Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Össur Skarphéðinsson: Grænland lagði Trump „á ippon“ í Davos

„Hann fór haltr­andi heim til Banda­ríkj­anna án þess að fá nokkuð fyrir hót­anir sínar, nema það sem hann hafði þegar fyrir,“

Össur Skarphéðinsson: Grænland lagði Trump „á ippon“ í Davos
Össur Skarp­héð­ins­son Össur er nokkuð skarpur þegar kemur að utan­rík­is­málum Mynd: Nordic.org

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, segir að Grænland hafi staðið uppi sem sig­ur­veg­ari eftir ágrein­ing við Donald Trump um stöðu og fram­tíð lands­ins. Í ítar­legri Facebook-færslu heldur Össur því fram að Trump hafi farið „haltr­andi heim“ af fundum í Davos án þess að hafa fengið nokkuð í stað hót­ana sinna.

„Grænland, Kanada og Evr­ópu­sam­bandið voru sig­ur­veg­arar í störu­keppn­inni við Trump. Annað er varla hægt að álykta af nið­ur­stöðum gær­dags­ins í Davos,“ skrifar Össur og bætir við að þrátt fyrir yfir­lýs­ingar Trumps um „full­kom­inn sigur“ eftir fund með Mark Rutte, aðal­rit­ara NATO, hafi nið­ur­staðan verið inni­halds­laus fyrir Banda­ríkin.

„Hann fór haltr­andi heim til Banda­ríkj­anna án þess að fá nokkuð fyrir hót­anir sínar, nema það sem hann hafði þegar fyrir,“ segir Össur og heldur því fram að Trump hafi jafn­framt „skilið Atl­ants­hafs­banda­lagið eftir í molum“ og hrundið af stað við­skipta­stríði með „full­kom­lega ólög­mætum refsi­tollum á prinsip­fastar þjóðir sem studdu Græn­lend­inga“.

Um hið meinta sam­komu­lag Trumps og Rutte segir Össur að í raun sé um að ræða stað­fest­ingu á fyr­ir­komu­lagi sem lengi hafi verið í gildi. „Allt, sem Trump seg­ist hafa tryggt Banda­ríkj­unum hefur þeim því staðið opið um langa hríð,“ skrifar hann og bendir á að Banda­ríkin hafi nú þegar her­stöð í Norður-Græn­landi og samn­ings­bund­inn rétt til að senda þangað „jafn marga her­menn og þau vilja“.

Hann dregur jafn­framt í efa full­yrð­ingar um að Græn­landi stafi hern­að­ar­leg ógn af Rúss­landi. „Þeir hafa aldrei ásælst Grænland, látið það í friði, og fremur sýnt því virð­ingu en hitt innan Norð­ur­skauts­ráðs­ins,“ skrifar Össur.

Varðandi Kína segir hann að frum­kvæðið að sam­skiptum hafi komið frá Græn­lend­ingum sjálfum. „Græn­lend­ingar höfðu sjálfir frum­kvæði að tengslum við Kína,“ skrifar hann og bendir á að það hafi um ára­bil verið hluti af opin­berri utan­rík­is­stefnu Græn­lands að efla tengsl við Kína. Hann nefnir meðal ann­ars að ræð­is­skrif­stofa hafi verið opnuð í Beijing, án þess að Kín­verjar hafi svarað í sömu mynt með ræð­is­skrif­stofu í Nuuk.

Össur rifjar einnig upp hvernig Græn­lend­ingar beittu kín­verska „spil­inu“ þegar Danmörk treysti sér ekki til að fjár­magna upp­bygg­ingu flug­valla. Hann lýsir ferð Kim Kielsen, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands, til Kína með þessum orðum:

„Kim Kielsen, for­sæt­is­ráð­herra fór til Beijing með þrjá ráð­herra til reiðar og kom til baka með tvö eða þrjú kín­versk rík­is­fyr­ir­tæki og fjár­magn á fínum kjörum til að byggja þrjá alþjóða­flug­velli.“

Að sögn Össurar varð þessi þróun til þess að Banda­ríkin gripu inn í og þrýstu á Dani að tryggja Græn­lend­ingum fjár­magn. Hann segir að Kielsen hafi siglt mál­inu „eins og græn­lenskum kajak gegnum diplómat­íska stór­sjói, með því að beita Kína fyrir sig“.

Í færsl­unni kemur jafn­framt fram að kín­versk fyr­ir­tæki hafi um tíma haft námu­rétt­indi víða á Græn­landi, meðal ann­ars þar sem finna má „mest járn sem þekkt er í jörðu“ og einnig aðgang að fágætum málmum og kopar. Áhugi Kínverja hafi þó dvínað fljótt. Össur vísar í því sam­hengi til ummæla Ólafur Ragnar Grímsson, sem sagði nýverið á CNBC að Kína staf­aði engin ógn af Græn­landi.

Össur gagn­rýnir Trump einnig fyrir að lýsa því sem sigri að Banda­ríkin fái aðgang að her­stöðvum og auð­lindum á Græn­landi. „Það er því soltið hall­æris­legt þegar hinn lit­skæri og ljóm­andi Trump lýsir því nú sem sér­stökum sigri að Banda­ríkin megi gera nákvæm­lega það sem þeim hefur alltaf staðið til boða!“ skrifar hann.

Í nið­ur­stöðu færsl­unnar segir Össur að Grænland standi nú sterk­ari en áður:

„Grænland stendur sterkar eftir en áður og leið þess til sjálf­stæðis er að mínum dómi greið­ari en fyrir „Græn­lands­stríðið“. Litla þjóðin stóð sem einn maður, ávann sér virð­ingu um allan heim og lagði hinn banda­ríska Golíat.“

Hann segir Evr­ópu­ríki og Kanada einnig hafa staðið uppi sem sig­ur­veg­arar og nefnir sér­stak­lega for­sæt­is­ráð­herra Kanada, Mark Carney, sem „hetju Davos“. Að hans mati sé Trump hins vegar „lang­mesti tap­ar­inn“ í mál­inu og að traust til Banda­ríkj­anna innan NATO hafi beðið hnekki.

Í lokin varpar Össur fram spurn­ingu um stöðu Íslands og rifjar upp banka­hrunið:

„Fleiri en Kristrún Frosta­dóttir og Þor­gerður Katrín hljóta eftir atlög­una að Græn­landi að spyrja sig í hljóði: Er eitt­hvað skjól fyrir Ísland hjá Banda­ríkj­unum ef í harð­bakk­ann slær?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ