Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Útvarpsstjóri tók við undirskriftarlista þeirra sem vilja sniðganga Eurovision

„Tími orða­flaums er lið­inn. Tími aðgerða er runn­inn upp.“

Útvarpsstjóri tók við undirskriftarlista þeirra sem vilja sniðganga Eurovision
Frá afhend­ing­unni. Stefán tekur á móti texta­verki eftir Lóu Hjálmtýrs­dóttur. Mynd: Aðsend

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri RÚV tók á móti und­ir­skrift­ar­lista þeirra sem vilja að Rík­is­út­varpið dragi Ísland út Eurovision, verði Ísrael ekki vikið úr keppn­inni.

Fyrr í dag 12. maí afhenti lista­mað­ur­inn Lóa Hjálmtýs­dóttir Stefáni Eiríks­syni útvarps­stjóra RÚV und­ir­skrifta­lista sem hún er jafn­framt ábyrgð­ar­maður fyrir. Und­ir­skrifta­list­inn er sá listi sem í dag er með stærstan fjölda und­ir­skrifta á Íslandi en 5.600 manns hafa skrifað undir list­ann. Opið verður fyrir und­ir­skrift á list­ann til mið­nættis í kvöld. Þá afhenti Lóa útvarps­stjóra einnig texta­verk eftir hana.

Hér má sjá text­ann sem Lóa las fyrir Stefán við afhend­ingu und­ir­skrifta­list­ans:

„Við und­ir­rituð förum fram á að RÚV dragi Ísland úr Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, verði Ísrael ekki vísað úr keppni.

Um 5.600 manns skrifa undir þetta ákall. Hver und­ir­skrift á list­anum stendur því fyrir 10 manns­líf sem hafa glat­ast í hern­að­ar­að­gerðum Ísraels á Gaza.

Andstaða þjóð­ar­innar við þátt­töku Ísraels er mikil:

  • Utan­rík­is­ráð­herra hefur lýst því yfir í fjöl­miðlum að henni þyki óeðli­legt að Ísrael fái að taka þátt.
  • Fjöldi íslenskra lista­manna er á meðal rúm­lega sjö­tíu fyrrum Eurovision-kepp­enda sem hafa sent opið bréf til Sambands evr­ópskra sjón­varps­stöðva þar sem þeir krefj­ast þess að Ísrael verði úti­lokað frá keppn­inni.
  • Félag tón­skálda og texta­höf­unda stendur enn fast við sína áskorun um að RÚV snið­gangi Eurovision ef Ísrael verður með.
  • Annað árið í röð hefur FÁSES, Félag áhuga­fólks um Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, ekki haldið opin­bera við­burði í tengslum við Eurovision vegna þátt­töku Ísraels. Þá er mikið sagt.

Ísra­elski rík­is­fjöl­mið­ill­inn Kan hefur ítrekað birt efni sem lofar ofbeldi og eyði­legg­ingu hern­að­ar­að­gerð­anna og afmennskar Palest­ínu­menn. Þá fjár­magna ísra­elsk stjórn­völd mark­aðs­setn­ingu Eurovision-fram­laga Kan á sam­fé­lags­miðlum.

Þar sem Samband evr­ópskra sjón­varps­stöðva og Eurovision leggja áherslu á sjálf­stæði, óhlut­drægni og fjöl­breyti­leika, er það skylda allra sjón­varps­stöðva sem eiga aðild að sam­band­inu að standa vörð um þau gildi. Þegar einn aðili ógnar þessum gildum, ber öðrum að bregð­ast við.

Við sjáum því miður að orð duga skammt. Þrátt fyrir að rík­is­fjöl­miðlar fjög­urra landa – Írlands, Spánar, Slóveníu og Íslands – hafi ýmist kallað eftir umræðu innan sam­bands­ins um þátt­töku Kan eða lýst yfir and­stöðu gegn henni, hefur sam­bandið virt að vettugi þessar beiðnir eða dregið við­brögð á lang­inn, og stendur enn þétt við bakið á Kan.

Við hvetjum RÚV til að krefj­ast þess að sam­bandið taki á brotum Kan og tryggi að Eurovision haldi áfram að vera vett­vangur sem end­ur­speglar þau gildi sem keppnin stendur fyrir.

Hafa ber í huga að það er sterk póli­tísk afstaða að standa hjá og gera ekk­ert, að láta eins og við séum valda­laus and­spænis mann­úð­ar­krísu sem þess­ari. Við teljum það sið­ferð­is­lega skyldu okkar að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stuðla að því að full­trúar Ísraels fái ekki að hvít­þvo sig með keppn­inni og deila sviði með öðrum kepp­endum. Við gerum þá kröfu að RÚV hlusti á ákall okkar og nýti dag­skrár­vald sitt í þágu friðar og mann­rétt­inda.

Tími orða­flaums er lið­inn. Tími aðgerða er runn­inn upp. Snið­göngum Eurovision.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ