Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Ekki hægt að slá föstu að illa hafi verið farið með börn á Vöggustofu

Skýrsla um Vöggu­stofu Thor­vald­sens­fé­lagsins kynnt

Skýrsla Vöggustofunefndar var kynnt í dag
Skýrsla Vöggu­stofu­nefndar var kynnt í dag Vöggu­stofu­nefnd ásamt borg­ar­stjóra og full­trúum Rétt­lætis Mynd: Reykjavíkurborg

Sjálfstæð og óháð nefnd, sem Reykja­víkurborg skipaði til að kanna starfsemi Vöggu­stofa Thorvaldsensfélagsins á árunum 1974 til 1979, kynnti í dag niður­stöður sínar. Um er að ræða framhalds­athugun sem gerð var í kjölfar fyrri skýrslu um starfsemi vöggu­stofa í Reykjavík á árunum 1949–1973.

Niður­stöður nefndarinnar eru í megin­atriðum þríþættar. Í fyrsta lagi segir í skýrslunni að ekki verði slegið föstu að börn sem dvöldu á vöggu­stofunni á tíma­bilinu 1974–1979 hafi sætt illri meðferð í skilningi laga nr. 45/2022. Í öðru lagi kemur fram að máls­meðferð barna­verndar­yfirvalda við ákvarðanir um vistun barna á stofnuninni hafi oft ekki verið í samræmi við gildandi lög. Í þriðja lagi er bent á að opinbert eftirlit með starfseminni hafi verið afar takmarkað og ekki í samræmi við laga­kröfur á þessum tíma.

Alls dvöldu 236 börn á Vöggu­stofu Thorvaldsensfélagsins á árunum 1974–1979. Börn voru ekki vistuð þar eftir febrúar 1979, en þá var stofnunin sameinuð Vist­heimili barna að Dalbraut 12 í Reykjavík.

Nefndin telur að aðstæður barna, aðbúnaður, umönnun og mögu­leikar foreldra til heimsókna hafi verið með betri hætti á þessu tímabili en á árunum fyrir 1967, sem fjallað var um í fyrri skýrslu. Athugunin bendir jafnframt til þess að þá hafi ekki lengur verið við lýði starfs­hættir sem almennt settu starfs­fólki skorður í umönnun barna eða takmörkuðu sérstak­lega möguleika þess til að sinna þörfum einstakra barna.

Þrátt fyrir þetta kemur fram að ýmsum þáttum hafi verið ábótavant. Nætur­vaktir virðast hafa verið fáliðaðar miðað við aldur og þarfir barnanna, og almennt hafi skort faglega greiningu og vinnu til að mæta sérþörfum barna, svo sem barna með fötlun, eldri barna, barna sem komu úr erfiðum aðstæðum eða voru vistuð ítrekað. Þá kemur fram að í sumum tilvikum hafi börn dvalið mjög lengi á vöggu­stofunni.

Í skýrslunni er einnig sérstak­lega fjallað um afdrif barnanna sem vistuð voru á stofnuninni á umræddu tímabili. Þar má finna upplýsingar um hversu mörg börn voru síðar vistuð á öðrum stofnunum eða fóru í fóstur, auk upplýsinga um dánar­tíðni og tíðni örorku innan hópsins.

Nánari upplýsingar um niður­stöður nefndarinnar, afdrif barnanna og tillögur um úrbætur er að finna í skýrslu nefndarinnar, sem er aðgengileg í heild sinni á vef Reykja­víkurborgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra