Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segir að Stefán Einar hafi verið „rjóður af kampaþambi“

Katrín Odds­dóttir segir frá því þegar hún hitti fjöl­miðla­mann­inn í veislu

Segir að Stefán Einar hafi verið „rjóður af kampaþambi“
Katrín Odds­dóttir Hefur starfað sem lög­maður í fjölda ára Mynd: Réttur

Ummæli Stefáns Einars Stef­áns­sonar, blaða­manns Morg­un­blaðs­ins, í hlað­varps­þætt­inum Þjóðmál hafa verið eitt helsta umræðu­efni Íslands síðan í fyrra­dag en þá greindu fjöl­miðlar frá því að fjöl­miðla­mað­ur­inn hafi hæðst Nönnu Rögn­vald­ar­dóttur og gert lítið úr henni.

„Mér fannst Nanna Rögn­valdar ekki smekk­leg kona en svo virð­ist hún hafa farið á Ozempic og hún er bara orðin eins og fær­eyskt skerpi­kjöt. Hver vill borða mat frá svona konu? Mynduð þið kaupa mat­reiðslu­bækur frá henni? Ég bara missi mat­ar­lyst­ina við til­hugs­un­ina,“ sagði Stefán Einar í þætt­inum.

Síðan þá hefur Stefán sagt að um sam­fé­lags­á­deilu hafi verið að ræða og sak­aði í kjöl­farið annað fólk að tala illa um sig í athuga­semda­kerfum Facebook og fjöl­miðla.

Ein þeirra sem hafa tjáð sig um Stefán er Katrín Odds­dóttir, lög­maður og bar­áttu­kona.

„Fallegt finnst mér hópá­fallið sem virð­ist hafa fram­kall­ast við opin­berun um að sjálf­skip­uðum sið­ferð­is­klerki “vonda fólks­ins” finn­ist ekk­ert athuga­vert við að vera með vondar skoð­anir,“ skrifar Katrín um málið.

„Stjórn­mála­fólk elskar ofnot­aða fra­s­ann um að ekki fari saman hljóð og mynd. En mynd og hljóð smellpössuðu að mínu mati þegar hlað­varpsstirnið taldi sig hafa verið að gera flott grín með því að rakka niður lík­am­legt útlit konu og sam­sama því svo ævi­starfi hennar með fall­ein­kunn,“ sagði í kjöl­farið sögu af kynnum þeirra Stefáns.

„Ég rakst á Stefán Einar, sem ég þekki ekki, í partýi fyrir ára­mót. Hann sá mig álengdar og rauk til mín rjóður af kampa­þambi. Með áfergjuglampa í upp­glentum augum til­kynnti hann mér skæl­bros­andi að ég hataði hann. Ég neydd­ist til að valda honum von­brigðum með upp­ljóstrun um að ég hata enga mann­eskju og hvað þá hann. Hann sperrt­ist enn frekar upp og full­yrti gír­ugur að hann YRÐI að fá mig í við­tal til sín. Lítið gaf ég út á það og mjak­aði mér glott­andi burt, enda finnst mér almennt frekar gaman að svona svall­rugli,“ skrif­aði lög­mað­ur­inn.

Tímamót í samfélaginu

„Ég get þó upp­lýst hér að fátt langar mig minna en að dansa eftir þeim sorg­lega, mein­fýsna og skratta­skemmt­andi takti sem Stefán virð­ist njóta að spila úr svart­hol­inu á sér. Til hvers?

Það tók tíma og kost­aði fórnir að byggja upp okkar menn­ing­ar­sinn­aða og mann­rétt­inda­mið­aða vel­ferð­ar­sam­fé­lag. Það er ekki full­komið frekar en önnur mann­anna verk en við eigum það saman og það er dýr­mætt. Það er hægt að brenna heila borg á einni nóttu þótt það hafi tekið aldir að byggja hana,“ segir Katrín og telur að íslenskt sam­fé­lag sé á ein­hvers konar tíma­mótum.

„Ég vona að það muni reyn­ast okkur sem sam­fé­lagi áfall sem allra lengst þegar hatur og mann­fyr­ir­lit­ing opin­bera sig. Þó það sé ekki nema bara fyrir það að á meðan við­brögð áfalls­ins fram­kall­ast þá vitum við að enn hefur ekki tek­ist að normalísera inn­an­tóma firr­ing­una og afmennskun­ina,“ skrifar hún að lokum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ