Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Ed Sheeran setti lestarkerfið í Kaupmannahöfn á hliðina

„Ég hef bara aldrei séð svona áður á ævinni“

Ed Sheeran
Ed Sheeran Rauð­hærða sjar­matröllið heldur tón­leika í Kaup­manna­höfn í kvöld Mynd: ANGELA WEISS / AFP

Stór­stjarnan Ed Sheeran heldur tónleika í Øresundsparken í Kaupmanna­höfn í kvöld en lestar­kerfið þar í borg lagðist hálf­partinn á hliðina vegna tónleik­anna.

Íslenskt par sem er í fríi í kóngsins København hafði samband við Mannlíf til að lýsa brjál­æðinu sem fylgir Ed Sheeran en afar erfitt hefur reynst að fá far með lest í Kaupmanna­höfn, þar sem þær eru yfirleitt troðfullar af aðdáendum rauðhærða sjarma­tröllsins.

Fjöldinn bíðurLest­ar­kerfið var í lama­sessi

„Það var rosalegt að sjá allt þetta fólk sem var að fara á Ed Sheeran tónleikana,“ segir íslenskur karlmaður, sem ekki vill láta nafn síns getið, í samtali við Mannlíf en hann er þar staddur ásamt eiginkonu sinni. „Við löbbuðum inn í metro-lestar­stöðina og það var allt stopp. Þvílík röð sem hreyfðist mjög hægt áfram. Og það voru þarna öryggis­verðir sem voru að hrópa yfir mann­fjöldann og segja að það verði hleypt inn í hollum og biðja fólk um að sýna þolinmæði. Við vissum ekkert hvað var í gangi en allir aðrir vissu það því þegar við komum niður þá var enn alveg pakkað og þá stendur á skjánum að allt lestar­kerfið sé í rugli, það séu allt of margir farþegar út af Ed Sheeran-tónleikunum.“

Allt fulltTil­kynn­ing til þeirra sem biðu

Að lokum kom þó tóm lest en viðmælandi Mannlífs sagði að þá hefði brotist út fagnaðar­læti meðal þeirra sem biðu eftir lest.

„Þetta minnti svolítið á það þegar Ísland komst á EM í knatt­spyrnu karla, þetta voru rosaleg fagnaðar­læti. Eins og konan mín sagði, sem hefur ferðast til ansi margra landa, sérstak­lega í Evrópu, „Ég hef bara aldrei séð svona áður á ævinni“. Og ég hef ekki heldur séð neitt í líkingu við þetta. Það var rosalegt að sjá þetta. Það var svo heitt og svo mikill raki í loftinu og sviti, þannig að þetta var alveg ný upplifun. Maður hefur heyrt að danska lestar­kerfið sé svo frábært og áreiðanlegt og að ekkert klikki en þarna sá maður loksins að danska kerfið geti líka klikkað, þó það þurfi greini­lega mikið til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Menning

Ein besta rappsveit Íslands­sögunnar snýr aftur á svið

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027