Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Mótmæli boðuð vegna brottvísunar rússneskrar fjölskyldu

„Ísland hefur skuld­bundið sig til að verja mann­rétt­indi – ekki brjóta þau“

Mótmæli boðuð vegna brottvísunar rússneskrar fjölskyldu
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir Mótmælt verður fyrir utan dóms­mála­ráðu­neytið á mánu­dags­morgun Mynd: Víkingur

Hópur fólks hyggst mót­mæla fyrir utan dóms­mála­ráðu­neytið, Skúla­götu 4, mánu­dag­inn 13. októ­ber klukkan 9:00 vegna brott­vís­unar rúss­neskrar fjöl­skyldu af Íslandi. Að mót­mæl­unum stendur sam­tökin No Borders Iceland, sem krefj­ast þess að stjórn­völd tryggi að fjöl­skyldan verði ekki send til Rúss­lands, þar sem hún sæti ofsóknum af hálfu yfir­valda.

Samkvæmt yfir­lýs­ingu sam­tak­anna var fjöl­skyld­unni, hjón­unum Gadzhi Gadzhiev og Mariiam Taimova og þremur ungum börnum þeirra, þar á meðal tveggja vikna tví­burum, vísað úr landi til Króatíu, fyrsta Schengen-rík­is­ins sem þau höfðu við­komu í. Fjöl­skyldan kom til Íslands í des­em­ber 2024 eftir að hafa flúið póli­tískar ofsóknir í Rúss­landi, en Gadzhi var áður fang­els­aður fyrir að and­mæla stjórn­völdum.

Mariiam fæddi tví­burana með keis­ara­skurði eftir áhættu­með­göngu og alvar­lega heilsu­farskvilla, en fjöl­skyldan var engu að síður hand­tekin tveimur vikum síðar og brott­vísað. Í yfir­lýs­ing­unni segir að móðir, systir og bróðir Gadzhi hafi fengið var­an­legt dval­ar­leyfi á Íslandi „á grund­velli einmitt þeirra sömu póli­tísku ofsókna og hann sætir sjálfur“.

No Borders segir að með þess­ari ákvörðun hafi íslensk stjórn­völd „komið því í kring að fjöl­skyldan stendur frammi fyrir raun­veru­legri hættu á fang­elsun, pynt­ingum og ofbeldi“.

Þá vísa sam­tökin til gagn­rýni á króat­ísk yfir­völd af hálfu mann­rétt­inda­sam­taka á borð við Amnesty International fyrir að senda umsækj­endur um alþjóð­lega vernd aftur til Rúss­lands. Samkvæmt AIDA gagna­grunni hafi Króatía aðeins sam­þykkt 0,3 pró­sent umsókna frá rúss­neskum rík­is­borg­urum árið 2023.

Í yfir­lýs­ing­unni segir jafn­framt að með brott­vísun fjöl­skyld­unnar hafi íslensk stjórn­völd brotið gegn 42. grein útlend­inga­laga, sem kveður á um bann við end­ur­send­ingu (non-refoulement). Þar segir meðal ann­ars:

„Ekki er heim­ilt sam­kvæmt lögum þessum að senda útlend­ing eða rík­is­fangs­lausan ein­stak­ling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að ótt­ast ofsóknir eða þar sem hann er í yfir­vof­andi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómann­úð­legri eða van­virð­andi með­ferð.“

No Borders segir að hætta sé á að börn hjón­anna verði tekin af þeim við komu til Rúss­lands og komið fyrir á mun­að­ar­leys­ingja­hæli, en for­eldrar fang­els­aðir.

Á mót­mæl­unum verður dóms­mála­ráð­herra afhentur listi krafna. Þar er meðal ann­ars kraf­ist að stjórn­völd tryggi að fjöl­skyldan verði ekki send til Rúss­lands, að henni verði veittur íslenskur rík­is­borg­ara­réttur með sam­þykki Alþingis og að stjórn­völd leiti allra leiða til að koma henni aftur til Íslands.

Einnig krefj­ast sam­tökin þess að stjórn­völd fari að lögum og virði 42. grein útlend­inga­laga, sem og að fallið verði frá frek­ari laga­setn­ingu sem „skerðir rétt­indi fólks á flótta“.

Í yfir­lýs­ing­unni segir:

„Ísland hefur skuld­bundið sig til að verja mann­rétt­indi – ekki brjóta þau. Við krefj­umst þess að íslensk stjórn­völd axli ábyrgð og snúi við þess­ari skelfi­legu ákvörðun. Engin mann­eskja er ólög­leg!“

Að mót­mæl­unum koma meðal ann­arra Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir lög­maður, Diana Burkot, liðs­kona Pussy Riot, og Valur Gunn­ars­son, sagn­fræð­ingur, sem munu flytja ræður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ