stað á Íslandi með til­komu Hamp­fé­lags­ins og lög­leið­ingu CBD. Slíkar olíur má eflaust finna í dag á nán­ast hverju heim­ili enda komið í sölu nú í mat­vöru­versl­unum og apó­tekum út um allt land. Gunnar seg­ist hafa samið frið við hamp­inn sem hann slóst við í mörg ár, þessi frið­ar­sátt segir hann hafa haft mikil áhrif á edrú­mennsku sína sem í dag er ekki keyrð áfram af ótta við efnið því hamp­ur­inn er fyrir honum heil­ari, græð­ari sem á sterkan þátt í sinni lík­am­legri og and­legri heilsu.

Kanna­bis­plantan í öllu sínu veldi.

Í lokin segir Gunnar, 

„Við erum nátt­úru­lega öll á mis­mun­andi leiðum sem leiða okkur að sama punkt­inum og mín leið snýr að lík­am­legri og and­legri heilsu og að fá þennan stuðn­ing við tauga­kerfið sem gerir mig stöðugan. Opnar vit­und­ina mína fyrir því sem er og kemur mér inn í núvit­und, þar kemst ég í sam­kennd gagn­vart fólki og auð­vitað sjálfum mér. Það er sköpun sem gerir mig hæfan til að leika mér þótt ég sé full­orð­inn. Komast bara meira inn í nátt­úru­legt flæði því við erum að eld­ast, eftir fimmtán ár er ég orð­inn 61 árs og við erum bara að fara að deyja eftir korter og því verð ég að njóta þess og vera í takt með nátt­úr­unni. Og svona rétt í lokin, ég leit alltaf á plönt­una sem óvin en ég þurfti bara að beisla þetta, semja frið við plönt­una og sjá plönt­una sem það sem hún raun­veru­lega er, í heild sinni, knúsa hana, lifi bylt­ingin, hömpum hamp­inum.”

Hægt er að horfa á allt við­talið hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu