Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Brynjólfur Bjarnason er látinn

Brynjólfur Bjarnason er látinn

Brynjólfur Bjarna­son, fyrr­ver­andi for­stjóri lést á heim­ili sínu í Nýhöfn í Garðabæ sunnu­dag­inn 16. mars. Hann fædd­ist 18. júlí 1946 og var því á 79 ald­ursári.

For­eldrar Brynj­ólfs voru þau Krist­jana Brynj­ólfs­dóttir hús­freyja í Reykja­vík, fædd 1923, dáin 2000, og Bjarni Björns­son for­stjóri í Reykja­vík, fæddur 1920, dáinn 2001.

Samkvæmt mbl.is ólst Brynjólfur upp í Hlíðunum við gott atlæti for­eldra sinna á fal­legu menn­ing­ar­heim­ili ásamt þremur fjör­ugum bræðrum.

Gekk Brynjólfur í Aust­ur­bæj­ar­skóla og síðan í Verzlunarskóla Íslands en þaðan útskrif­að­ist hann sem stúd­ent árið 1967. Þá útskrif­að­ist hann með cand. oecon.-gráðu í við­skipta­fræði frá Háskóla Íslands árið 1971 og MBA-gráðu frá Uni­versity of Minnesota árið 1973.

Brynjólfur var for­stöðu­maður hag­deildar Vinnu­veit­enda­sam­bands Íslands (nú Samtök atvinnu­lífs­ins), á árunum 1973 til 11976 og fram­kvæmd­ar­stjóri Almenna bóka­fé­lags­ins frá 1976 til 1983. Ári síðar tók hann við starfi fram­kvæmd­ar­stjóra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Granda og gengdi því til 2002. Leiddi hann þar umbreyt­ingu og einka­væð­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Þá var hann for­stjóri sam­skipta­fé­lags­ins Símans/Skipta frá 2002-2010 og stýrði þar einka­væð­ingu Landsíma Íslands í Símann árið 2005. Brynjólfur tók svo við starfi fram­kvæmd­ar­stjóra Fram­taks­sjóðs Íslands árið 2012 og gengdi því til 2014. Frá 2014-2024 var hann í stjórn Arion banka og stjórn­ar­for­maður bank­ans frá 2019-2024.

Í gegnum tíð­ina sat Brynjólfur í stjórnum fjöl­margra fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi en þar ber helst að nefna LÍÚ, Codwater seafood, Þórmóðs ramma á Siglu­firði og Ísfélags Vest­manna­eyja. Þá sat hann einnig í stjórnum fjar­skipta­fé­laga á borð við Símann og Mílu og í stjórnun félaga á fjár­mála­mark­aði, eins og svo sem Arion Banka, Íslands­banka og Almenna líf­eyr­is­sjóðs­ins. Aukreitis sat Brynjólfur í stjórnum ýmissa fyr­ir­tækja í iðn­að­ar­starf­semi, eins og til dæmis ISAL/Rio Tinto, Promens, Álafoss og verk­smiðj­unnar Dúks, sem var fyr­ir­tæki föður hans. Að lokum má nefna að hann sat einnig í stjórnum nokk­urra menn­inga­stofn­ana og félaga­sam­taka, á borð við AB bóka­út­gáfu, Reykja­vík Menn­ing­ar­borg Evrópu árið 2000, í Launa­sjóði rit­höf­unda og Leik­rit­un­ar­sjóði Leik­fé­lags Reykja­víkur, svo eitt­hvað sé nefnt.


Þá var Brynjólfur lengi vel ræð­is­maður Síle á Íslandi en árið 2008 hlaut hann heið­urs­orð­una „Chi­le­an Or­der al Mer­ito“. Árið 1994 var hann sæmdur ridd­ara­krossi íslensku fálka­orð­unnar.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Brynj­ólfs er Þorbjörg Kristín Jóns­dóttir rekstr­ar­hag­fræð­ingur en hún er fædd árið 1962. Þau gengu í það heilaga árið 1993. Börn þeirra eru Brynjólfur Jón og Helena Kristín en börn Brynj­ólfs með fyrri eig­in­konu sinni, Kristínu Thors (þau skildu árið 1990), og stjúp­börn Þor­bjargar, eru Birgir Örn, Krist­jana, Helga Birna og Bjarni. Upp­eld­is­dóttir hjón­anna er Sandra Yildiz Castillo Calle en barna­börnin eru 11 og

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Brynj­ólfs er Þor­björg Krist­ín Jóns­dótt­ir rekstr­ar­hag­fræð­ing­ur, f. 1962, þau giftu sig 1993. Börn þeirra eru Brynj­ólf­ur Jón og Helena Krist­ín. Börn Brynj­ólfs með fyrri eig­in­konu, Krist­ínu Thors (þau skildu 1990), og stjúp­börn Þor­bjarg­ar, eru Birg­ir Örn, Krist­jana, Helga Birna og Bjarni. Upp­eld­is­dótt­ir Brynj­ólfs og Þor­bjarg­ar er Sandra Yild­iz Castillo Calle. Barna­börn­in eru 11 og barna­barna­börn­in 2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ