Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Stjórnvöld viðurkenni stuðning við blaðamennsku sem þátt í varnarviðbúnaði

„Öflugar varnir krefj­ast stöndugra frétta­miðla“ segir Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands og bendir á að „fag­leg blaða­mennska og öfl­ugir, frjálsir frétta­miðlar eru einn af lyk­il­þáttum í öryggis- og varn­ar­málum Íslands“

Stjórnvöld viðurkenni stuðning við blaðamennsku sem þátt í varnarviðbúnaði
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands Mynd: Blaðamannafélag Íslands

„Öflugar varnir krefj­ast stöndugra frétta­miðla“ segir Sigríður og bendir á að „fag­leg blaða­mennska og öfl­ugir, frjálsir frétta­miðlar eru einn af lyk­il­þáttum í öryggis- og varn­ar­málum Íslands.“

Sigríður segir að frjálsir og öfl­ugir frétta­miðlar sem leggja áherslu á fag­lega blaða­mennsku í þágu almenn­ings séu mik­il­væg vörn gegn ýmsum ógnum eins og til dæmis fals­fréttum:

„Aðild­ar­ríki NATO sam­þykktu á leið­toga­fundi í Haag á mið­viku­dag að stór­auka útgjöld til varn­ar­mála og að innan tíu ára skyldu þau koma til með að nema 5% af þjóð­ar­fram­leiðslu hvers ríkis í stað 2% sem miðað er við nú. Af þessum 5% færu 1,5% til „varn­ar­tengdra fjár­fest­inga og fram­laga sem styðja við áfalla­þol, öryggi og varnir,“ líkt og segir í til­kynn­ingu frá utan­ríkis- og for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.“

Sigríður bendir á að í áður­nefndri til­kynn­ingu sé haft eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að skiln­ingur ríki á sér­stöðu Íslands sem her­lausri þjóð og því muni Ísland miða við að á næsta ára­tug verði fram­lag Íslands til varn­ar­mála 1,5% af lands­fram­leiðslu og fari í efl­ingu inn­viða sem styðja við áfalla­þol, öryggi og varnir.

„Í þessu sam­hengi hefur sér­stak­lega verið talað um svo­kall­aðar fjöl­þáttaógnir (e. Hybrid threats) sem taldar eru getað grafið undan alþjóða­kerf­inu, lýð­ræði, sam­fé­lags­legri sam­heldni og mann­rétt­indum“ og segir Sigríður að um þetta hafi fjallað for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna í sam­eig­in­legri grein sinni sem birt­ist í vik­unni: „Í nútíma­væddum heimi er ráð­ist að frjáls­lyndum lýð­ræð­is­sam­fé­lögum með fjöl­breyttum aðferðum. Það er ekki aðeins gert með beinum hætti og hefð­bundnum hern­aði. Nú hafa óbeinar árásir færst í auk­ana sem er ætlað að grafa undan upp­lýstri og lýð­ræð­is­legri umræðu. Það er meðal ann­ars gert með skipu­lagðri dreif­ingu á fals­fréttum, netárásum og öðrum fjöl­þáttaógnum.““

Sigríður færir í tal að NATO hefur skil­greint ógnir gegn upp­lýs­inga­ör­yggi sem vís­vit­andi mis­notkun upp­lýs­inga­um­hverfis af hálfu erlendra ríkja eða utan­að­kom­andi afla með ráðum, taktík, tækni og aðgerðum sem ætlað er að hafa skað­leg áhrif á skoð­anir eða hegðun fólks, með það að mark­miði að veikja ríki og sam­fé­lög.

Þá nefnir hún að á tímum eins og þeim sem við lifum í dag, þegar sam­fé­lags­miðlar sýna veru­lega bjag­aða og afar ein­hliða mynd af heim­inum og utan­að­kom­andi öfl reyna að hafa áhrif á lýð­ræð­is­legar kosn­ingar víða um heim og um leið grafa undan stofn­unum sam­fé­lags­ins, þá hafa hefð­bundnir fjöl­miðlar verið að veikj­ast.

Hún tekur dæmi um sam­vinnu í innri strúktúr sam­fé­lags­ins varð­andi neyð­ar­á­stand og segir að „íslensk stjórn­völd treysta enda á fjöl­miðla til að upp­lýsa almenn­ing þegar neyð­ar­á­stand skap­ast, eins og sýndi sig í COVID-far­aldr­inu. Frjálsir, öfl­ugir frétta­miðlar sem leggja áherslu á „fag­lega blaða­mennsku í þágu almenn­ings eru því mik­il­væg vörn gegn þessum ógnum.“

Sigríður segir að til þess að blaða­menn geti ræktað þetta mik­il­væga hlut­verk þurfi fjöl­miðlar traustan fjár­hags­legan grund­völl - stuðn­ing almenn­ings sem og stjórn­valda og einnig skiln­ing á mik­il­vægi þeirra, en „þessi skil­yrði eru ekki til staðar í dag,“ segir Sigríður og bætir þessu við:

„Á lausn­a­móti Blaða­manna­fé­lags Íslands sem haldið var í mars síð­ast­liðnum, þar sem á sjö­unda tug sér­fræð­inga komu saman til að ræða við­fangs­efni tengd sam­eig­in­legum hags­munum fjöl­miðla, blaða­manna og almenn­ings, kom fram sú til­laga að styrkir og íviln­anir við íslenska fjöl­miðla og aðgerðir til efl­ingar blaða­mennsku yrðu skil­greind sem varn­ar­fram­lag Íslands til NATO.“

Sigríður segir að „slík stefna gæti styrkt stöðu Íslands á alþjóða­vett­vangi, eflt traust almenn­ings á stofn­unum lands­ins“ og þar með „und­ir­strikað mik­il­vægi blaða­mennsku í örygg­is­málum sam­tím­ans.“

Að mati Sigríðar er það klárt mál að sterkir frétta­miðlar tryggi aðgengi almenn­ings að traustum og sann­reyndum upp­lýs­ingum þegar áföll ríða yfir og draga þannig úr óvissu og upp­lýs­inga­óreiðu í sam­fé­lag­inu öllu um leið:

„Vel fjár­magn­aðir fjöl­miðlar geta brugð­ist fljótt og örugg­lega við fals­fréttum, leið­rétt rangar upp­lýs­ingar og komið í veg fyrir að grafið sé undan stöð­ug­leika í sam­fé­lag­inu. Þá er einnig nauð­syn­legt að efla miðla­læsi í land­inu og auka getu almenn­ings til að meta og greina áreið­an­leika upp­lýs­inga og upp­runa þeirra,“ segir Sigríður og bendir á að „mark­viss stefna og fjár­stuðn­ingur stjórn­valda við frétta­miðla sem mik­il­væga inn­viði stuðlar að meiri seiglu og þoli almenn­ings á áfalla­tímum.“

Hún færir einnig í tal að „íslensk stjórn­völd ættu að leggja áherslu á og við­ur­kenna form­lega stuðn­ing við blaða­mennsku sem þátt í varn­ar­við­bún­aði lands­ins og nýta tæki­færið til þess að efla þann stuðn­ing veru­lega“ og nefnir einnig að „Blaða­manna­fé­lag Íslands hefur fundið fyrir vel­vilja og áhuga hjá stjórn­völdum á að ráð­ast í aðgerðir til efl­ingar blaða­mennsku og fundið skiln­ing á mik­il­vægi hennar í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi.“

Sigríður Dögg segir að lokum að nú sé tæki­færi fyrir rík­is­stjórn­ina að láta verkin tala og „tryggja að hér geti starfað stöndugir frétta­miðlar sem ástunda fag­lega blaða­mennsku sem stuðlar að auknu öryggi, sam­heldni og trausti í sam­fé­lag­inu hvað sem á dynur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ