Kona féll í Svöðufoss á Snæfellsnesi um hádegisbil í dag. Var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út rétt um klukkan eitt.
Tóku Landhelgisgæslan og björgunarsveitir þátt í aðgerðunum en konan féll eina fimm metra ofan í fossinn.
Hún lifði af fallið.
Lenti þyrla Gæslunnar með manninn við Landspítalann í Fossvogi rétt fyrir klukkan þrjú.
Upplýsingar um líðan hennar liggja ekki fyrir að svo stöddu.































Athugasemdir