Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Nýr formaður KKÍ sagður gera lítið úr handbolta

Rottu­hlaup er víst vinsælla en handbolti

Kristinn Albertsson formaður
Kristinn Alberts­son for­maður Líkti hand­bolta við rottu­hlaup Mynd: KKÍ

Þann 15. Mars var lokadagur ársþings KKÍ haldinn og á honum var kjörin ný stjórn og nýr formaður KKÍ. Það var Kristinn Albertsson sem varð fyrir valinu sem formaður. Hins vegar hefur brot úr sigurræðu sem Kristinn hélt á þinginu vakið athygli margra og ekki fyrir góðar sakir.

Í ræðunni, sem hefur verið að hluta til birt á samfélags­miðlum, má sjá formanninn ræða um vinsældir íþrótta í heiminum og nefnir að handbolti sé í 186. sæti á þeim lista og indverskt rottu­hlaup sé í 185. sæti. Vakti þetta um hlátur hjá mörgum sem sátu þingið.

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðs­markvörður í handbolta, birti myndskeið af orðum hans.

Stuðnings­mönnum handbolta á Íslandi er ekki skemmt yfir þessum orðum Kristins. „Sleppum því að ræða okkar árangur sem þjóð. Mælum okkur í smægð hvors annars. Hreint út sagt sorglegt tal,“ skrifar Ásgeir Jónsson, þjálfari og fyrr­verandi handbolta­maður, á Twitter um málið.

Kemur þetta aðeins tveimur dögum eftir að handbolta­menn sökuðu Kára Árnason, fyrr­verandi lands­liðsmann í fótbolta, um að gera lítið úr handbolta þegar hann ræddi um leik Íslands við Kósovó í fótbolta á föstu­daginn.

Arnar Daði Arnarsson hand­knattleiks­þjálfari kallaði Kára í kjölfarið lítinn karl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Sport

Nærmynd

Hver er Theodór Elmar?

Tíu árum eftir árangur Íslands á EM 2016 rifjar Mannlíf upp feril Theodórs Elmars Bjarnasonar, eins af leikmönnum liðsins.

Kristian Nökkvi kemur inn í landsliðs­hópinn

Átján ára knattspyrnu­maður lést eftir höfuðhögg í miðjum leik

Brasilísk knattspyrnu­félög leita til lögreglu eftir slagsmál í leik U20-liða kvenna

Helga Margrét vill breyta heiminum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Mark­vörðurinn í áfalli eftir dauðsfallið