Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Unglingur lést í aðgerð hersins

Tíu ára drengur var einnig drep­inn á dög­unum, þar sem hann spil­aði fót­bolta

Unglingur lést í aðgerð hersins
Ísra­elskir her­menn Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint.

Palest­ínskur ung­lingur lést af sárum sem hann hlaut í hern­að­ar­að­gerð ísra­elska hers­ins í Askar-flótta­manna­búð­unum í Nablus. Atvikið er hluti af sívax­andi ofbeldi gegn óbreyttum borg­urum á hernumda Vest­ur­bakk­anum, á sama tíma og brot­hætt vopna­hlé á Gaza-strönd­inni veitir Palest­ínu­mönnum litla hvíld í rústum sprengdra hverfa.

Wafa-frétta­stofan greinir frá því að hinn átján ára gamli Mohammed Ahmed Abu Haneen hafi lát­ist í morgun af sárum sem hann hlaut í árás her­liðs­ins.

Ísra­elskar her­sveitir réð­ust einnig inn í bæinn Aqaba, norðan við Tubas á Vest­ur­bakk­anum, og hand­tóku nokkra aðila fyrr í dag. Áður höfðu verið gerðar hand­tökur í Hebron og Tal.

Í yfir­lýs­ingu ísra­elska hers­ins segir að 44 Palest­ínu­menn hafi verið hand­teknir á hernumdu svæð­unum síð­ustu viku. Aðgerð­irnar hafi verið fram­kvæmdar víða um svæðið og allir hand­teknir séu eft­ir­lýstir af Ísrael. Einnig hafi verið lagt hald á vopn og farið í yfir­heyrslur í tengslum við aðgerð­irnar.

Í síð­ustu viku var tíu ára drengur, Mohammad al-Hallaq, skot­inn til bana af ísra­elskum her­mönnum þegar hann lék sér í fót­bolta í ar-Rihiya, í Hebron-hér­aði.

Samkvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum hafa meira en 1.000 Palest­ínu­menn verið drepnir af her­lið­inu eða land­ræn­ingjum frá 7. októ­ber 2023 á Vest­ur­bakk­anum, þar á meðal í Austur-Jer­úsalem.

Fimmt­ungur fórn­ar­lambanna eru börn, þar á meðal 206 drengir og sjö stúlkur, að sögn SÞ. Þá eru meðal hinna látnu 20 konur og að minnsta kosti sjö fatl­aðir ein­stak­lingar. Tölurnar taka ekki til Palest­ínu­manna sem hafa lát­ist í haldi Ísraels á sama tíma­bili.

Sam­komu­lag um vopna­hlé á Gaza-strönd­inni í umsjón Banda­ríkja­stjórnar hefur leitt til þess að nær 2.000 palest­ínskir fanga hafa verið látnir lausir úr ísra­elskum fang­elsum, margir þeirra með sýni­leg ummerki um mis­þyrm­ingar.

Tugir líka Palest­ínu­manna sem hafa verið afhent fjöl­skyldum sínum hafa borið merki um alvar­legar lim­lest­ingar og fram­kvæmd heng­inga eða aftaka, að sögn heim­ilda.

Á sama tíma og her­inn eykur átak sitt gegn Palest­ínu­mönnum, halda land­ræn­ingjar áfram ofbeldi sínu nálægt Ramallah, þar sem palest­ínskt eign­ar­hald og mann­virki eru eyðilögð nán­ast dag­lega án afskipta yfir­valda og undir vernd hers­ins.

Að sögn Wafa kveiktu land­nemar í nokkrum palest­ínskum öku­tækjum á svæði í Deir Dibwan, austur af Ramallah, aðfara­nótt föstu­dags. Þá réð­ust þeir einnig á palest­ínska bændur sem voru að tína ólífur í landi þorps­ins Beit Iksa, norð­vestur af Jer­úsalem.

Á sunnu­dag réðst ísra­elskur land­ræn­ingi grimmi­lega á palest­ínska konu í Turmus Aya þegar hún var að safna ólífum.

Afaf Abu Alia, 53 ára, hlaut heila­blæð­ingu vegna árás­ar­innar.

„Árásin hófst með um tíu land­ræn­ingjum, en stöðugt fleiri bætt­ust við,“ sagði palest­ínskur sjón­ar­vottur við Al Jazeera. „Að lokum voru þeir lík­lega um 40 tals­ins, vernd­aðir af hernum. Við vorum mun færri og gátum ekki varið okkur.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Mann­úð­ar­skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna (OCHA) hafa land­ræn­ingjar ráð­ist á Palest­ínu­menn nærri 3.000 sinnum á síð­ustu tveimur árum á hernumdu Vest­ur­bakk­anum.

Flótta­manna­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNRWA) sagði á föstu­dag að frá 7. októ­ber 2023 hafi „her­tekni Vest­ur­bakk­inn, þar á meðal Austur-Jer­ús­al­ems, markast af miklu og ört vax­andi ofbeldi“.

„Innlimun Vest­ur­bakk­ans heldur áfram með stöð­ugum hætti sem er gróft brot á alþjóða­lögum,“ sagði UNRWA, með vísan til útþenslu og við­ur­kenn­ingar ólög­legra land­náma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta