Í sambandi faraldsfræðilega rannsókn á salmonellusýkingu á bænum Fellshlíð hefur verið staðfest salmonellusýking á bænum Kvíabólí en MAST greinir frá þessu í fréttatilkynningu.
„Vegna þessa hafa sömu opinberu takmarkanir verið settar á báða bæina til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu smits.
Til að hægt sé að lýsa bæinn lausan við sjúkdóminn þarf að framkvæma endurteknar sýnatökur með 30 daga millibili, og öll sýni þurfa að vera neikvæð áður en takmarkanir verða felldar niður,“ segir í tilkynningunni.































Athugasemdir