Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Krefst verulegrar endurskoðunar á frumvarpi um sjókvíaeldi

Lands­sam­band veiði­fé­laga vill meðal ann­ars stöðva frek­ari stækkun opins sjó­kvía­eldis á frjóum laxi og að áhættu­mat erfða­blönd­unar verði bind­andi.

Krefst verulegrar endurskoðunar á frumvarpi um sjókvíaeldi
Sjó­kví­eldi Lands­sam­band veiði­fé­laga er ósátt við frum­varpið Mynd: Arnarlax

Lands­sam­band veiði­fé­laga sam­þykkti á fundi sínum á föstu­dag ályktun þar sem kraf­ist er umfangs­mik­illar end­ur­skoð­unar á frum­varpi um lög um lagar­eldi, svo­nefnt sjó­kvía­eldi, sem nú er til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Fund­ur­inn, sem hald­inn var 16. jan­úar, var vel sóttur af for­mönnum og félags­fólki veiði­fé­laga víðs vegar að af land­inu, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá sam­band­inu. Þar ríkti sam­staða um að frum­varpið, eins og það liggur fyrir, tryggi ekki nægj­an­lega vernd villtra laxa­stofna né skýra stefnu til fram­tíðar.

Í álykt­un­inni er meðal ann­ars kraf­ist að stöðvuð verði frek­ari stækkun opins sjó­kvía­eldis á frjóum laxi og að sett verði skýr og tíma­sett stefna um tækni­skipti yfir í lokuð eld­is­kerfi og notkun ófrjós fisks. Þá er lögð áhersla á að áhættu­mat erfða­blönd­unar verði bind­andi og aldrei notað sem grund­völlur fyrir aukna fram­leiðslu, auk þess sem aðgerðir í ám eigi ekki að telj­ast mót­væg­is­að­gerðir.

Lands­sam­bandið krefst þess jafn­framt að frið­un­ar­svæði verði skýrð og lög­fest, og að vernd þeirra verði aukin, meðal ann­ars í Eyja­firði, Seyð­is­firði og Öxar­firði. Þá er lagt til að und­an­þágu­heim­ildir sem geti opnað friðuð svæði fyrir eldi verði felldar brott.

Í álykt­un­inni er einnig bent á þörf fyrir að draga úr réttaró­vissu um laxa­hlut, koma í veg fyrir fram­leiðslu­auk­andi und­an­þágur sem gætu aukið eldi frjós lax umfram heild­ar­laxa­magn og tryggja að við­ur­lög vegna stroks úr sjó­kvíum verði raun­veru­lega letj­andi.

Að auki er varað við því að sett verði óheft aðgengi að ám og veiði­stöðum án sam­ráðs, með­al­hófs og skýrra skil­yrða. Lands­sam­bandið krefst einnig að skaða­bóta­leiðir verði raun­hæfar með létt­ari sönn­un­ar­byrði og að burð­ar­þols­mat taki til alls álags á vist­kerfi, ekki ein­ungis ein­stakra þátta.

Í álykt­un­inni er lögð áhersla á að efla þurfi form­legt sam­ráð við hags­muna­að­ila, fremur en að veikja það, og að tryggð verði skýr og nægj­an­leg fjár­mögnun til vökt­unar, rann­sókna og nauð­syn­legra vernd­ar­að­gerða fyrir villta laxa­stofna og líf­ríki ferskvatns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ