Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sósíalistaflokkurinn vill tilnefna Francescu Albanese til friðarverðlauna Nóbels

„Núver­andi rík­is­stjórn Íslands, líkt og síð­asta rík­is­stjórn, reyn­ist sam­sek og eykur þá sam­sekt með hverjum degi sem hún beitir sér ekki af fullum þunga gegn þjóð­ar­morð­inu og sví­virði­legum brotum á alþjóða­lögum og mann­rétt­indum“

Sósíalistaflokkurinn vill tilnefna Francescu Albanese til friðarverðlauna Nóbels
Francesca Albanese Albanese hefur staðið þétt við bakið á Palest­ínu­mönnum frá upp­hafi þjóð­ar­morðs­ins Mynd: JURE MAKOVEC / AFP

Sós­í­alista­flokkur Íslands skorar á rík­is­stjórn­ina og þing­menn Alþingis að til­nefna Francescu Albanese, sér­stakan tals­mann Sam­ein­uðu þjóð­anna um mál­efni Palest­ínu, til Frið­ar­verð­launa Nóbels.

Í yfir­lýs­ingu flokks­ins segir að Albanese hafi sýnt hug­rekki, heið­ar­leika og stað­festu í bar­áttu sinni fyrir rétt­indum Palest­ínu­manna á alþjóða­vett­vangi, á sama tíma og „þjóð­ar­morð Ísra­els­ríkis heldur áfram óáreitt“. Þar er bent á áfram­hald­andi land­töku Ísraels, stækkun ólög­legra byggða og fjöldamorð á óbreyttum borg­urum.

Flokk­ur­inn segir að með því að tala af hrein­skilni gegn her­námi, land­ráni og ofbeldi hafi Albanese orðið fyrir póli­tískum árásum, við­skipta­þving­unum og fjöl­miðla­á­róðri, einkum frá Banda­ríkj­unum, en staðið óbif­an­leg með rétt­læti og mann­rétt­indum.

Í yfir­lýs­ing­unni er jafn­framt gagn­rýnt að mörg ríki Evr­ópu­sam­bands­ins, sem og íslensk stjórn­völd, séu sam­sek í glæpum gegn mann­kyni með aðgerða­leysi, und­ir­gefni eða beinum stuðn­ingi við Ísrael.

„Það er skylda okkar að styðja slíkt hug­rekki,“ segir í ályktun flokks­ins, sem leggur áherslu á að bar­átta Albanese sé ekki aðeins fyrir Palest­ínu heldur einnig fyrir grunn­gildum mann­kyns­ins: samúð, rétt­læti og virð­ingu fyrir lífi allra.

Hér má sjá ályktun flokks­ins í heild sinni:

Sós­í­alista­flokkur Íslands hvetur rík­is­stjórn­ina og með­limi Alþingis til að til­nefna Francescu Albanese, sér­stakan tals­mann Sam­ein­uðu þjóð­anna um mál­efni Palest­ínu, til Frið­ar­verð­launa Nóbels. Francesca Albanese hefur af hug­rekki, heið­ar­leika og stað­festu verið rödd palest­ínsku þjóð­ar­innar á alþjóða­vett­vangi á sama tíma og þjóð­ar­morð Ísra­els­ríkis á palest­ínsku þjóð­inni heldur áfram óáreitt. Landrán Ísraels í Palest­ínu heldur áfram, ólög­legar byggðir stækka dag frá degi, og fjöldamorð á börnum, konum og öldruðum eru dag­legt brauð.

Þegar heims­byggðin stendur frammi fyrir slíkum glæpum gegn mann­kyn­inu er lág­mark að heiðra þá sem hafa kjark til að segja sann­leik­ann og verja rétt fórn­ar­lambanna. Francesca Albanese er ein af fáum alþjóð­legum emb­ætt­is­mönnum sem hefur ekki látið þagga niður í sér, heldur talað af hrein­skilni gegn land­ráni, her­námi og þjóð­ar­morði. Fyrir það hefur hún orðið skot­mark stöðugra árása: við­skipta­þving­ana, rang­færslna og póli­tískra ofsókna – einkum af hálfu Banda­ríkja­stjórnar – auk fjöl­miðla­árása sem miða að því að grafa undan trú­verð­ug­leika hennar. Þrátt fyrir þetta stendur hún óbif­an­leg með rétt­læti.

Mörg ríki Evr­ópu­sam­bands­ins eru ekki aðeins með­virk heldur beita sér af fullum þunga fyrir áfram­hald­andi þjóð­ar­morði með því að vopna og fjár­magna land­ránsný­lend­una Ísrael. Samsekt þeirra gengur langt út fyrir þögn­ina: þau eru sjálf ger­endur í þessum heims­sögu­lega glæp gegn mann­kyn­inu.

Núver­andi rík­is­stjórn Íslands, líkt og síð­asta rík­is­stjórn, reyn­ist sam­sek og eykur þá sam­sekt með hverjum degi sem hún beitir sér ekki af fullum þunga gegn þjóð­ar­morð­inu og sví­virði­legum brotum á alþjóða­lögum og mann­rétt­indum. Með aðgerða­leysi og und­ir­gefni við sömu ríki sem halda uppi þjóð­ar­morð­inu gerir hún Ísland sam­sekt þessum glæpum.

Saga okkar minnir okkur á hve mik­il­vægt það er að standa með sann­leik­anum og með þeim sem þora að tjá hann þegar mest á reynir. Árið 1934 var rit­höf­und­ur­inn Þór­bergur Þórð­ar­son dæmdur í Hæsta­rétti Íslands fyrir að segja að Hitler væri sad­isti. Í dag sjáum við hlið­stæður þegar þeir sem gagn­rýna Ísrael og vest­ræna sam­sekt við þjóð­ar­morð eru ofsóttir.

Francesca Albanese hefur þó staðið óhrædd upp og tjáð sann­leik­ann, þrátt fyrir stöðugar árásir og til­raunir til að þagga niður í henni. Það er skylda okkar að styðja slíkt hug­rekki og veita þeim sem þora að segja sann­leik­ann þann heiður og þann styrk sem Frið­ar­verð­laun Nóbels geta falið í sér.

Sós­í­alista­flokkur Íslands skorar því á rík­is­stjórn Íslands og Alþingi að til­nefna Francescu Albanese til Frið­ar­verð­launa Nóbels fyrir ómet­an­legt starf í þágu friðar, rétt­lætis og mann­rétt­inda palest­ínsku þjóð­ar­innar. Baráttu sem er ekki aðeins fyrir Palest­ínu heldur fyrir grund­vall­ar­gildum mennsk­unnar, fyrir samúð, rétt­læti og heimi þar sem líf alls fólks er virt. Langt er í land hvað það varðar að alþjóða­sam­fé­lagið end­ur­spegli þau gildi raun­veru­lega, en Francesca Albanese stendur sem skýrt leið­ar­ljós í myrkr­inu.

Sós­í­alista­flokkur Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ