Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ný varnarstefna: Íslendingar fá sér kafbát

Ný stefna í vörnum Íslands byggir á varn­ar­samn­ingi við Banda­ríkin þrátt fyrir hót­anir þeirra gegn Græn­landi.

Ný varnarstefna: Íslendingar fá sér kafbát
Boðar nýja varn­ar­stefnu Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra boðar bæði sam­ráð og taf­ar­lausar aðgerðir. Mynd: Utanríkisráðuneytið

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra kynnti rík­is­stjórn­inni í morgun grunn að nýrri varn­ar­stefnu, sem er í sam­ræmi við stjórn­ar­sátt­mála Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins.

Meðal aðgerða sem ráð­ist verður í er að „ómann­aður eft­ir­lit­skaf­bátur [verði] tek­inn í notkun í sam­vinnu við Land­helg­is­gæsl­una til að efla eft­ir­lit með sæstrengjum og höfnum“.

Þá verður „eft­ir­lit með netárásum sömu­leiðis eflt, örugg fjar­skipti bætt og ráð­ist í kaup á bún­aði til að nema og stöðva ólög­lega dróna,“ sam­kvæmt til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Þrátt fyrir að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hafi ítrekað boðað yfir­töku á Græn­landi og inn­limun í Banda­ríkin, er varn­ar­samn­ingur Íslands við Banda­ríkin grunnur að nýrri stefnu sem Þor­gerður Katrín boðar í varn­ar­málum, eins og segir í til­kynn­ing­unni. „Byggt verður á stefnum og skuld­bind­ingum sem Ísland hefur tek­ist á hendur og átt þátt í að þróa, m.a. innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og á grund­velli varn­ar­samn­ings­ins við Banda­ríkin og svæð­is­bund­ins varn­ar­sam­starfs.“

Aðrar fyr­ir­sjá­an­legar breyt­ingar á varn­ar­stefn­unni eru stjórn­sýslu­legar. Þær fela í sér upp­setn­ingu á sam­þætt­ing­ar­mið­stöð öryggis- og varn­ar­mála á varn­ar­mála­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í sam­vinnu við rík­is­lög­reglu­stjóra, Land­helg­is­gæsl­una og CERT-IS. Aðgerðir verða innan núver­andi fjár­heim­ilda. Utan­rík­is­ráðu­neytið heldur utan um vinn­una í sam­starfi við dóms­mála­ráðu­neytið og önnur ráðu­neyti og stofn­anir.

Í dag erum við ekki aðeins að ýta úr vör stefnu­mótun heldur einnig aðgerðum.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra

Að auki verður settur verður á fót sam­ráðs­hópur þing­manna allra flokka. Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins er haft eftir Þorgerði Katrínu að stefnu­mótun hafi verið flýtt vegna aðstæðna.

„Þörfin á styrk­ingu í öryggis- og varn­ar­málum er knýj­andi og því hef ég flýtt þess­ari stefnu­mótun, sem unnin verður í sam­starfi við alla flokka á Alþingi,“ segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra. „Við þurfum að sjá til þess að hér sé til staðar nauð­syn­leg þekk­ing, geta og inn­viðir til að tryggja öryggi Íslands í sam­starfi við banda­lags­ríki okkar. Í dag erum við ekki aðeins að ýta úr vör stefnu­mótun heldur einnig aðgerðum.“

Stefnt er að því að leggja fram drög að stefnu fyrir lok vor­þings.

Sem fyrr segir virð­ist breytt varn­ar­stefna ekki fela í sér end­ur­skoðun á varn­ar­samn­ingi við Banda­ríkin, sem hafa lýst því yfir að Grænland verði hluti af Banda­ríkj­unum og haldið opinni beit­ingu her­valds til að taka það yfir.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem rætt er um að Íslend­ingar afli sér kaf­báts. Árið 1958 lagði þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Pétur Ottesen, fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að Land­helg­is­gæslan kynnti sér fýsi­leika þess að halda úti kaf­bát við Íslands­strendur, en það var ekki síst til að verja fisk­inn fyrir ágangi erlendra aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum