Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Erum herlaust land í lykilstöðu“

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir Ísland vinna náið með NATO og mun auka við­búnað og fjár­fest­ingu í varn­ar­tengdum innviðum á næstu árum.

„Erum herlaust land í lykilstöðu“
Kristrún Frosta­dóttir átti góðan fund með Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra NATO. Kristrún segir að fullur skiln­ingur sé á stöðu og fram­lagi Íslands til varn­ar­mála.

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra átti góðan fund með Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra NATO.

Segir Kristrún að fram hafi komið á fund­inum að algjör skiln­ingur sé á stöðu og fram­lagi Íslands til sam­eig­in­legra varna NATO-ríkja.

Þó að Atl­ants­hafs­banda­lagið og aðild­ar­ríki þess bregð­ist hratt við vend­ingum í öryggis- og varn­ar­málum þá mun ekki verða nein eðl­is­breyt­ing á sam­bandi Íslands við NATO og banda­lags­ríki okkar.

„Við erum her­laust land – en við erum í lyk­il­stöðu í Norður-Atl­ants­haf­inu. Og fram­lag okkar er mik­ils metið eins og verið hefur síðan Ísland gerð­ist eitt af 12 stofn­ríkjum NATO árið 1949. Ég vil að Ísland taki virkan þátt og veiti for­ystu í öryggis- og varn­ar­málum í okkar nærum­hverfi,“ segir Kristrún og bætir þessu við:

„Við munum áfram vinna náið með NATO og auka við­búnað og fjár­fest­ingu í varn­ar­tengdum innviðum á næstu árum – sem geta einnig nýst í borg­ara­legum til­gangi. Það skiptir máli fyrir hags­muni Íslands að við styrkjum getu okkar til að starfa með vina­þjóðum og banda­lags­ríkjum. Rík­is­stjórnin er algjör­lega ein­huga um þetta. Sem birt­ist bæði í nýrri öryggis- og varn­ar­mála­stefnu sem unnið er að undir for­ystu utan­rík­is­ráð­herra og í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til árs­ins 2030.“

Segir Kristrún að Rutte hafi lýst yfir ánægju sinni með afstöðu okkar og sam­starfið við Ísland:

„Hann þakk­aði sér­stak­lega fyrir stuðn­ing við Úkraínu og aðkomu að eft­ir­liti og æfingum banda­lags­ins á Norð­ur­slóðum. Enda er ljóst að vægi Norð­ur­slóða hefur auk­ist hratt á þessu sviði og við tökum ábyrgð okkar þar alvar­lega.“

Kristrún segir að lokum að „framundan er leið­toga­fundur NATO í Haag í lok júní. Fund­ur­inn er vel und­ir­bú­inn og ég bind vonir við að hann verði árang­urs­ríkur og sögu­legur fyrir Atl­ants­hafs­banda­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum